Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 42
ÞING SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA / ÁGRIP ERINDA við nokkrum öðrum sjúkdómum og eru horfurnar þá töluvert betri. Hin síðari ár hefur bætt myndgreiningartækni auðveldað val skurðtækra sjúklinga til aðgerðar. Einnig má búast við að meiri sér- hæfing skurðlækna og betri svæfinga- og gjörgæslumeðferð stuðli að betri árangri. Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna árang- ur þessara aðgerða í Reykjavík frá upphafi til loka árs 2002. Efniviður og aðferðir: Farið var í gegnum meinafræðisvör fyrir öll brissýni sem rannsökuð voru á Rannsóknastofu háskólans í meina- fræði og sjúklingar sem fóru í þessar aðgerðir fundnir. Nánari upp- lýsingar voru fengnar frá sjúkraskrám í skjalasöfnum Landspítala Hringbraut, Fossvogi og Landakoti. Niðurstöður: Gerð var 101 aðgerð hjá 54 körlum og 47 konum. Sjúklingar voru á aldrinum 35-89 ára en meðalaldur var 62,5 ár. Ábendingar voru eftirfarandi: Kirtilkrabbamein í brisi 44%, önnur krabbamein í brisi 4%, krabbamein í gallrásaropi 23%, krabbamein neðst í gallgangi 15%, krabbamein í skeifugörn 1% og annað 14%. Fjöldi aðgerða skipt eftir tímabilum var 1971-1980: 14, 1981-1990: 25, 1991-2000: 51 og 2001-2002: 11. Fjöldi skurðlækna sem gerðu þessar aðgerðir voru (skipt eftir tímabilum): 1971-1980: 8, 1981- 1990: 11, 1991-2000: 13 og 2001-2003: 3. Alls létust 12% sjúklinga innan 30 daga. Skipt eftir tímabilum: 1971-1980: 36%, 1981-1990: 36%, 1991-2000:4%. Meðallegutími var, skipt eftir tímabilum: 1971- 1980: 41 dagur, 1981-1990: 44 dagar, 1991-2000: 29 dagar og 2000- 2001:22 dagar. E - 24 Própófól infusion syndrome. Lýst einu sjúkratil- felli á gjörgæsludeild Landspítala Hringbraut Jóhann Johnsen, Gísli Vigfússon, Ástríður Jóhannesdóttir, Þor- steinn Sv. Stefánsson, Jens Kjartansson Svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala Hringbraut, Lýtalækn- ingadeild Landspítala Hringbraut gislivig@landspitali.is Inngangur: Própófól hefur um margra ára skeið verið notað sem innleiðslulyf með góðum árangri við svæfingar. Kostir þess liggja í skjótri verkan bæði við innleiðslu og ekki síður við vöknun, oftast án mikilla eftirkasta. Þetta lyf hefur náð miklum vinsældum við svæfingar inniliggjandi sjúklinga og við dagdeildaraðgerðir. Notkun þess við svæfingar var í byrjun bundin við fullorðna en nú er heimilt að nota það við innleiðslu barna niður í eins mánaðar aldur. Notkun lyfsins hefur og farið vaxandi á gjörgæsludeildum bæði sem inn- leiðslulyf og ekki síður til slævingar sjúklinga meðan á erfiðri með- ferð stendur. Þrátt fyrir miklar vinsældir og útbreidda notkun fóru að berast fréttir af alvarlegum fylgikvillum sem tengdust langtíma- notkun lyfsins hjá yngri einstaklingum á gjörgæsludeild. Lýst er einu slíku tilfelli á gjörgæsludeild Landspítala Hringbraut. Efniviður og niðurstaða: 14 ára drengur innlagður á gjörgæsludeild með 15% bruna, að mestu annarrar gráðu, í andliti, á höndum og baki, auk þess innöndunarbruna í loftvegum. Vegna brunans í loft- vegum var nauðsynlegt að setja sjúkling í öndunarvél og var honum haldið sofandi með própófól og fentýl dreypi. Vegna endurtekinna aðgerða og vefjaskemmda af völdum bruna í loftvegum reyndist nauðsynlegt að halda sjúklingi sofandi áfram og voru notuð til þess ofangreind lyf. Sjúklingur var stabíll í lífsmörkum fyrstu sólarhring- ana en á þriðja degi reyndist nauðsynlegt að setja inn dópútamín vegna óstöðugs blóðþrýstings og þar sem sýkingarþættir fóru hækk- andi var sjúklingur settur á sýklalyf frá fjórða degi. Þrátt fyrir ofan- greinda meðferð versnaði ástandið, vaxandi súrefnisþörf, óstöðug- ur blóðþrýstingur og hár hiti. Á níunda degi uppgötvast hátt CK svo og mýoglóbúlín sem tugfaldast síðan næstu daga. Hugsanlegt var talið að um fylgikvilla lyfja væri að ræða og var því gjöf sýklalyfja og veirulyfja hætt. Þrátt fyrir það héldust gildi há. Á þrettánda degi var própófólgjöf hætt. Næstu daga féllu ofangreind gildi mjög hratt. Ljóst var að própófól sem gefið var til slævingar hafði framkallað þetta mikla vöðvaniðurbrot. Sjúklingur hafði fengið meðan á með- ferð stóð á bilinu 2,9mg/kg /klst upp í 7,4 mg/kg/ klst. Ályktun: Ofangreint sjúkratilfelli er frá miðju ári 2001.1 ljósi þess- arar óvæntu lífshættulegu fylgikvilla var sett sú regla á gjörgæslu- deild Landspítala Hringbraut að nota ekki própófól til langtíma- slævingar hjá börnum. Á árinu 2002 kom fram viðvörun frá banda- rísku lyfjastofnuninni (FDA) þar sem varað er við notkun þessa lyfs við langtímaslævingu hjá sjúklingum undir 18 ára aldri og takmarka heildargjöf við 4 mg/kg/klst hjá eldri einstaklingum. E - 25 Samantekt á sjúkraflugi frá Akureyri árið 2002 Hjálmar Þorsteinsson, Helga K. Magnúsdóttir Svæfinga- og gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA) hjalmarth@fsa.is Inngangur: Um nokkurra ára bil hafa sjúkraflutningamenn frá slökkviliði Akureyrar farið í öll sjúkraflug sem farin hafa verið frá Akureyri. Þann 15. mars 2002 var aukið við þessa þjónustu með fastri læknavakt á vegum FSA. Þjónustusvæði sjúkraflugsins er Norðaust- urland, það er frá Hrútafirði að Höfn í Hornafirði auk austurstrandar Grænlands. Tilgangur samantektar var að kanna fjölda sjúkrafluga þar sem óskað var eftir lækni, viðbragðstíma miðað við ósk um við- bragðsflýti og hvaða vandamálum sjúkraflugið er að sinna. Efniviður og aðferðir: Farið var yfir öll gögn varðandi sjúkraflug frá Akureyri árið 2002. Skráð var kyn og aldur sjúklings, ástæða sjúkra- flugs, viðbragðsflýtir og hvort óskað var eftir lækni. Viðbragðsflýtir var flokkaður í A - alger forgangur, B - hámark 90 mínútur, C - inn- an sex klukkustunda og D - pantað eftir samkomulagi. Viðbragðs- tími (VBT) var reiknaður frá tímasetningu beiðna um sjúkraflug að flugtakstíma fyrir flokka A, B og C. Niðurstöður: Alls voru farin 188 sjúkraflug frá Akureyri árið 2002. Þar af voru 89 þeirra mönnuð með lækni. Fluttir voru alls 194 sjúk- lingar, 60% þeirra voru karlkyns en 40% kvenkyns. Fjöldi A útkalla var 49, meðal VBT 55 mínútur, miðgildi 50 mínútur. í níu tilfellum var VBT yfir 60 mínútur. B útköll voru 59 og var meðal VBT 62 mínútur, miðgildi 46 mínútur. í 10 tilfellum fór viðbragðstími yfir áætlaðar 90 mínútur að hámarki. Skráning á viðbragðsflýti var ófullnægjandi, þannig voru alls 49 sjúkraflug óflokkuð. Sjúklingum var skipt í aldurshópa og var fjölmennasti hópurinn aldraðir, eða 68 einstaklingar. Athyglisvert er að í þeim hópi var ósk eftir læknis- fylgd minnst, eða 26% miðað við 59% hjá miðaldra. Stærsti hluti bráðaútkalla var vegna slysa, eða 41%, en alls voru sjúkraflug vegna slysa 58 talsins. Ályktanir: Fjöldi sjúkrafluga þar sem óskað er eftir lækni réttlætir læknavakt við sjúkraflug frá Akureyri. Viðbragðstími er að jafnaði undir 60 mínútum ef um bráðaútkall er að ræða. 414 Læknablaðið 2003/89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.