Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 89

Læknablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 89
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 37 Af tækni og útliti Á tímum tækninnar Fjórir skurðlæknar voru að leika golf saman. Þeir þekktust allvel en þó var ekki alveg á hreinu hver væri þeirra fremstur. Allt í einu heyrist hringing og einn fjórmenninganna káfar ofan í golfpokann, dreg- ur upp farsíma og talar í eina mínútu. „Það er alveg rosalega mikilvægt að hægt sé að ná í mann hvenær sem er,“ segir hann að loknu símtalinu og setur sím- ann aftur í pokann. Skömmu seinna heyrist aftur hringing og annar læknir ber hendina upp að eyranu. „Það nýjasta í farsímatækninni, herrar mínir, hátalari á þumlinum og hljóðnemi á litla fingri, hvort tveggja ósýnilegt.“ Nokkru síðar nemur þriðji skurðlæknirinn staðar og byrjar að tala. „Þetta er nú það allra nýjasta, hátal- ari græddur inn í eyrað á mér og hljóðnemi fyrir aftan aðra framtönnina. Fyrirhafnarlítið, ekki satt?“ Félag- arnir voru hæfilega hrifnir og héldu áfram spila- mennskunni. Skyndilega leggur fjórði læknirinn frá sér kylfurn- ar og afsakar sig um leið og hann hverfur bak við runna. Eftir allnokkra stund kemur að því að félög- um hans hættir að standa á sama og einn þeirra gægist bak við runnann. Þar sér hann manninn sitjandi á hækjum sér og buxurnar á hælunum. „Ekki hafa áhyggjur af mér, gefið mér eins og eina mínútu í við- bót. Ég á nefnilega von á faxi.“ Þú gætir verið læknir ef ... - þú getur sofið standandi með opin augun. - þú hefur heyrt sjúkling segja: „En ég get ekki verið ófrísk. Hvernig ætti ég að geta átt von á barni?“ - þú ert viss um að hafa séð það á skurðstofunni eldsnemma um morguninn sem er á boðstólum í matsalnum í hádeginu. - þú telur veitingastað vera góðan ef þú getur fengið sæti til að borða matinn þinn. - þú átt þá ósk heitasta að fá koffeinið beint í æð. - þú hefur einhvern tíma þurft að beita sjúkling fortölum til að fá að vinna vinnuna þína. - þér dettur strax í hug að sjúklingur sé að mis- nota lyf ef hann kvartar um mígreni, bakverk eða ofnæmi fyrir alls konar lyfjum nema parkó- dín forte. - þú margfaldar með þremur það sem einhver segist nota af áfengi á degi hverjum. - þú átt lausa helgi fyrir sjálfan þig og fjölskyld- una eftir eitt ár. - þú telur grænmeti ekki til fæðutegunda fyrir sjálfan þig. - þú óskaðir þess að hjúkkurnar í vinnunni hjá þér litu út eins þær í sjónvarpinu. Spyrjandi tanniæknar Hefur nokkur tekið eftir því hve tannlæknar eiga erf- itt með að spyrja spurninga þar sem svarið er annað- hvort „já“ eða „nei“? Maður með útlit „Guðrún, ég verð að segja þér eins og er, en mér líst ekki á manninn þinn.“ „Ekki mér heldur, læknir, en hann er góður við börnin.“ Heim með lækninum Símon læknir var kominn til ára sinna og var þekktur fyrir að vera bæði glöggur en á stundum viðutan. Hann þótti vera reffilegur karl og geislaði af kyntöfr- um. Kvöld eitt eftir langan vinnudag kom hann við á barnum til að fá sér drykk. Næst honum sat ákaflega fönguleg og leitandi ung kona sem bað Símon um að bjóða sér upp á eitthvað að drekka honum til samlæt- is. Símon bauð í glas. „Ertu kvæntur?" „Nei,“ svaraði Símon læknir. „Áttu heima hér í grenndinni?“ spurði konan. „Já.“ „Gætir þú hugsað þér að ég kæmi heim með þér?“ „Hvað kostar það?“ „Fimm þúsund fyrir klukkutímann. Átta þúsund fyrir tvo tíma. Tuttugu þúsund fyrir allt kvöldið." „Gott og vel,“ sagði læknirinn, „þá er best að drífa sig af stað.“ Þegar heim var komið segir konan undurblítt við lækninn: „Á hverju viltu að ég byrji?“ Hann leit á hana og sagði: „Ætli það sé ekki best að þú byrjir á að þrífa gluggana.“ Bjarni Jónasson bjarni.jonasson@gb. hgst. is Læknablaðið 2003/89 461
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.