Læknablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 30
Durogesic
Janssen-Cilag, 930066 ( X
FORÐAPLÁSTUR; N 02 A B 03 R E
Hver forðaplástur inniheldur: Fentanylum INN, 2.5 mg (gefur frá
sér 25 míkróg/klst.), 5 mg (gefur frá sér 50 míkróg/klst.), 7,5 mg
(gefur frá sér 75 míkróg/klst.). eða 10 mg (gefur frá sér 100
míkróg/klst.), constit. q.s.
Ábcndingar: Langvinnir verkir sem eru næmir fyrir morfínlyfjum.
Skammtastærðir handa fullorönum: Skömmtun er
einstaklingsbundin og byggir á almennu ástandi sjúklings svo
og á fyrri sögu um notkun morfínlyfja. Hafi sjúklingur ekki
fengið sterk morfínlyf áður ber að stilla inn stuttverkandi
morfínlyf fyrst og síðan breyta þeim skammti yftr í Durogesic.
Skammtur lyfsins er svo endurskoðaður með jöfnu millibili
þar til æskilegum áhrifum er náð.
Þegar breytt er úr morfínlyfjum til inntöku eða stungulyfjum
yfir í Durogesic skal nota eftirfarandi til leiðbeiningar:
1 Leggið saman notkunina á sterkum verkjalyfjum síðasta
sólarhring.
2 Ef sjúklingurinn hefur notað annað lyf en morfín. breytið
þá yfir í jafngildisskammt af morfíni til inntöku.
(Sjá Sérlyfjaskrá vegna töflu um jafngildisskammta).
Skipta skal um plástur eftir 72 klst. Hæfilegur skammtur
fyrir hvern einstakling er fundinn með því að auka
skammtinn þar til verkjastillingu er náð. Fáist ekki
nægjanleg verkun af fyrsta plástri. má auka skammtinn
eftir 3 daga. Síðan er unnt að auka skammtinn á þriggja
daga fresti.
Þegar skipt er yfir á Durogesic eftir langvinna meðferð
með morfíni, hefur verið greint frá fráhvarfseinkennum
(þrátt fyrir nægilega verkjadeyfingu). Komast má hjá
fráhvarfseinkennum með því að minnka notkun smátt
og smátt hjá sjúklingum sem fá langvinna meðferð með
ópíóíðum. Ef fráhvarfseinkenni koma fram er ráðlögð
meðferð með stuttverkandi morfíni í lágum skömmtum.
Þurfi sjúklingurinn meira en 100 mfkróg/klst. má nota
fieiri en cinn plástur í senn.
Durogesic skal líma á efri hluta lfkamans cða á
upphandlegg og á ógeislaða, slétta, og heilbrigða húð.
Ef hár eru á staðnum ber að klippa þau af en ekki raka
en hárlaus svæði eru æskilegust. Ef þvo þarf svæöiö
áður en plásturinn er settur á. skal gera það með hreinu
vatni. Ekki má nota sápu, olíu, áburð eða önnur efni
sem geta ert húðina eða breytt eiginleikum hcnnar.
Húðin á að vera vel þurr áður en plástrað er.
Plásturinn skal líma á húðina strax eftir að pakkning
hefur verið opnuð. Plásturinn er festur með þvf að þrýsta
á hann með flötum lófa í um það bil 30 sekúndur. Allur
plásturinn og sérstaklega kantamir verða að liggja vel
að húðinni. Þegar skipt er um plástur skal hann settur
á annan stað. Fyrri stað má ckki nota fyrr en eftir nokkra
sólarhringa.
Skammtastærðir handa hörnum: Lítil reynsla er af
notkun lyfsins til meðferðar hjá bömum.
Frábendingar: Slævð öndun.
Varnaðarorð og varúðarreglur: Aukinn heilaþiýstingur,
minnkuð meðvitund, meðvitundarleysi og órói í kjölfar
neyslu áfengis og svefnlyfja. Hægur hjartsláttur. Astmi.
Slímsöfnun í lungum. Samtímis notkun annarra slævandi
lyfja. Fylgjast þarf náið með sjúklingum með skcrta lifrar-
eða nýrnastarfsemi svo og öldruðum sjúklingum og
sjúklingum í kröm.
Meðganga og brjóstagjöf: Morfínlyf geta slævt öndun
hjá nýbumm. Ef um langvarandi notkun lyfsins á nieðgöngu
hefur verið að ræða má gera ráð fyrir fráhvarfseinkennum
hjá baminu eftir fæðinguna.
Fentanýl berst í brjóstamjólk í nægilegu magni til þess að
hafa áhrif á barnið. jafnvel þó að gefnir séu venjulegir
skammtar.
Akstur og stjórnun vinnuvéla: Vara ber sjúklinga við
stjórnun vélknúinna ökutækja samtímis notkun lyfsins.
Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir em ógleði/uppköst
(28%) og syfja (23%). Alvarlegasta aukaverkunin er hömlun
öndunar og er skammtaháð, en þessi aukaverkun cr sjaldgæf
hjá sjúklingum, sem myndað hafa þol gegn morfínlyfjum.
Algengar (>1%): Almennar: Kláði. Hjarta- og æöakerfi: Lágur
blóðþrýstingur. hægur hjartsláttur. MiÖtaugakerfi: Syfja. mgl,
ofskynjanir, sæluvíma. Hömlun öndunar. Meltingatfœri: Ógleði,
uppköst. hægðatregða. Húð: Húðerting (roði, kláði, útbrot).
Þvagfœri: Þvagteppa.
Ef um mikið eða langvarandi blóðþrýstingsfall er að ræða, þá ber
að hafa vökvaþurrð/blóðþurrð í huga og velta fyrir sér vökvagjöf.
Öndunarhemjandi áhrif lyfsins em skammtaháð. Húðertingin hverfur
venjulega innan sólarhrings eftir að plástur hefur verið fjarlægður.
Sjúklingar, sem fá morfínlyf. geta myndað þol og einnig orðið háðir
lyfinu.
Milliverkanir við lyf eða annað: Samtímis notkun lyfja sem hafa
áhrif á miötaugakerfið, þ.á m. þunglyndislyf, ópíóíðar, sefandi lyf,
svefnlyf, almenn svæfinga- og deyfingalyf. fenótíazín. róandi lyf,
vöðvaslakandi lyf, róandi andhistamín og áfengi, getur valdið auknum
bælandi áhrifum með gmnnri öndun. lágþrýstingi, miklum sefandi
áhrifum og dái. Þess vegna þurfa sjúklingar sérstakt eftirlit og umönnun
þegar þessi lyf em notuð um leið og Durogesic.
umbrotið fyrir tilstuðlan cýtókróm P450 3A4 ensíma. Þó hefur ekki
komið fram in-vitro hömlun vegna ítrakónasóls (þekktur cýtókróm
P450 ensím hemill). líklega vegna hás útdráttarhlutfalls fentanýls í
lifur.
Athugið: Durogesic á ekki að nota gegn bráðavcrkjum eða verkjum
eftir skurðaðgerðir þar sem þá gefst ekki nægjanlegur tími til þess að
finna hæfilega skammta og þar með getur lyfið valdið lífshættulegri
öndunarbilun. Durogesic skal einungis gefið sjúklingum með langvinna
verki sem áður hafa svarað meðferð með morfínlyfjum.
Ef öndunarbilun kemur í Ijós skal taka plásturinn af og fylgjast vel með
sjúklingnum. Öndunarhjálp skal veitt með þeim aðferðum sem með þarf
(t.d. hvatning, sjúkraþjálfun, öndunarvél). Áfengi eykur öndunarhemjandi
áhrif fentanýls. Áhrifm má stöðva með naloxóni. Þar sem fentanýláhrifin
vara mun lengur en áhrif naloxóns þarf að fylgjast mjög vel með
sjúklingnum. Fái sjúklingur alvarlegar aukaverkanir þarf að fylgjast
mjög vel með honum í sólarhring eftir að plásturinn hefur verið tekinn
af vegna þess hver verkunartími er langur.
Þegar meðferð með Durogesic er hætt skal hefja meðferð með öðrum
morfínlyfjum í hægt vaxandi skömmtum. Morfínlyfjum skal að jafnaði
hætt hægt.
Ef sjúklingur fær hita (40QC) getur frásog fentanýls aukist um u.þ.b.
30%. Þess vegna þarf að fylgjast með sjúklingum sem fá hita og lækka
skammtinn ef með þarf. Forðast ber að hita á cinhvern hátt
plástursstæðið.
Viðbragðfiýtir sumra sjúklinga tninnkar meðan á Durogesic meðferð
stendur. þetta ber að hafa í huga til dæmis við akstur.
Geymsla: Plásturinn skal geyma í órofnum umbúðum við
herbergishita. Geymist fjarri bömum. einnig eftir notkun. Notaðir
plástrar skulu brotnir saman og fargað með öruggum hætti.
I'akkningar og verö 1.12. 2002:
Foröaplástur 25 míkróg/klst. 10 cm: x 5 stk.
kr. 5.620
20 cm: x 5 stk.
kr. 9.813
30 cm: x 5 stk.
kr. 13.115
Foröaplástur 100 míkróg/klst. 40 cm: x 5 stk.
kr. 15.790
Notkunarleiöbeiningar á íslensku skulu fylgja hverri
pakkningu lyfsins.
Foröaplástur 50 míkróg/klst.
Foröaplástur 75 niíkróg/klst.
JANSSEN-CILAG
.