Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2003, Page 15

Læknablaðið - 15.01.2003, Page 15
FRÆÐIGREINAR / ALGENGI GEÐLYFJANOTKUNAR Algengi og dreifing notkunar geðdeyfðar-, kvíða- og svefnlyfja Ágrip Tómas Helgason1 Kristinn Tómasson2 Tómas Zoéga3 Markmið: Tilgangur rannsóknarinnar var að afla vitn- eskju um algengi notkunar geðdeyfðar-, kvíða- og svefnlyfja, tengsl notkunarinnar við klíníska og lýð- fræðilega þætti og bera niðurstöðurnar saman við opinberar sölutölur. Efniviður og aðferðir: Gögn voru fengin úr Galiup- könnun Áfengis- og vímuvarnaráðs í nóvember 2001 hjá 4000 manna slembiúrtaki á aldrinum 18-75 ára. Athuguð voru áhrif kyns, aldurs, lengd notkunar, líð- anar, læknisleitar, reykinga, áfengisvandamála, mennt- unar, hjúskaparstéttar, tekna, starfs og vinnuálags. Upplýsingar um lyfjasöluna komu frá skrifstofu lyfjamála í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Niðurstöður: Svarhlutfall var 63,6%. Tæp 20% höfðu notað einhver lyfjanna á undanförnum 12 mánuðum, heldur fleiri konur en karlar. Ekki var marktækur munur milli kynja á ársalgengi notkunar geðdeyfðar- og svefnlyfja og ekki milli aldursflokka fyrir notkun geðdeyfðar- og kvíðalyfja. Helmingur yngstu notend- anna notaði geðdeyfðarlyf í minna en þrjá mánuði. Svefnlyfjanotkun jókst með hækkandi aldri. Áætluð notkun geðdeyfðar- og svefnlyfja svarar til 54% og 61% af sölutölum. Ekki var marktækur munur á áhættuhlutfalli karla og kvenna sem leituðu læknis. Líkindahlutfall reykingafólks var hækkað fyrir öll lyf- in, einkum geðdeyfðarlyf. Líkindahlutfallið var hæst fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega. Þeir sem hafa minnsta menntun og lægstar tekjur voru líklegastir til að hafa notað geðdeyfðar- eða kvíðalyf. Ályktanir: Notkun lyfjanna er útbreidd, en þó ekki eins mikil og sölutölur benda til. Munur milli kynja er minni en áður hefur fundist. Notkun, einkum lang- tíma, tengist hækkandi aldri. Notkunin er eins og vænta mátti mest meðal þeirra sem verst eru settir í fjárhags- og félagslegu tilliti. Inngangur 'Miðleiti 4,103 Reykjavík, 2rannsókna- og heilbrigðis- deild Vinnueftirlits ríkisins, ’geðdeild Landspítala. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Tómas Helgason, Miðleiti 4, Reykjavík. tomashe@isholf is Lykilorð: geðlyfjanotkun, faraldsfrœði. Sala geðdeyfðarlyfja og svefnlyfja hefur aukist mjög á undanförnum árum, en sala kvíðastillandi lyfja hef- ur nokkurn veginn staðið í stað um langt skeið (1). Söluaukninguna á geðdeyfðarlyfjum og svefnlyfjum hefur verið hægt að tengja tilkomu nýrra lyfja. Ávís- anir á kvíðastillandi lyf hafa verið háðar ýmsum tak- mörkunum síðan um miðjan áttunda áratug síðustu aldar. Einnig hefur verið reynt að takmarka notkun geðdeyfðarlylja og svefnlyfja með hámarki skammta- fjölda sem ávísa má í hvert skipti (2). Þótt söluaukn- ENGLISH SIIMMARY Helgason T, Tómasson K, Zoéga T Prevalence and distribution of antidepressant, anxiolytic and hypnotic use in 2001 Læknablaðiö 2003; 89: 15-22 Objective: To study the prevalence of the use of anti- depressant, anxiolytic and hypnotic drugs, the distribution of the use according to clinical and demographic factors and to compare it with the prevalence according to official sales figures. Material and methods: Data was collected in a survey by the Alcohol and Drug Prevention Committee. Four thousand individuals were selected at random from the population aged 18-75 years. Pharmaceutical use was studied according to sex, age, length of use, well-being, medical consultations, smoking, alcohol problems, education, marital status, income, occupation, and work pressure. Data on sales was supplied by the Ministry of Health and Social Security, Office of Pharmaceutical Affairs. Results: The response rate was 63.6%. Almost 20% had used some of these drugs during the preceeding 12 months, slightly more women than men. There was neither significant difference in the one year prevalence of use of antidepressants and hypnotics according to sex nor according to age for antidepressants and anxiolytics. One half of the youngest age group used antidepressants for less than three months. Use of hypnotics increased by age. Estimated use of antidepressants and hypnotics is 54% and 61%, respectively, of sales figures. There was no significant difference in the relative risk of drug use for men and women seeking medical consultations. Odds ratios were higher for smokers, especially for the use of antidepressants. People with the little education and low income was most likely to have used antidepressants and anxiolytics. Conclusions: Use of these drugs is common, but not as extensive as sales figures suggest. Sex difference is smaller than in previous studies. Prevalence of use, especially longterm, increases with age. As expected the use is most common among the socio-economically disadvantaged. Keywords: psychopharmaca use, epidemiology. Correspondence: Tómas Helgason, tomashe@isholf.is ing hafi verið mikil á geðdeyfðar- og svefnlyfjum hef- ur söluaukning á verkjalyfjum sem innihalda ópíum- skyld efni verið miklu meiri (3). Lyfjasala gefur hins vegar ekki tæmandi upplýsingar um lyfjanotkun því Læknablaðið 2003/89 15

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.