Læknablaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 62
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MINNING
Mínníng
Arinbjörn Kolbeinsson
heiðursfélagi LR og LÍ
Fæddur 29. apríl 1915 - Dáinn 19. nóvember 2002
Arinbjörn Kolbeinsson var í ritstjórn Læknablaðs-
ins árin 1970 til 1976 og er hans minnst hér meðal
annars og sérstaklega af því tilefni.
Hann var ritari í stjórn Læknafélags Reykjavíkur
1957 til 1959 og síðan formaður félagsins 1959 til
1963.
Á þessu tímabili urðu tvenn afar mikilvæg um-
skipti á högum lækna: Annars vegar var sérfræðing-
um gert kleift að beita þekkingu sinni, án þess að
vera neyddir til þess að stunda jafnframt heimilis-
lækningar og hins vegar fékkst það staðfest af kjara-
dómi sumarið 1963 að þar eftir skyldi greitt refjalaust
fyrir vaktir.
Samtímis var unnið ötullega innan læknasamtak-
anna að tillögum um endurbætur á heilbrigðisþjón-
ustunni og innan LR starfaði sérstök læknisþjónustu-
nefnd, sem átti mjög samleið með Læknisþjónustu-
nefnd Reykjavíkurborgar. í nóvember 1965 fóru þrír
læknar til Norðurlandanna og Englands til þess að
kanna skipulag þjónustunnar á þeim slóðum, þeir
Arinbjörn Kolbeinsson, tilnefndur af LR, Pórarinn
Guðnason, tilnefndur af LÍ, og Páll Sigurðsson, til-
nefndur af Reykjavíkurborg. Skýrsla þeirra félaga
birtist í Læknablaðinu í desember sama ár og er hún
enn holl lesning þeim, sem velta fyrir sér lausnum á
því vandræðaástandi, sem á ný ríkir í læknisþjón-
ustunni.
Sumarið 1966 birtust skýrsla og tillögur Læknis-
þjónustunefndar Reykjavíkurborgar, sem læknasam-
tökin áttu aðild að, og skömmu síðar voru settar fram
fyrstu hugmyndir um skipulag heilsugæzlunnar á
landsbyggðinni til langframa, en þá blasti við hrun
þjónustunnar þar vegna búferlaflutninga fjölda hér-
aðslækna á höfuðborgarsvæðið og nánast engrar ný-
liðunar.
Þegar Arinbjörn varð formaður LI sumarið 1967
tók hann þegar höndum saman við landsbyggðar-
læknana og skömmu síðar var haldin ráðstefna um
vanda landsbyggðarinnar og voru þar kynnt glæný
gögn, sem sýndu, svo ekki varð um villzt, að við svo
búið mátti ekki standa. Smiðshöggið á stefnu LI var
síðan rekið með síðari ráðstefnunni í Domus Medica
haustið 1968.
Læknafélag fslands studdi heils hugar undirbúning
laga um heilbrigðisþjónustu og ekki spillti fyrir
framgangi frumvarpsins, sem lagt var fram til kynn-
ingar 1971, að þar voru þeir enn samstíga ferðafélag-
arnir frá 1965.
Kynni mín af Arinbirni hófust þegar ég kom á Bar-
ónsstíginn eftir fyrsta hluta próf fyrir rúmum fjórum
áratugum og samstarf okkar hófst í stjórn LÍ1967. Þá
þegar fór af honum mikið orð sem félagsmálamanni
og fljótlega komst ég að raun um það, að hann var
eldfljótur að átta sig á flóknum málum og skynja
hvert hugur viðmælenda stefndi. Pegar hann hafði
bætt við sínum viðhorfum. var jafnan komizt að nið-
urstöðu í anda þess, sem Bismarck hafði á orði, að
stjórnmál eru list hins gerlega. Þegar ákveðið hafði
verið hvað gera skyldi, kunni Arinbjöm þá list einnig,
að láta öðrum eftir að framkvæma.
Ég þakka það að hafa átt samfylgd með honum um
hríð og óska læknasamtökunum þess, að þau eignist
marga hans líka.
Örn Bjarnason
62 Læknablaðið 2003/89