Læknablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 92
ÞING / LAUSAR STÖÐUR / STYRKIR
Aðalfundur Skurðlækna-
félags íslands 2003
verður haldinn föstudaginn 9. maí nk. kl. 16:30 á
Nordica Hótel (Hótel Esju).
Dagskrá
1) Aðalfundarstörf skv. 9. gr. laga Skurðlæknafé-
lags íslands.
2) Tillaga um breytingar á reglum um félagsaðild
Sí.
3) Önnur mál.
4) Kynning á vefsíðu Skurðlæknafélagsins.
Stjórnin
Aðalfundur Svæfinga-
og gjörgæslulækna-
félags íslands 2003
verður haldinn föstudaginn 9. maí nk. kl. 16:30 á
Nordica Hótel (Hótel Esju).
Dagskrá
1) Aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.
2) Önnur mál.
3) Kynning á vefsíðu Svæfinga- og gjörgæslu-
læknafélagsins.
Stjórnin
Vísindasjóður Félags
íslenskra heimilislækna
Umsóknir um vísindastyrki fyrir vorúthlutun 2003
þurfa að berast formanni stjórnar sjóðsins fyrir 5.
maí 2003. Umsóknum ber að skila á þartilgerðum
eyðublöðum ásamt rannsóknar- og fjárhagsáætlun-
um. Hægt er að sækja eyðublöðin og sjá lög Vís-
indasjóðsins á heimasíðu FÍH:
www.heimilislaeknar. is
Fyrir hönd stjórnar Vísindasjóðs FÍH
Þórir B. Kolbeinsson formaður
Þrúðvangi 22, 850 Hellu, thorbk@vortex.is
Afleysingastaða
Afleysari lyflæknis óskast á Fjórðungssjúkrahúsið í
Neskaupstað tímabilið frá 15. júní til 4. júlí næst-
komandi.
Upplýsingar: Björn Magnússon, forstöðulæknir FSN.
Símar: 477 1450 (v), 477 1765 (h).
Novo Nordisk Foundation
Research Meetings
Styrkir til
vísindastarfsemi
Norræna rannsóknanefndin (Nordisk Forsknings
Komité) ráðgerir að veita allt að 300.000 DKR á ári
til vísindastarfsemi á Norðurlöndunum, til dæmis til
eins til þriggja daga málþinga, jafnvel sem velskil-
greinda fundi í tengslum við stærri ráðstefnur
(satellite symposium), eða til að bjóða alþjóðlega
viðurkenndum vísindamönnum til styttri dvalar hjá
rannsóknahópum í tengslum við fyrirlestrahald eða
sambærilega starfsemi. Styrkir verða ekki veittir
vegna námskeiða.
Starfsemin skal vera á sviði innkirtlafræði eða
tilraunalífeðlisfræði.
Hver styrkur nemur að jafnaði 100.000 DKR eða
hærri upphæð.
Sækja má um styrki vegna starfsemi á árinu 2004
eða 2005.
Umsóknir skal senda í fimm eintökum til:
Novo Nordisk Fonden
Brogárdsvej 70
Postbox 71
DK-2820 Gentofte, Danmark
sími: +45 44 43 90 31
bréfasími: +45 44 43 90 98
www.novonordiskfonden. dk
í umsókninni skai koma fram rökstuðningur fyrir
mikilvægi þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til
(ein síða), lýsing á starfseminni, fjárhagsáætlun og
áætluð tímasetning, upplýsingar um virkni rann-
sóknarhóps umsækjenda á fræðasviðinu og
þýðingu þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til
fyrir framhald þeirra rannsókna, ásamt skrá yfir
birtingu á helstu niðurstöðum rannsóknarhóps
umsækjenda síðastliðin tvö til þrjú ár (tvær síður).
Umsóknir ásamt öllum fylgiskjölum skulu hafa
borist til Novo Nordisk Fonden í síðasta lagi 20.
ágúst 2003. Ófullnægjandi umsóknir og umsóknir
sem berast á bréfasíma eða í tölvupósti verða ekki
teknar til greina.
Umsóknum verður svarað um miðjan október
2003.
464 Læknablaðið 2003/89