Læknablaðið - 15.05.2003, Síða 89
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 37
Af tækni og útliti
Á tímum tækninnar
Fjórir skurðlæknar voru að leika golf saman. Þeir
þekktust allvel en þó var ekki alveg á hreinu hver
væri þeirra fremstur. Allt í einu heyrist hringing og
einn fjórmenninganna káfar ofan í golfpokann, dreg-
ur upp farsíma og talar í eina mínútu. „Það er alveg
rosalega mikilvægt að hægt sé að ná í mann hvenær
sem er,“ segir hann að loknu símtalinu og setur sím-
ann aftur í pokann.
Skömmu seinna heyrist aftur hringing og annar
læknir ber hendina upp að eyranu. „Það nýjasta í
farsímatækninni, herrar mínir, hátalari á þumlinum
og hljóðnemi á litla fingri, hvort tveggja ósýnilegt.“
Nokkru síðar nemur þriðji skurðlæknirinn staðar
og byrjar að tala. „Þetta er nú það allra nýjasta, hátal-
ari græddur inn í eyrað á mér og hljóðnemi fyrir aftan
aðra framtönnina. Fyrirhafnarlítið, ekki satt?“ Félag-
arnir voru hæfilega hrifnir og héldu áfram spila-
mennskunni.
Skyndilega leggur fjórði læknirinn frá sér kylfurn-
ar og afsakar sig um leið og hann hverfur bak við
runna. Eftir allnokkra stund kemur að því að félög-
um hans hættir að standa á sama og einn þeirra gægist
bak við runnann. Þar sér hann manninn sitjandi á
hækjum sér og buxurnar á hælunum. „Ekki hafa
áhyggjur af mér, gefið mér eins og eina mínútu í við-
bót. Ég á nefnilega von á faxi.“
Þú gætir verið læknir ef ...
- þú getur sofið standandi með opin augun.
- þú hefur heyrt sjúkling segja: „En ég get ekki
verið ófrísk. Hvernig ætti ég að geta átt von á
barni?“
- þú ert viss um að hafa séð það á skurðstofunni
eldsnemma um morguninn sem er á boðstólum
í matsalnum í hádeginu.
- þú telur veitingastað vera góðan ef þú getur
fengið sæti til að borða matinn þinn.
- þú átt þá ósk heitasta að fá koffeinið beint í æð.
- þú hefur einhvern tíma þurft að beita sjúkling
fortölum til að fá að vinna vinnuna þína.
- þér dettur strax í hug að sjúklingur sé að mis-
nota lyf ef hann kvartar um mígreni, bakverk
eða ofnæmi fyrir alls konar lyfjum nema parkó-
dín forte.
- þú margfaldar með þremur það sem einhver
segist nota af áfengi á degi hverjum.
- þú átt lausa helgi fyrir sjálfan þig og fjölskyld-
una eftir eitt ár.
- þú telur grænmeti ekki til fæðutegunda fyrir
sjálfan þig.
- þú óskaðir þess að hjúkkurnar í vinnunni hjá
þér litu út eins þær í sjónvarpinu.
Spyrjandi tanniæknar
Hefur nokkur tekið eftir því hve tannlæknar eiga erf-
itt með að spyrja spurninga þar sem svarið er annað-
hvort „já“ eða „nei“?
Maður með útlit
„Guðrún, ég verð að segja þér eins og er, en mér líst
ekki á manninn þinn.“
„Ekki mér heldur, læknir, en hann er góður við
börnin.“
Heim með lækninum
Símon læknir var kominn til ára sinna og var þekktur
fyrir að vera bæði glöggur en á stundum viðutan.
Hann þótti vera reffilegur karl og geislaði af kyntöfr-
um. Kvöld eitt eftir langan vinnudag kom hann við á
barnum til að fá sér drykk. Næst honum sat ákaflega
fönguleg og leitandi ung kona sem bað Símon um að
bjóða sér upp á eitthvað að drekka honum til samlæt-
is. Símon bauð í glas.
„Ertu kvæntur?"
„Nei,“ svaraði Símon læknir.
„Áttu heima hér í grenndinni?“ spurði konan.
„Já.“
„Gætir þú hugsað þér að ég kæmi heim með þér?“
„Hvað kostar það?“
„Fimm þúsund fyrir klukkutímann. Átta þúsund
fyrir tvo tíma. Tuttugu þúsund fyrir allt kvöldið."
„Gott og vel,“ sagði læknirinn, „þá er best að drífa
sig af stað.“
Þegar heim var komið segir konan undurblítt við
lækninn: „Á hverju viltu að ég byrji?“ Hann leit á
hana og sagði: „Ætli það sé ekki best að þú byrjir á að
þrífa gluggana.“
Bjarni Jónasson
bjarni.jonasson@gb. hgst. is
Læknablaðið 2003/89 461