Læknablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FORMANNAFUNDUR LÍ
Að umræðu um félagsstarfið slepptri kom þó
tvennt til tals sem fundarmönnum lá allnokkuð á
hjarta. Sigurbjörn Sveinsson formaður fjallaði um
tilvísanakerfi sem skaut upp kollinum í umræðu
um íslensk heilbrigðismál snemma í kosningabar-
áttunni þegar Alþýðusamband Islands lagði fram
tillögur sínar um endurbætur á velferðarkerfinu.
Einn liður í tillögum ASI var ný útgáfa af tilvís-
anakerfi sem nefnd hefur verið valfrjálst stýri-
kerfi.
Sigurbjörn greindi frá fundi sem heimilislæknar
og fleiri héldu á Egilsstöðum í byrjun aprfl en þar
voru menn sammála um að miðað við núverandi
ástand í heilsugæslunni væri tómt mál að tala um
tilvísanakerfi, það myndi einfaldlega ekki virka
þegar aðgangur almennings að heimilislæknum er
jafntakmarkaður og raun ber vitni. Undir þetta
tóku fundarmenn og Þórir B. Kolbeinsson for-
maður Félags íslenskra heimilislækna sagði tilvís-
anakerfi eða annað ámóta stýrikerfi alls ekki á
stefnuskrá heimilislækna.
Ymis önnur rök voru færð gegn tilvísanakerf-
inu, svo sem þau að uppbygging heilbrigðisþjón-
ustunnar væri öðruvísi hér en í öðrum löndum,
ekki síst hvað varðar þjónustu annarra sérfræð-
inga en heimilislækna. Vísað var til erlendra rann-
sókna, meðal annars í Bandaríkjunum, sem hafa
leitt í ljós að tilvísanakerfi eins og um hefur verið
rætt, það er að fólk fari fyrst til heimilislæknis sem
vísar því áfram til sérfræðiþjónustunnar, leiðir
ekki til sparnaðar og er alls ekki ódýrari, hvorki
fyrir sjúklinga né samfélagið.
Það var því á fundarmönnum að heyra að þeir
hefðu engan áhuga á að taka þátt í að koma á
tilvísanakerfi af fjárhagslegum ástæðum. Öðru
máli gegndi um faglegar ástæður enda væri á öll-
um sjúkrahúsum við lýði strangt tilvísanakerfi og
það væri af hinu góða. Landlæknir átti lokaorðið í
þessari umræðu og tók hann undir með mönnum
um að ávinningur af tilvísanakerfi væri í besta falli
mjög óljós. Hins vegar þyrfti að bæta samskipti
heimilislækna og annarra sérfræðinga, ekki síst
hvað varðar upplýsingaflæði um sjúklinga, en þau
væri hægt að laga. Hann sagði lækna eiga næsta
leik í því að koma á umbótum í kerfinu, það stæði
þeim miklu nær en ASÍ.
Hitt málið sem gerði fundarmönnum heitt í
hamsi kom upp í kjölfar frásagnar Ófeigs Þor-
geirssonar af stjórnarfundi LÍ á Hótel Rangá (sjá
frásögn hér að framan). Þar var varpað fram þeirri
spurningu hvort ekki væri athugandi að koma á
fót annarri læknadeild hér á landi sem veitt gæti
þeirri sem fyrir er samkeppni og aðhald.
Flestir þeirra sem tjáðu sig um þetta mál tóku
hugmyndinni vel, það veitti ekki af að skerpa á
læknanáminu. Ný læknadeild þyrfti þó ekki endi-
lega að lúta nákvæmlega sömu lögmálum og sú
sem fyrir er, það væri hægt að byggja hana upp
með allt öðrum hætti. Bent var á að eftir stofnun
háskólasjúkrahússins væri sú tilhneiging áberandi
að reyna að halda öllu þar innan veggja. Það væri
hins vegar í hrópandi ósamræmi við þá þróun sem
orðið hefur í ferliverkum þar sem stór hluti léttari
og smærri aðgerða færi fram utan sjúkrahússins á
stofum lækna. Þetta væri farið að hamla kennslu
læknanema sem ekki fengju að spreyta sig á ferli-
verkum. Fram kom að Læknasetrið í Mjódd hafi
boðið fram aðstoð sína við kennslu læknanema en
að því hefði verið hafnað. Sömu viðtökur hlaut
einnig tilboð frá sjálfstætt starfandi skurðlæknum.
Greinilegt var þó að mörgum þótti það jaðra
við drottinssvik að ganga í berhögg við lærifeð-
urna í deildinni sem fóstrað hefur að heita má alla
íslenska lækna. Samt var eins og menn sæju nauð-
syn þess að hrista upp í námi verðandi lækna ef
læknastéttin vildi standa undir nafni í framtíðinni.
Að loknum fundi bauð formaður fundarmönn-
um heim til sín.
Sigurbjörn Sveinsson
formaður LÍ ávarpar
formannafundinn.
Ókeypís dvöl í
sumarbústað lækna
Eins og fram kom í upplýsingabæk-
lingi Orlofsnefndar LÍ voru dregin út
nöfn tveggja lækna sem sóttu um bú-
stað eða aðra orlofskosti með rafræn-
um hætti. Fá þeir heppnu leigugjaldið
fellt niður.
Nú liggur fyrir hveijir hljóta hnoss-
ið að þessu sinni. Alls sóttu 83 um með
rafrænum hætti en upp úr tölvupottin-
um komu þessi nöfn: Emil L. Sigurðs-
son, Steingerður Sigurbjörnsdóttir.
Á það skal bent að enn er hægt að
sækja um ferðaávísanir og ættu þeir
sem vilja það snúa sér til skrifstofu LÍ.
Læknablaðið 2003/89 439