Læknablaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 21
FRÆÐIGREINAR / BERATlÐNI GBS í ÞUNGUN
Gefnar voru fimm milljón einingar fyrst og eftir
það tvær milljón einingar á fjögurra klukkustunda
fresti þar til barnið fæddist. Ef um staðfest
penisillínofnæmi var að ræða hjá konunni var sýkla-
lyfjagjöf sleppt. Ef grunur um ofnæmi var óstað-
festur var gefið cefradín (Velocef®), 1 g, á fjögurra
klukkustunda fresti, í stað penisillíns, þar til barnið
fæddist.
Eftirlit
Nýfæddu börnin voru skoðuð nákvæmlega af barna-
lækni og fýlgst með lífsmörkum þeirra fyrstu einn til
tvo sólarhringana eftir fæðingu.
Rannsóknin var samþykkt af siðanefnd Landspít-
alans (26.01.1994).
Niðurstöður
GBS beratíðni á meðgöngu
Alls voru tekin strok frá 280 konum og reyndust 68
þeirra (24,3%) hafa að minnsta kosti eina jákvæða
ræktun fyrir GBS. Við 23 vikna meðgöngu voru tekin
ræktunarsýni frá 270 konum og var ræktun jákvæð
fyrir GBS hjá 53 (19,6%) kvennanna. Við 36 vikna
meðgöngu fengust jákvæð sýni hjá 53 konum af 259
(20,5%) og í fæðingu hjá 40 konum af 250 (16%) (sjá
mynd 1).
Samtals voru tekin 779 ræktunarsýni frá hvorum
stað, leggöngum og endaþarmi.
I 72 tilvikum reyndust sýni frá báðum stöðum já-
kvæð fyrir GBS, í 49 tilvikum eingöngu endaþarms-
sýni og einungis leggangasýni í 18 tilvikum. Frá þeim
68 konum sem voru GBS berar reyndust þannig 90
sýni frá leggöngum jákvæð fyrir GBS en 121 sýni já-
kvætt frá endaþarmi og er það staðtölulega marktæk-
ur munur (p= 0,0021).
Jákvætt forspárgildi reyndist 64% þegar sýni var
tekið við 23 vikna meðgöngu sem þýðir að 64%
þeirra kvenna sem höfðu jákvæða GBS ræktun við 23
vikna meðgöngu voru GBS berar í fæðingunni. Já-
kvætt forspárgildi var 78% þegar sýni var tekið við 36
vikna meðgöngu.
Neikvætt forspárgildi við 23 vikna meðgöngu var
95%. Þannig reyndust fáar konur sem höfðu nei-
kvæða GBS ræktun við 23 vikna meðgöngu, vera
GBS berar í fæðingunni.
Neikvætt forspárgildi við 36 vikna meðgöngu var
99% (tafla 1).
GBS smitun frá móður til barns
Teknar voru yfirborðsræktanir frá 234 barnanna og
reyndust 12 þeirra hafa jákvæða ræktun í að minnsta
kosti einu sýni. Mæður flestra þessara barna, eða
samtals 10, höfðu jákvæða GBS ræktun í fæðingunni
en ekki áhættuþátt. Hinar tvær höfðu jákvæða GBS
ræktun við 36 vikna meðgöngu en neikvæðar GBS
ræktanir í fæðingunni.
%
25-i
Tafla 1. Forspárgildi um jákvæða GBS ræktun við fæðingu reyndist vera 64% þegar konan var GBSjákvæð við 23 vikna meðgöngu en 78% við 36 vikna meðgöngu. Á sama máta var forspárgildi um neikvæða GBS ræktun við fæðingu 95% við 23 vikna meðgöngu og 99% við 36 vikna meðgöngu.
Meögöngulengd Jákvætt Neikvætt
23 vikur 36 vikur 64% 95% 78% 99%
Mynd 1. Hlutfall kvenna
með jákvœð rœktunarsýni
var 19,6% við 23 vikna
meðgöngu, 20,5% við 36
vikna meðgöngu og 16%
þegar konurnar komu til
að fœða á Kvennadeild
Landspítalans.
Þannig reyndust 5% allra barnanna í rannsókn-
inni hafa jákvæða GBS ræktun. Ef móðirin var GBS
beri þegar kom að fæðingunni, smituðust tíu börn af
40 (25%). Eitt barn í rannsókninni var grunað um
blóðsýkingu, en blóðræktanir voru neikvæðar. Ekk-
ert hinna barnanna í rannsókninni veiktist og því var
ekki tekið blóð til ræktunar frá neinu þeirra.
Umræða
Beratíðni meðal þungaðra kvenna á íslandi reyndist
vera 24,3%, sem er svipað og fundist hefur í erlend-
um rannsóknum þar sem tíðnin í hinum vestræna
heimi er á bilinu 10 til 30% (4,7,21-23).
Þekkt er að konur geta borið GBS í meltingarvegi
og leggöngum án þess að hafa einkenni og geta enn-
fremur haft einkennalausa sýkingu í þvagi (4, 5, 7).
Við leit að slíkum GBS berum hefir reynst árangurs-
ríkast að rækta sýni bæði frá leggöngum og enda-
þarmi (4, 18-20). í þessari rannsókn voru eingöngu
endaþarmssýni jákvæð fyrir GBS í 49 tilvikum sem
sýnir vel þýðingu ræktunar frá endaþarmi.
Hafa ber í huga að í sumum tilvikum er ekki
mögulegt að sýna fram á tilvist GBS í leggöngum
samfellt alla meðgönguna, heldur einungis á ákveðn-
um tímabilum (4,20,22).
Því er álitamál hvenær á meðgöngunni er best að
taka sýni til ræktunar. Sýnt hefur verið fram á að
sýnataka á 26. til 28. viku meðgöngu er góð aðferð til
að finna GBS bera (4, 5,12,16-18). Með sýnatöku á
23. til 24. viku meðgöngu má finna GBS bera á þeim
Læknablaðið 2003/89 113
L