Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2003, Side 44

Læknablaðið - 15.01.2003, Side 44
FRÆÐIGREINAR / STOFNFRUMUR endurforrita kjarna fullorðinna fruma þannig að þeir geta myndað allar frumur líkamans. Einnig hafa ný- legar rannsóknir á vöðvafrumum í rækt sýnt að unnt er að fá þær til að afsérhæfast og síðan sérhæfast í ýmsar frumugerðir auk vöðvafruma (2). Rannsóknir á stofnfrumum úr fósturvísum eiga sér langa sögu og í gegnum tíðina hafa orðið til mis- munandi stofnfrumulínur, allar með sína sérstöku eiginleika. Flestar þessara frumna hafa verið ræktað- ar úr fósturvísum músa. Yfirleitt er hæfileiki stofn- frumna úr fósturvísum til að sérhæfast í hinar ýmsu frumutegundir prófaður á þrennan hátt: I fyrsta lagi er athugað hvort frumurnar geti sérhæfst í hin þrjú kímlög fóstursins (miðlag, útlag, innlag) í frumurækt. í öðru lagi er prófað hvort frumurnar geti myndað furðuæxli (teratocarcinoma) þegar þeim er komið fyrir í músum. Furðuæxli eru krabbamein sem oft geyma sérhæfða vefi (jafnvel hár eða tennur) en þannig er geta frumnanna til að sérhæfast könnuð. í þriðja lagi er prófað hvort frumurnar geti tekið þátt í myndun allra frumugerða (þar með talið kynfrumna) í músum með myndun blendinga (chimeras). Frumunum er þá komið fyrir í kímblöðru fósturvísis músar sem síðan er komið á legg og athugað hvort stofnfrumurnar lögðu sitt til myndunar allra vefja dýrsins sem til varð. Um 1970 tókst að rækta svokallaðar Embryonic Carcinoma (EC) frumur úr furðuæxlum sem fundust í eistum músa (3). Frumur þessar líkjast fósturfrum- um í útliti og eru ósérhæfðar, þær er auðvelt að rækta auk þess sem þær geta sérhæfst í ýmsar frumugerðir. Ef frumum þessum er blandað við kímblöðru fóstur- vísa músa verða til blendingar (chimeras) og geta EC frumumar tekið þátt í myndun allra vefja nema kyn- frumna. Frekari rannsóknir leiddu í ljós að frumur þessar eru áhugaverðar en hafa takmarkað notagildi þar sem flestar þeirra eru mislitna (aneuploid). Auk þess eiga þær uppruna sinn í krabbameinum og koma því ekki úr eðlilegu umhverfi. Árið 1981 tókst tveimur rannsóknahópum að út- búa stofnfrumur úr innanfrumumassa músafóstur- vísa á kímblöðrustigi (4,5). Innanfrumumassi fóstur- vísis eru einsleitar ósérhæfðar frumur sem þroskast smám saman í hið eiginlega fóstur. Utan um þær er þunnt frumulag sem nefnist trophoectoderm og mynd- ar fylgjuna á síðari stigum þroskunar. Fram til þessa hafði ekki tekist að viðhalda frumum úr innanfrumu- massa í ósérhæfðu ástandi í rækt en bæði Evans og Kaufman (5) og Martin (4) tókst að rækta Embry- onic Stem (ES) frumur úr innanfrumumassa með því að rækta frumurnar á „feeder“ stoðfrumum (sjá skil- greiningar) auk 2-mercaptoethanols og 10-20% kálfa- sermis. Línur af ES-frumum voru útbúnar með því að viðhalda þeim frumum sem virtust ósérhæfðar en henda hinum. Til að halda ES-frumum ósérhæfðum verður að rækta þær með stoðfrumunum eða með vaxtarþættinum LIF (leukemia inhibitory factor). Ef stoðfrumur eða LIF vantar í ætið, sérhæfast ES-frum- umar fljótlega í hinar ýmsu frumugerðir. Rannsóknir sýndu að ES-frumurnar eru fjölhæfar í öllum þremur sérhæfniprófunum og gátu meira að segja myndað kynfrumur í blendingum. Hvorki ES-frumur né frum- ur úr innanfrumumassa geta þó sérhæfst í þær frumur sem mynda trophectoderm frumulagið og teljast því fjölhæfar en ekki alhæfar. ES-frumumar eru eðlileg- ar hvað litningasamsetningu varðar. Þegar þær taka þátt í myndun kynfrumna hefur erfðaefni ES-frumn- anna verið flutt yfir í næstu kynslóð og hefur þessi eiginleiki verið mikið notaður til að útbúa erfða- breyttar mýs þar sem unnt er að breyta erfðaefni ES- frumnanna að vild. Þriðja gerðin af stofnfrumum úr fósturvísum var útbúin 1992 með því að rækta forvera kynfrumna (primordial germ cells), en þær má finna í kynkambi (gonadal ridge) fósturvísisins á ákveðnu stigi þrosk- unar (6,7). Þessir forverar kynfrumna myndast snemma í þroskun músarinnar en kynkamburinn sjálfur verð- ur þó ekki til fyrr en síðar. Stofnfrumur sem ræktaðar eru úr kynkambi nefnast Embryonic Gonadal (EG) frumur og eins og ES-frumur þurfa þær stoðfrumur, LIF og serum til vaxtar en auk þess þurfa þær vaxtar- þættina Mast cell Growth Factor (MGF) og bFGF (basic Fibroblast Growth Factor). Frumur þessar eru fjölhæfar og að mörgu leyti hafa þær svipaða eigin- leika og ES-frumur. Þær geta meðal annars tekið þátt í myndun kynfrumna í blendingsfóstri. Þessar þijár gerðir af stofnfrumum, EC-, ES- og EG-frumur, en þó einkum þær tvær síðastnefndu, hafa verið mikið notaðar til rannsókna á fjölhæfi frumna í músum. Sem dæmi má nefna að nýlega voru ES-frum- ur notaðar til að útbúa eðlilega starfhæfar dópamín- myndandi frumur í músamódeli fyrir Parkinsons sjúk- dóm (8). Einnig tókst Rideout og fleiri (9) að mynda blóðmyndandi stofnfrumur úr ES-frumum og laga með því ákveðinn erfðagalla músanna. Af þessu er ljóst að í músum hafa frumur þessar skapað spennandi möguleika. Einnig er ljóst að af rannsóknum þessum má ýmislegt læra um notkun stofnfrumna til lækninga. En hvað um stofnfrumur úr fósturvísum manna? Fyrir um fjórum árum síðan tókst James Thomson og fleiri (10) að rækta ES-stofnfrumur úr fósturvísum manna á kímblöðru stigi. Fósturvísarnir sem notaðir voru í þessum tilraunum voru fósturvísar sem höfðu orðið til við glasafrjóvganir en átti ekki að nota frek- ar og voru því gefnir til rannsókna með upplýstu sam- þykki. Ræktun stofnfrumna úr fósturvísum manna fór fram á svipaðan hátt og ræktun ES-frumna úr músum: innanfrumumassinn var skorinn frá og frumumar rækt- aðar á stoðfrumum úr músum í návist valinna vaxt- arþátta. Valið var fyrir ósérhæfðum frumum sem líkj- ast ES-frumum músa og tókst að rækta nokkrar línur slíkra frumna úr mannafóstrum. Þessar fyrstu ES- frumur sem voru útbúnar úr mönnum kröfðust þess að þær væru ræktaðar á stoðfrumum en nýlega hefur tekist að rækta ES-frumur manna án stoðfrumna en í 44 Læknablaðið 2003/89

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.