Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2003, Side 62

Læknablaðið - 15.01.2003, Side 62
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MINNING Mínníng Arinbjörn Kolbeinsson heiðursfélagi LR og LÍ Fæddur 29. apríl 1915 - Dáinn 19. nóvember 2002 Arinbjörn Kolbeinsson var í ritstjórn Læknablaðs- ins árin 1970 til 1976 og er hans minnst hér meðal annars og sérstaklega af því tilefni. Hann var ritari í stjórn Læknafélags Reykjavíkur 1957 til 1959 og síðan formaður félagsins 1959 til 1963. Á þessu tímabili urðu tvenn afar mikilvæg um- skipti á högum lækna: Annars vegar var sérfræðing- um gert kleift að beita þekkingu sinni, án þess að vera neyddir til þess að stunda jafnframt heimilis- lækningar og hins vegar fékkst það staðfest af kjara- dómi sumarið 1963 að þar eftir skyldi greitt refjalaust fyrir vaktir. Samtímis var unnið ötullega innan læknasamtak- anna að tillögum um endurbætur á heilbrigðisþjón- ustunni og innan LR starfaði sérstök læknisþjónustu- nefnd, sem átti mjög samleið með Læknisþjónustu- nefnd Reykjavíkurborgar. í nóvember 1965 fóru þrír læknar til Norðurlandanna og Englands til þess að kanna skipulag þjónustunnar á þeim slóðum, þeir Arinbjörn Kolbeinsson, tilnefndur af LR, Pórarinn Guðnason, tilnefndur af LÍ, og Páll Sigurðsson, til- nefndur af Reykjavíkurborg. Skýrsla þeirra félaga birtist í Læknablaðinu í desember sama ár og er hún enn holl lesning þeim, sem velta fyrir sér lausnum á því vandræðaástandi, sem á ný ríkir í læknisþjón- ustunni. Sumarið 1966 birtust skýrsla og tillögur Læknis- þjónustunefndar Reykjavíkurborgar, sem læknasam- tökin áttu aðild að, og skömmu síðar voru settar fram fyrstu hugmyndir um skipulag heilsugæzlunnar á landsbyggðinni til langframa, en þá blasti við hrun þjónustunnar þar vegna búferlaflutninga fjölda hér- aðslækna á höfuðborgarsvæðið og nánast engrar ný- liðunar. Þegar Arinbjörn varð formaður LI sumarið 1967 tók hann þegar höndum saman við landsbyggðar- læknana og skömmu síðar var haldin ráðstefna um vanda landsbyggðarinnar og voru þar kynnt glæný gögn, sem sýndu, svo ekki varð um villzt, að við svo búið mátti ekki standa. Smiðshöggið á stefnu LI var síðan rekið með síðari ráðstefnunni í Domus Medica haustið 1968. Læknafélag fslands studdi heils hugar undirbúning laga um heilbrigðisþjónustu og ekki spillti fyrir framgangi frumvarpsins, sem lagt var fram til kynn- ingar 1971, að þar voru þeir enn samstíga ferðafélag- arnir frá 1965. Kynni mín af Arinbirni hófust þegar ég kom á Bar- ónsstíginn eftir fyrsta hluta próf fyrir rúmum fjórum áratugum og samstarf okkar hófst í stjórn LÍ1967. Þá þegar fór af honum mikið orð sem félagsmálamanni og fljótlega komst ég að raun um það, að hann var eldfljótur að átta sig á flóknum málum og skynja hvert hugur viðmælenda stefndi. Pegar hann hafði bætt við sínum viðhorfum. var jafnan komizt að nið- urstöðu í anda þess, sem Bismarck hafði á orði, að stjórnmál eru list hins gerlega. Þegar ákveðið hafði verið hvað gera skyldi, kunni Arinbjöm þá list einnig, að láta öðrum eftir að framkvæma. Ég þakka það að hafa átt samfylgd með honum um hríð og óska læknasamtökunum þess, að þau eignist marga hans líka. Örn Bjarnason 62 Læknablaðið 2003/89

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.