Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 75

Læknablaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 75
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 33 Rauðhært barn og von á öðru Rauðhærða barnið Hjón af japönsku bergi brotin eignuðust dóttur með rautt hár. Manninum var sérstaklega brugðið við fæð- inguna og bað um að fá að hitta fæðingarlækninn. „Ég veit varla hvaðan á mig stendur veðrið og ég er í miklu uppnámi. Konan mín var að eignast dóttur sem er rauðhærð. Það getur ekki verið að ég sé pabbinn.“ „Hvaða vitleysa,“ sagði læknirinn. „Þú og konan þín eruð bæði með svart hár, en einhvern tímann á ár- um áður hefur einhver forfaðir ykkar blandað rauðu hári við fjölskyldugenin." „Heyrðu nú læknir, þú verður að tala í alvöru. Þú veist að báðar ættir okkur eru austurlenskar út í gegn eins langt aftur í tímann og hægt er að rekja.“ „Nú já,“ sagði læknirinn. „Leyfðu mér þá að spyrja hversu oft hafið þið hjónin samfarir?" „Ég hef unnið geysilega mikið undanfarið ár. Ætli ég hafi ekki sofið hjá konunni minni svona einu sinni til tvisvar í mánuði.“ „Sko, þarna hefur þú svarið,“ sagði læknirinn. „Þetta er ryð, minn kæri, þetta er bara ryð.“ Engar lappir Maður kom til geðlæknis. „Ég er í vandræðum. f hvert skipti sem ég ætla að fara að sofa finnst mér einhver vera undir rúminu mínu. Þegar ég skríð svo undir rúmið finnst mér einhver liggja ofan á því. Læknir, þú verður að hjálpa mér.“ „Það ætti að vera hægt að hjálpa þér en til þess þarftu að koma til mín á stofuna þrisvar í viku næstu tvö árin.“ „Og hvað tekurðu fyrir það?“ „Þrjúþúsund krónur fyrir viðtalið,“ sagði læknirinn. „Það er hell- ings peningur," sagði maðurinn. „Það er best að ég hugsi málið og láti þig svo vita.“ Sex mánuðum seinna hittust geðlæknirinn og mað- urinn á götu. „Af hverju komstu ekki aftur til mín?“ spurði læknirinn. „Blessaður vertu, mér fannst þú allt- of dýr. Svo sagði frændi minn mér að saga lappirnar undan rúminu, sem ég og gerði og nú sofna ég án vand- kvæða og sef eins og engill.“ Umbun Sukk „Er það satt að þú reykir átta til tíu vindla á dag?“ „Já, það er satt.“ „Er það satt að þú drekkir fimm viskísjússa á dag?“ „Já, það er satt.“ „Er það satt að þú sért umvafinn ungu, íturvöxnu kvenfólki eins og í gamla daga?“ „Já, það er satt.“ „Hvað segir læknirinn þinn við þessu?“ „Læknirinn minn náði ekki að lifa jafnlengi og ég.“ Fyrsta barn Læknir á vakt á fæðingardeildinni var að ræða við unga, verðandi móður, sem komin var til að fæða. „Er þetta fyrsta barnið þitt?“ spurði læknirinn. „Já,” svaraði konan af mikilli stillingu. „Finnur þú fyrir samdrætti eða þrýstingi?“ „Nei.“ „Finnur þú fyrir einhverjum óþægindum?" „Nei.“ Læknirinn varð mjög undrandi. „Þú verður að fyrir- gefa þótt ég spyrji, en hvers vegna komslu til okkar á fæðingardeildina í dag?“ „Nú, það er í dag sem ég á von á mér.“ í góðu formi „Þú ert alveg ótrúlega vel á þig kominn,“ sagði lækn- irinn við eldri herra sem kominn var í árlegt eftirlit. „Hvað ertu nú aftur gamall, Jón minn?“ „Ég er sjötíuog átta ára,” svaraði Jón. „Hvernig ferðu að því að halda þér svona vel? Þú lítur út eins og sextugur." „Þegar við hjónin giftum okkur fyrir fimmtíu og tveimur árum gerðum við samkomulag um að í hvert skipti sem okkur yrði sundurorða þá færi konan inn í eldhús til að ná sér niður og ég færi út úr húsi þangað til hún jafnaði sig.“ „Það er gaman að heyra hvemig þig hafið leyst málin, en hvernig skýrir það þessa góðu heilsu þína?“ „Ég hef varið mestum hluta ævi minnar í útivist." Bjarni Jónasson bjarni.jonasson @gb.hgst.is „Læknir, ég fæ seint fullþakkað þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Hvernig get ég endurgoldið þér?“ „í peningum.“ Læknablaðið 2003/89 75
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.