Læknablaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BARNASPÍTALI
Nýi Barnaspítalinn að verða tilbúinn
Skynsamlegt hús fyrir góða starfsemi
- segir Ásgeir Haraldsson prófessor um nýbyggingu Barnaspítala Hringsins
Staðreyndir um
spítalann:
Flatarmál: 6800 m2 á
fjórum hæðum
Sex deildir með um 80
legurými
Kostnaður: 1.500 millj-
ónir króna. Par af
leggur Hringurinn
fram 150 milljónir
króna, auk 50 millj-
óna sem renna eiga til
tækjakaupa
Arkitektar: Teiknistofan
Tröð, Signður Magn-
úsdóttir og Hans
Olav Andersen
Aðalverktaki: ÓG Bygg
Húsið verður tekið
formlega í notkun á
99 ára afmæli
Hringsins 26. janúar
næstkomandi
Þröstur
Haraldsson
Það má meta þjóðfélög eftir því hvernig þau búa að
veikum börnum sínum. Þessi orð eru Asgeiri Har-
aldssyni prófessor og forstöðumanni á Barnaspítala
Hringsins töm á tungu. Nú þegar hillir undir nýjan
barnaspítala á Landspítalalóðinni er það niðurstaða
hans að með byggingunni sé stigið skref í þá átt að
Island standist slíkt próf.
Undir lok janúar rætist langþráður draumur margra
þegar nýtt og glæsilegt húsnæði verður tekið í notk-
un. Læknablaðið tók forskot á sæluna og fékk Ásgeir
til að sýna blaðamanni húsakynnin á miðri aðventu.
Þá voru iðnaðarmenn enn að störfum, lítill sem eng-
inn búnaður kominn á sinn stað og hæðirnar fjórar
mislangt á veg komnar. Sama dag var nýtt listaverk
afhjúpað en það er gert af Sigurði Guðmundssyni
myndlistarmanni og er einkar glæsilegt.
Það leyndi sér ekki að Ásgeir er stoltur og ánægð-
ur með nýja húsið. „Hér er enginn íburður en allt
ákaflega vel gert og fallega. Þegar við hófum undir-
búning að byggingu hússins kölluðum við til ýmsa
hópa starfsfólks og notenda og báðum þá að búa til
ítarlega þarfagreiningu. Flestir starfsmenn tóku þátt í
þeirri vinnu. Þessi góði undirbúningur er nú að skila
sér. Hér er öllu haganlega fyrir komið, gott pláss og
margir hlutir hafa tvennan og jafnvel þrennan til-
gang,“ segir hann.
Fjölbreytt starfsemi
Þegar blaðamaður hafði samband við Ásgeir var hon-
um stefnt á vökudeildina á kvennadeildinni þar sem
fyrirburum og öðrum nýburum sem fylgjast þarf með
er sinnt. Tilgangurinn var að sýna muninn en þegar
blaðamann bar að garði voru þar 10 böm á deild sem
með réttu ætti að rúma tvö til þijú böm. Starfsfólkið
þurfti að smeygja sér á milli rúma og augljóst að til þess
að allt gengi upp þurfti samkomulagið að vera gott.
Svo lá leiðin yfir í nýja húsið sem tengist kvenna-
deildinni (sem hét nú reyndar fæðingardeild þegar
blaðamaður kom þar í heiminn um miðja síðustu öld)
á tveimur stöðum. Fæðingarstofumar verða áfram á
sínum stað á efstu hæð en gjörgæslan og hágæslan
verður rétt handan við hornið í nýja húsinu. Þar hefur
þessi starfsemi tvær stórar stofur til umráða, hvora
um sig öllu stærri en núverandi deild og eru þá ótald-
ar geymslur og annað stoðrými.
Húsaskipan er að öðru leyti með þeim hætti að á
neðstu hæð er bráðamóttaka ásamt göngu- og dag-
deildum. Þar er einnig kaffitería sem Hringurinn mun
starfrækja og verður hún opin öllum starfsmönnum
Ásgeir Haraldsson prófessor í anddyri nýja barnaspítalans.
og almenningi. Þar verður flygill og aðstaða til tón-
leikahalds sem ætlunin er að verði fastur liður í starfi
spítalans. Þessi hæð tengist svo öðrum hlutum spítal-
ans um undirgöng en þar sem þau hefjast verður
kennslustofa og „auditorium“, sérbúinn fyrirlestra-
salur fyrir allan Landspítalann sem tekur á annað
hundrað manns í sæti, raunar sá fyrsti sem rís við spít-
alann.
Á annarri hæð verða skrifstofur, skóli, leikskóli,
kapella og fleira, allt saman starfsemi sem á það sam-
merkt að þurfa ekki „gas eða súr“ úr vegg eða sér-
stakan sjúkrahúsbúnað.
Á þriðju hæð eru lyflækningadeild og barnaskurð-
deild, sú eina sinnar tegundar hér á landi. Einnig er
þar stofa þar sem hægt verður að taka á móti bruna-
sjúklingum sem þurfa að vera í einangrun. Þar er
legudeild með einbýli og tveggjamanna stofur, dag-
stofa þar sem börnin og aðstandendur geta matast og
fleira.
Á efstu hæð er svo vökudeildin og lyflækninga-
deild fyrir yngri börn. Á vökudeildinni eru meðal ann-
ars tvær gjörgæslustofur, fyrir fjögur eða sex börn þar
sem einnig verður hægt að gera minniháttar skurð-
aðgerðir. Hins vegar er hágæsla þar sem rúm er fyrir
allt að 12 börn sem ekki þurfa að vera í öndunarvél.
Á þeirri hæð verður einnig hægt að taka við hópum
sem þurfa að vera í einangrun.
56 Læknablaðið 2003/89