Læknablaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 35
FRÆÐIGREINAR / GALLBLÖÐRUNÁM
Gallblöðrunám með kviðsjártækni.
Fyrstu 400 tilfellin á FSA
Aðalsteinn
Arnarson
Haraldur
Hauksson
Valur Þór
Marteinsson
Sigurður M.
Albertsson
Shree Datye
Ágrip
Tilgangur: Að meta árangur við fyrstu 400 gall-
blöðrunám með kviðsjártækni á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri (FSA).
Efniviður og aðferðir: Gerð var framsæ rannsókn á
tímabilinu júlí 1992 til febrúar 2001. Tíðni fylgikvilla
og breytingar yfir í opna aðgerð var athuguð, auk þess
sem lengd sjúkrahúsdvalar og tími til fyrri færni voru
borin saman við niðurstöður annarra sjúkrahúsa.
Niðurstöðun Alls voru framkvæmd 426 gallblöðrunám
á sjúkrahúsinu. í 26 tilfellum var um hefðbundna
opna aðgerð að ræða frá byrjun. Gallblöðrunám með
kviðsjártækni var reynt hjá 400 sjúklingum. Hjá 41
sjúklingi (10,3%) var um að ræða aðgerð vegna bráðr-
ar gallblöðrubólgu og 359 sjúklingar voru teknir í val-
aðgerð. Snúa þurfti 16 (4%) kviðsjáraðgerðum í opna
aðgerð, hlutfall opnunar við bráðaaðgerðir var 12,2%
á móti 3,1% við valaðgerðir. Meðalfjöldi legudaga
var 3,6 dagar (1-45) eftir kviðsjáraðgerðir á móti 12,3
dögum (4-31) eftir opnar aðgerðir. Meðal aðgerðar-
tími við fyrstu 100 kviðsjáraðgerðirnar var 89 mínút-
ur (45-270) og 75 mínútur (30-180) við síðustu 100
aðgerðirnar. Meðalfjöldi veikindadaga eftir kviðsjár-
aðgerðir var 13,5 dagar (4-70). Eftir gallblöðrunám
með kviðsjártækni var tíðni fylgikvilla 10% (40/400).
Enduraðgerð þurfti að framkvæma hjá fjórum sjúk-
lingum.
Ályktun: Gallblöðrunám með kviðsjártækni er örugg
aðgerð á FSA. Hlutfall kviðsjáraðgerða, sem breyta
þurfti í opna aðgerð, tíðni fylgikvilla og fæmi sjúk-
linga stenst fyllilega samanburð við aðrar rannsóknir.
Inngangur
Fj órðungssj úkrahúsið
á Akureyri.
Fyrirspumir og bréfaskipti:
Aðalsteinn Arnarson, Kirurg-
kliniken, Blekingesjukhuset,
371 85 Karlskrona, Sverige.
aarnarson@hotmail. com
Lykilorð: gallblöðrunám með
kviðsjártœkni, fylgikvillar,
opnunartíðni, legutími.
Fyrsta gallblöðrunám með kviðsjártækni á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) var framkvæmt þann
27. júh' 1992. Þá höfðu þessar aðgerðir verið gerðar frá
því um haustið 1991 á sjúkrahúsum í Reykjavík (1-3).
Þessi aðferð virtist samkvæmt rannsóknum hafa vissa
yfirburði miðað við hefðbundnar opnar aðgerðir, svo
sem minni verki, styttri legutíma sjúklinga eftir aðgerð
og skemmri tíma til að ná aftur fyrri fæmi (4,5).
Við framkvæmdum framsæja rannsókn á tímabil-
inu júlí 1992 til febrúar 2001 og bárum árangur af gall-
blöðranámi með kviðsjártækni á FSA saman við ár-
angur annarra sjúkrahúsa. Athuguð var tíðni fylgi-
kvilla og breytingar yfir í opna aðgerð, auk þess sem
lengd sjúkrahúsdvalar og tími til fyrri fæmi voru at-
huguð.
ENGLiSH SUMMARY
Arnarson A, Hauksson H, Marteinsson VÞ, Albertsson
SM, Datye S
Laparoscopic cholecystectomy. The first 400
cases at Akureyri Central Hospital
Læknablaðið 2003; 89: 35-40
Objective: To assess the outcome of the first 400
laparoscopic cholecystectomies (LC) in Akureyri Central
Hospital (FSA), lceland.
Methods: We carried out a prospective study of LCs
performed between July 1992 and February 2001. Primary
endpoints were complication- and conversion rate,
hospital stay and duration of convalescence.
Results: A total of 426 operations were performed in the
period. In 26 cases it was decided beforehand to perform
an open cholecystectomy (OC). A LC was begun on 400
patients. Indication for operation was acute cholecystitis in
41 cases (10,3%) and an elective LC was performed in
359 (89,7%) cases. Conversion to OC was required in
sixteen (4%) cases with a conversion rate in acutely
performed LCs of 12,2% versus 3,1% in elective LCs.
Mean hospital stay after LC was 3,6 days (1-45) versus
12,3 days (4-31) after OC. Mean operation time was 89
minutes (45-270) in the first 100 LCs versus 75 minutes
(30-180) in the last 100 LCs. Duration of convalescence of
patients undergoing LC was 13,5 days (4-70). Complica-
tion rate in LCs was 10% (40/400). Four patients required
a reoperation.
Conclusions: Our results show that LC is a safe
procedure in FSA. Conversion rate to OC, complication
rate and duration of convalescence stands good
comparison to other studies.
Key words: laparoscopic cholecystectomy, complications,
conversion rate, hospital stay.
Correspondance: Aðalsteinn Arnarson,
aarnarson@hotmail. com
Efniviður og aðferðir
Upplýsingar um sjúklinga sem fóru í gallblöðrunám á
fyrrgreindu tímabili voru skráðar inn í gagnagrunn
(FileMaker Pro). Auk einkenna fyrir innlögn voru
niðurstöður helstu rannsókna á gallblöðrusteinasjúk-
dómnum, upplýsingar um aðgerðina sjálfa og fylgi-
kvilla hennar, niðurstöður vefjagreiningar og upplýs-
ingar um líðan sjúklinga eftir aðgerð skráðar. Upp-
lýsingar um lengd vinnutaps og/eða tíma þar til fyrri
færni var náð voru fengnar við eftirlit hjá viðkomandi
lækni eða hjá heimilislækni. Hringt var í sjúklinga ef
Læknablaðið 2003/89 35