Læknablaðið - 15.01.2003, Síða 7
RITSTJÓRNARGREINAR
Veldur fræðsla um
læknisfræðilegt efni sjúkdómum?
Þegar ég fór að íhuga efni
þessarar ritstjónargreinar
ákvað ég að láta hugann reika
og fara yfir farinn veg í námi
og starfi mínu sem læknir.
Eftir langt og strangt bóklegt
nám kom að því að kynnast
fólki sem naut þess að leið-
beina og fræða um allt sem
varðaði sjúklinga og sjúk-
dóma. í sérnáminu verður
þetta ennþá áhrifameira og
virðingin fyrir góðum kennara er oftast takmarka-
laus. Unglæknar gera sér fljótt grein fyrir þeirri
skyldu sinni sem getið er í Codex Ethicus að
fræðsla sé mikilvægur þáttur í starfi læknisins. En
beinist sú fræðsla einungis að nemendum í heil-
brigðisfræðum, það er læknanemum, hjúkrunar-
nemum og öðrum, eða beinist hún ef til vill líka að
öðru fólki? Okkur finnst eðlilegt og sjálfsagt að
fræða sjúklinga okkar um þá sjúkdóma sem kunna
að herja á þá og gera þeim grein fyrir meðferð og
horfum.
Niðurstöður vandaðra vísindarannsókna á síð-
astliðnum áratugum hafa fært okkur þekkingu sem
auðveldar greiningu og meðferð sjúkdóma. Þær
hafa jafnframt leitt í ljós skýrari mynd af tilurð sjúk-
dóma sem við getum nýtt í forvarnarstarfi til að
minnka áhættu á að fá ákveðna sjúkdóma. Lækn-
um ber skylda til að koma þessari þekkingu á fram-
færi við aðra heilbrigðisstarfsmenn og einnig til al-
mennings svo að lærðir og leikir geti nýtt sér þá
vitneskju í leik og starfi. En er það eitthvað nýtt að
fræða almenning um heilsufræði og þurfum við endi-
lega að tengja það sjúkdómsvæðingu?
Á undanfömum árum hef ég oft gripið til sér-
stakrar bókar í bókaskáp mínum. Bók þessi heitir
Heilsurœkt og mannamein og var gefin út 1943. Þar
segir í formála:
Hlutverk þessarar bókar er fyrst og fremst að
flytja almenningi þann fróðleik sem er nauðsyn-
legur til að komast hjá ýmsum heilsuspjöllum sem
stafa af vanþekkingu og jafnframt að gefa leið-
beiningar, sem læknavísindi vorra tíma geta gefið
beztar, ekki einungis til að forðast veikindi, held-
ur einnig til að öðlast sem mestan lífsþrótt og
starfsþrek og stuðla þannig að aukinni lífsgleði.
Að ritun bókarinnar komu okkar virtustu lækn-
ar á þessum tíma, en hún var fyrst og fremst skrifuð
Höfundur er sérfræðingur í meltingarsjúkdómum og starfar á
meltingarsjúkdómadeild St. Jósepsspítala í Hafnarfirði og á
Landspítala - háskólasjúkrahúsi.
fyrir almenning. Þeir töldu að sú þekking um heil-
brigðismál sem þeir og aðrir læknar höfðu á þess-
um tíma ætti fullt erindi til íslendinga. Mér er tjáð
að bókin hafi verið feikilega vinsæl og mikið lesin.
En í formála bókarinnar segir jafnframt:
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið, og um heilsu
manna gildir umfram allt að haga lífi sínu þannig,
að heilsu sjálfs manns og annarra verði sem
minnst hætta búin, því ókleift getur reynzt að
lækna sjúkdóm, sem lengi hefur búið um sig, ef til
vill vegna vanþekkingar á heilbrigðum lifnaðar-
háttum.
Þessi orð voru rituð fyrir nær 60 árum og má án
efa rita hvar sem er í dag án athugasemda. Ólíklegt
er að þetta framtak og sú fræðsla sem finna má í
bókinni hafí búið til sjúkdóma eða heilbrigðisvanda-
mál, heldur miklu fremur stuðlað að heilbrigðara lífi
í landinu. Þama höfðu margir kollegar okkar auga
fyrir mikilvægi þess að fræða og auka þekkingu al-
mennings. í lok formála bókarinnar, sem er 715
blaðsíður, er rætt frekar um efni hennar: Læknavís-
indi nútímans nota margbrotnari og tímafrekari
rannsóknaraðferðir en nokkum tíma áður, og þar
sem almenningi virðist ganga illa að skilja hvers
vegna svo mikils umstangs þurfi með til að rannsaka
sjúkdóma, er gerð grein fyrir mörgum helstu rann-
sóknaraðferðum við ýmsa sjúkdóma, svo menn fái
skilið hvers vegna rannsóknir séu gerðar.
Bókin var áhrifamesti miðillinn á þessum tíma.
Nú er öldin önnur og tími útvarps, sjónvarps, dag-
blaða og netsins í hávegum. í dag erum við í upp-
lýsingasamfélagi og það er mikilvægt að koma
fræðslu til fólks en jafnframt er auðvelt að gefa því
rangar upplýsingar. Ábyrgð okkar sem störfum í
heilbrigðisþjónustunni er því mikil og réttar upp-
lýsingar skipta sköpum. Þess vegna verður að vanda
til verka þegar koma skal mikilvægum upplýsing-
um um heilbrigði og sjúkdóma til almennings. Á
undanfömum ámm em mörg dæmi um það hér á
landi að slíkur fróðleikur er vel úr garði gerður og
gjaman ræddur af mörgum sem koma að vanda-
málinu. Þar hefur verið lögð áhersla á ábyrgð ein-
staklingsins á eigin heilsu og bent á þekkta áhættu-
þætti, heilbrigða lifnaðarhætti og forvarnir hafðar í
fyrirrúmi. Leitast er við að hafa framsetningu
fræðslunnar nútímalega og vel skipulagða til að ná
til flestra með besta mögulega árangri. Jafnframt
er varfæmi gætt í allri umræðu, eftir því sem kostur
er.
Aukin þekking er af hinu góða og vart er hægt
að hugsa sér að góð fræðsla skapi vandamál ef hún
er vel ígrunduð og skynsamleg. Þarna em sóknar-
færi okkar til að bæta líf og lífshorfur fólks í ljósi
Ásgeir
Theodórs
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir
handrita til ritstjórnar
Læknablaðsins, Hlíðasmára
8,201 Kópavogi. Annað án
nafna höfunda, stofnana og
án þakka sé um þær að
ræða. Greininni fylgi
yfirlýsing þess efnis að allir
höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir
afsali sér birtingarrétti til
blaðsins.
Handriti skal skilað með
tvöföldu línubili á A-4
blöðum. Hver hluti skal
byrja á nýrri blaðsíðu
í eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar,
stofnanir, lykilorð á ensku
og íslensku
• Ágrip og heili greinar
á ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og myndir skulu vera
á ensku eða íslensku, að vali
höfunda.
Tölvuunnar myndir og gröf
komi á rafrænu formi ásamt
útprenti. Tölvugögn (data)
að baki gröfum fylgi nteð,
ekki er hægt að nýta myndir
úr PowerPoint eða af
netinu.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi
með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
http://lb.icemed.is/
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. undanfarandi
mánaðar nema annað sé
tekið fram.
Læknablaðið 2003/89 7