Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2003, Page 67

Læknablaðið - 15.05.2003, Page 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FORMANNAFUNDUR LÍ Að umræðu um félagsstarfið slepptri kom þó tvennt til tals sem fundarmönnum lá allnokkuð á hjarta. Sigurbjörn Sveinsson formaður fjallaði um tilvísanakerfi sem skaut upp kollinum í umræðu um íslensk heilbrigðismál snemma í kosningabar- áttunni þegar Alþýðusamband Islands lagði fram tillögur sínar um endurbætur á velferðarkerfinu. Einn liður í tillögum ASI var ný útgáfa af tilvís- anakerfi sem nefnd hefur verið valfrjálst stýri- kerfi. Sigurbjörn greindi frá fundi sem heimilislæknar og fleiri héldu á Egilsstöðum í byrjun aprfl en þar voru menn sammála um að miðað við núverandi ástand í heilsugæslunni væri tómt mál að tala um tilvísanakerfi, það myndi einfaldlega ekki virka þegar aðgangur almennings að heimilislæknum er jafntakmarkaður og raun ber vitni. Undir þetta tóku fundarmenn og Þórir B. Kolbeinsson for- maður Félags íslenskra heimilislækna sagði tilvís- anakerfi eða annað ámóta stýrikerfi alls ekki á stefnuskrá heimilislækna. Ymis önnur rök voru færð gegn tilvísanakerf- inu, svo sem þau að uppbygging heilbrigðisþjón- ustunnar væri öðruvísi hér en í öðrum löndum, ekki síst hvað varðar þjónustu annarra sérfræð- inga en heimilislækna. Vísað var til erlendra rann- sókna, meðal annars í Bandaríkjunum, sem hafa leitt í ljós að tilvísanakerfi eins og um hefur verið rætt, það er að fólk fari fyrst til heimilislæknis sem vísar því áfram til sérfræðiþjónustunnar, leiðir ekki til sparnaðar og er alls ekki ódýrari, hvorki fyrir sjúklinga né samfélagið. Það var því á fundarmönnum að heyra að þeir hefðu engan áhuga á að taka þátt í að koma á tilvísanakerfi af fjárhagslegum ástæðum. Öðru máli gegndi um faglegar ástæður enda væri á öll- um sjúkrahúsum við lýði strangt tilvísanakerfi og það væri af hinu góða. Landlæknir átti lokaorðið í þessari umræðu og tók hann undir með mönnum um að ávinningur af tilvísanakerfi væri í besta falli mjög óljós. Hins vegar þyrfti að bæta samskipti heimilislækna og annarra sérfræðinga, ekki síst hvað varðar upplýsingaflæði um sjúklinga, en þau væri hægt að laga. Hann sagði lækna eiga næsta leik í því að koma á umbótum í kerfinu, það stæði þeim miklu nær en ASÍ. Hitt málið sem gerði fundarmönnum heitt í hamsi kom upp í kjölfar frásagnar Ófeigs Þor- geirssonar af stjórnarfundi LÍ á Hótel Rangá (sjá frásögn hér að framan). Þar var varpað fram þeirri spurningu hvort ekki væri athugandi að koma á fót annarri læknadeild hér á landi sem veitt gæti þeirri sem fyrir er samkeppni og aðhald. Flestir þeirra sem tjáðu sig um þetta mál tóku hugmyndinni vel, það veitti ekki af að skerpa á læknanáminu. Ný læknadeild þyrfti þó ekki endi- lega að lúta nákvæmlega sömu lögmálum og sú sem fyrir er, það væri hægt að byggja hana upp með allt öðrum hætti. Bent var á að eftir stofnun háskólasjúkrahússins væri sú tilhneiging áberandi að reyna að halda öllu þar innan veggja. Það væri hins vegar í hrópandi ósamræmi við þá þróun sem orðið hefur í ferliverkum þar sem stór hluti léttari og smærri aðgerða færi fram utan sjúkrahússins á stofum lækna. Þetta væri farið að hamla kennslu læknanema sem ekki fengju að spreyta sig á ferli- verkum. Fram kom að Læknasetrið í Mjódd hafi boðið fram aðstoð sína við kennslu læknanema en að því hefði verið hafnað. Sömu viðtökur hlaut einnig tilboð frá sjálfstætt starfandi skurðlæknum. Greinilegt var þó að mörgum þótti það jaðra við drottinssvik að ganga í berhögg við lærifeð- urna í deildinni sem fóstrað hefur að heita má alla íslenska lækna. Samt var eins og menn sæju nauð- syn þess að hrista upp í námi verðandi lækna ef læknastéttin vildi standa undir nafni í framtíðinni. Að loknum fundi bauð formaður fundarmönn- um heim til sín. Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ ávarpar formannafundinn. Ókeypís dvöl í sumarbústað lækna Eins og fram kom í upplýsingabæk- lingi Orlofsnefndar LÍ voru dregin út nöfn tveggja lækna sem sóttu um bú- stað eða aðra orlofskosti með rafræn- um hætti. Fá þeir heppnu leigugjaldið fellt niður. Nú liggur fyrir hveijir hljóta hnoss- ið að þessu sinni. Alls sóttu 83 um með rafrænum hætti en upp úr tölvupottin- um komu þessi nöfn: Emil L. Sigurðs- son, Steingerður Sigurbjörnsdóttir. Á það skal bent að enn er hægt að sækja um ferðaávísanir og ættu þeir sem vilja það snúa sér til skrifstofu LÍ. Læknablaðið 2003/89 439

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.