Læknablaðið - 15.02.2003, Side 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 25
Faraldsfræði í dag
Réttmæti rannsóknarniðurstaðna
Hugtakið rÉttmæti eða sannleiksgildi (validity) og
mismunandi notkun þess verður umfjöllunarefni
þessa pistils og nokkurra annarra. Hugtakið er víða
notað í faraldsfræði en einkum í þrennu samhengi. I
fyrsta lagi er hugtakið notað til að lýsa gæðum og
notagildi rannsóknarniðurstaðna. I öðru lagi er það
eitt nokkurra hugtaka er notuð eru til að lýsa gæðum
gagna eða upplýsinga sem safnað er til rannsókna. I
þriðja lagi er það notað til að lýsa eiginleikum að-
ferða, til dæmis mælinga eða reiknilíkana sem notað-
ar eru til að meta, lýsa eða spá fyrir um samband til-
tekinna þátta, svo sem áhættuþátta og útkomu.
Þegar talað er um gæði rannsóknarniðurstaðna
almennt er í raun oftast átt við réttmæti þeirra eða
sannleiksgildi (validity). Sannleiksgildi niðurstaðna
eða annarra mælinga gefur til kynna að hve miklu
leyti þær endurspegla raunverulegt samband þeirra
þátta sem rannsaka átti, eða hve vel tókst til við að
mæla eða meta það samband. Niðurstaða er sögð
réttmæt eða hafa hátt sannleiksgildi ef hún segir rétt
til um það sem mæla átti.
Hugtakið réttmæti er þungt á metunum þegar
niðurstöður rannsókna eru metnar og túlkaðar á
gagnrýnan hátt. Innra sannleiksgildi (internal vali-
dity) tekur aðeins til þess rannsóknarhóps eða efni-
viðar sem lagður var til grundvallar og lýsir því að
hve miklu leyti niðurstöðurnar eru sannar innan þess
hóps, aðferðirnar viðeigandi og rétt notaðar og túlk-
unin viðeigandi og rökrétt (1). Innra sannleiksgildi
niðurstaðna vísar þannig til þess að í viðkomandi
rannsókn hafi viðeigandi aðferðum verið beitt og
skýrt og rétt greint frá niðurstöðum. Ef sagt er að
niðurstöður hafi innra sannleiksgildi er átt við að
ekki sé líklegt að þær séu til komnar af tilviljun eða
séu litaðar af skekkju eða röskun.
Ytra sannleiksgildi (external validity, generaliza-
bility) lýsir því hins vegar að hve miklu leyti er unnt
að heimfæra niðurstöður rannsóknar yfir á aðra
hópa en þá sem beinlínis voru lagðir til grundvallar
rannsókninni. Ytra sannleiksgildi byggir augljóslega
á því að innra sannleiksgildi sé ásættanlegt. Ef niður-
stöður eru ekki taldar réttar, ef þær endurspegla ekki
raunverulegt samband áhættuþáttar og útkomu
meðal þeirra er tóku þátt í rannsókninni, er tómt mál
að tala um hvort þær (niðurstöðumar) eigi við um
aðra hópa. Mat á innra sannleiksgildi byggir á að-
ferðafræðilegri úttekt á hönnun og framkvæmd rann-
sóknarinnar og hefur nokkuð almennt eða absolut
gildi. Ef rannsóknarhópar eru illa skilgreindir, ef
gögnum er safnað á óvandaðan hátt eða ef röngum
aðferðum er beitt við úrvinnslu, þá munu niðurstöð-
urnar ekki hafa innra sannleiksgildi. Mat á ytra sann-
leiksgildi byggir hins vegar á samanburði rannsókn-
arhópsins við aðra hópa og könnun á því að hvaða
marki niðurstöðurnar eiga við um hópa aðra en þá
sem rannsakaðir voru. Að hve miklu leyti eru ein-
staklingarnir sem þátt tóku í rannsókninni sambæri-
legir við þá sjúklinga sem við önnumst og viljum nýta
niðurstöðurnar fyrir? Eru hraustu sjálfboðaliðarnir
sem tóku þátt í rannsókninni sambærilegir við al-
menna sjúklinga sem leita sér læknishjálpar? Þannig
er ytra sannleiksgildi háð því upp á hvaða hópa við
viljum heimfæra niðurstöðurnar; fyrir ákveðna hópa
getur ytra sannleiksgildi rannsóknar verið ágætt en
afleitt fyrir aðra.
Þar sem innra sannleiksgildi er alger forsenda ytra
sannleiksgildis er mikilvægt að hafa hið fyrra að leið-
arljósi og láta það ganga fyrir við hönnun og fram-
kvæmd rannsókna. Ef til dæmis rannsóknarhópur er
mjög fjölbreytilega saman settur, með það fyrir aug-
um að tryggja að niðurstöður gildi fyrir sem flesta, er
almennt mun meiri hætta á skekkju og röskun þar
sem erfitt er að tryggja sambærilegar mælingar og
upplýsingaöflun hjá mjög fjölbreytilegum hópum (2).
Þá er verr af stað farið en heima setið því ekki er unnt
að byggja ytra sannleiksgildi á slíkum niðurstöðum
sem ekki hafa nægilegt innra sannleiksgildi.
Annar meginflötur á gæðum rannsóknarniður-
staðna er áreiðanleiki þeirra (reliability). Áreiðan-
leiki tekur til þess að hve miklu leyti mætti reikna
með sambærilegum eða sömu niðurstöðum ef rann-
sóknin væri endurtekin í sama þýði. I þessu tilliti velt-
ur áreiðanleiki fyrst og fremst á því hve stöðluð að-
ferðafræðin er og hve vel henni er lýst. Ef aðferðir við
til dæmis söfnun og meðferð gagna eru ekki staðlaðar
og fullkomlega ljósar er ekki unnt að endurtaka
gagnasöfnun og -vinnslu þannig að sambærilegt sé.
Áreiðanleiki rannsóknarniðurstaðna vísar fyrst og
fremst til grunngagnanna sem þær byggjast á og
verður fjallað um það frekar í næsta pistli.
Heimildir
1. Gehlbach SG. Interpreting the Medical Literature. McGraw-
Hill, 1993, önnur útgáfa.
2. Rothman KJ, Greenland S. Modern Epidemiology. Lippin-
cott-Raven, 1998, önnur útgáfa.
María
Heimisdóttir
mariahei@landspitali.is
Læknablaðið 2003/89 161