Læknablaðið - 15.01.2003, Page 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRÁ LANDLÆKNISEMBÆTTINU
í tilefni pess að nú eru tæp þrjú ár frá því vinna við
klínískar leiðbeiningar hófst á vegum Landlæknis-
embættisins viljum við kynna þær erlendu stofnanir
sem við teljum skara fram úr á þessu sviði. I öllum til-
vikum standa heilbrigðisyfirvöld að stofnununum og
meginmarkmið þeirra er að bæta gæði, auka skil-
virkni (effectiveness) og jafnræði í heilbrigðisþjón-
ustu með gerð, kynningu og hagnýtingu (implemen-
tation) á klínískum leiðbeiningum sem byggja á gagn-
reyndri læknisfræði (evidence based). Sjúklingum/al-
menningi og heilbrigðisstarfsfólki eru veittar áreið-
anlegar leiðbeiningar um „bestu vinnubrögð" (best
practice) á hveijum tíma. I sumum tilvikum standa
stofnanirnar líka að þjálfun heilbrigðisstarfsfólks í
gerð og kynningu á klínískum leiðbeiningum. Von-
umst við til að læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk
geti sótt gagnlegar upplýsingar á þessa staði þótt
listinn sé ekki tæmandi.
Statens beredning för medicinsk utvardering (SBU)
var stofnuð 1978 í þeim tilgangi að vinna gagnrýnið úr
rannsóknum á heilbrigðistækni. Mat þeirra nær bæði
til nýrrar tækni og tækni sem er í almennri notkun
innan heilbrigðisgeirans. Yfir 50 skýrslur hafa verið
birtar eftir útgáfudagsetningu á
www.sbu.se/admin/
New Zealand Guideline Group var stofnað 1996 með
það að meginmarkmiði að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk
í gerð og kynningu gagnreyndra klínískra leiðbein-
inga. Á árunum 1998 til 2002 hafa verið birtar um 40
leiðbeiningar og er þeim raðað í efnisröð. Sjá
www.nzgg.org.nz/library.cfm
United States Preventive Services Task Force
(USPSTF) í Bandaríkjunum eru þverfagleg samtök
sem vinna að gerð og útbreiðslu klínískra leiðbein-
inga sem byggja á gagnreyndri læknisfræði.
odphp. osophs. dhhs.gov/pubs
National Health and Medical Research Council
(NHMRC) í Ástralíu eru þverfagleg samtök sem
vinna meðal annars að gerð og útbreiðslu klínískra
leiðbeininga sem byggja á gagnreyndri læknisfræði.
Yfir 40 leiðbeiningar hafa verið birtar eftir útgáfu-
dagsetningu á
www.health.gov.au/nhmrc/publications/
*
NHMRC
Canadian Task Force on Preventive Health Care
(CTFPHC www.ctfphc.org/) sem var stofnað 1976
hefur þróað mjög fágaða aðferðafræði við mat á gæð-
um rannsókna sem nota á við gerð klínískra leiðbein-
inga. Aðferðafræði þessi er meðal annars notuð af
United States Preventive Services Task Force sem
einnig hefur náið samstarf á öðrum sviðum við
CTFPHC. Nú er búið að vinna leiðbeiningar um yfir
200 heilbrigðistengd efni.
Canadiam
TaskForceon
Pfeventive Heauh Care
Groupe
D1 É1UDE CANADIEN SUR
lesSoinseeSanté Préventifs
The Scottish Intercollegiate Guidelines Network
(SIGN) sem var stofnað 1993 og myndar þetta net
fjöldi lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna. ÖII
læknafélög og sérgreinafélög í Skotlandi eiga fulltrúa
þarna, auk fulltrúa frá hjúkrunarfræðingum, lyfja-
fræðingum, tannlæknum og öðrum starfsgreinum sem
tengjast heilbrigðismálum. SIGN hefur þegar birt 64
leiðbeiningar. Sjá lista í birtingarröð á
www. show. scot.nhs.uk/sign/guidelines
National Institute for Clinical Excellence (NICE) var
stofnað í apríl 1999 sem sérstök heilbrigðisstofnun
(Special Health Authority) fyrir England og Wales.
Stofnunin er hluti af National Health Service (NHS)
og stendur að útgáfu annars vegar á klínískum leið-
beiningum (níu birtar) og hins vegar heilbrigðis-
tækniúttektum (health technologies (including medi-
cines, medical devices, diagnostic techniques, and
procedures)) sem nú eru rúmlega 50 talsins og má
nálgast á
www.nice.org.uk
Guideline Development Department, Dutch Institute
for Healthcare Improvement (CBO) www.cbo.nl/.
Yfir 50 skýrslur hafa verið birtar en einungis á hol-
lensku enn sem komið er. Sjá
www.cbo.nl/ product/ richtlijnen/
Stýrihópur um
klínískar
leiðbeiningar
Ari Jóhannesson læknir /
formaður
Einar Magnússon
lyfjafræðingur
Gunnar Tómasson læknir
Halldór Jónsson læknir
Haukur Valdimarsson læknir
Rannveig Einarsdóttir
klínískur lyfjafræðingur
Sigurður Guðmundsson
landlæknir
Sigurður Helgason læknir /
ritstjóri
Sveinn Magnússon læknir
Vakin er athygli á að með því að nota vefútgáfu
Læknablaðsins er auðvelt að smella beint á slóðirnar
til að komast á viðkomandi heimasíður.
National Health &
Medical Research Council
Læknablaðið 2003/89 61