Læknablaðið - 15.05.2003, Page 79
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÝ HEIMASÍÐA LÍ
/
Ný heimasíða Læknafélags Islands
í vetur opnaði LÍ nýja heimasíðu á slóðinni www.
lis.is og tekur hún við af þeirri gömlu (www.icemed.
is). Sem vefstjóra og notanda síðunnar langar undir-
ritaðan að koma á framfæri nokkrum punktum til að
hjálpa félaginu að byggja upp virðingarverðan og mál-
efnalegan vef. Kerfið á bak við vefinn hefur undirrit-
aður verið með í þróun síðastliðin þijú ár og er það
sérstaklega sniðið að þröfum félagasamtaka eins og
LÍ er.
Aðgangsorð félagsmanna
Peim félagsmönnum sem voru með skráð netfang
við opnun síðunnar hafa þegar verið send aðgangs-
orð. Um 700 skeyti voru send út en 600 manns höfðu
ekkert netfang. Þeim er bent á að hafa samband við
skrifstofu LÍ til að fá aðgangsorð sitt. Við viljum
biðja viðkomandi aðila um að byija á því að skrá á
sig rétt netfang þegar þeir tengjast síðunni. Það er
gert með því að smella á Mínar upplýsingar á vinstri
spássíu síðunnar. Mjög mikilvægt er að félagatalið
innihaldi alltaf sem réttastar upplýsingar um félags-
menn, einkum netföng. Mikilvægar tilkynningar eru
öðru hvoru sendar á póstlista vefsins og berast skilj-
anlega aðeins til þeirra sem hafa netfang sitt skráð.
Möguleikar vefsins
Hér er á ferðinni vefur af allt öðrum toga en sá gamli.
Sú vefsíða var ekki „gagnvirk" efnisinnihald síðunn-
ar var sett inn af ritstjóra einum og félagsmenn höfðu
ekki möguleika á að koma á framfæri skoðunum
sínum eða fyrirspurnum. Með nýju vefsíðunni geta
allir félagsmenn LÍ tekið þátt í að móta efnið.
Greinar
Ritstjórar síðunnar sjá að mestu leyti um að vista
nýjar greinar á heimasíðuna (svo sem fréttir og til-
kynningar). í suma greinaflokka geta allir félags-
menn lagt inn efni. Þar gætu menn til dæmis komið á
framfæri ábendingum um áhugaverðar ráðstefnur
eða bent á nýlegar rannsóknarniðurstöður.
Umræður
Á umræðuhluta vefsins hafa félagsmenn bestan
möguleika á að koma á framfæri skoðunum sínum
eða fyrirspurnum til annarra lækna. Vonast ég til að
hér eigi eftir að skapast skemmtilegar og fróðlegar
umræður, einkum er lúta að klínískum og praktískum
atriðum þannig að aðrir geti fylgst með og lært af. Til
dæmis gætu unglæknar leitað álits eldri lækna og sér-
fræðingar spurt kollega sína um nýjustu uppgötvanir
eða meðferðir sjúkdóma. Ég tel umræðuvefinn vera
mikilvægt tól í þeirri þróun sem nú er hafin á
heimsvísu, þar sem læknar veita sjúklingum sínum
bestu mögulegu meðferð hverju sinni með nýjum og
fullkomnari samskiptaleiðum við kollega.
Tenglasafn
Tenglasafninu er skipt upp í flokka eftir sérgreinum
læknisfræðinnar og er hugmyndin sú að læknar visti
sjálfir áhugaverða tengla á sínu sviði. Allir notendur
geta svo gefið einkunn og álit á viðkomandi tengil
(það er heimasíðu). Þannig byggist smátt og smátt
upp á vísum stað safn bestu tengla í hverri sérgrein og
allir félagsmenn njóta góðs af.
Davíð B. Þórisson
□ 1 tengdir síðunni
□ Mínar upplýsmgar
□ Aftengjast síðu
Forsiða: Soiallbraeðir: Heimasíðan opnuð
Ö Heim a s í 6 a n o pnuð
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS
ICELAXDIC MEDICAL ASSOCIATION
■ Hiðlp ■ Prenta
O Veftré
O Gestabók
□ Hafðu sambandl
□ Nýtt é slðu
Lækréblaðið
Spjallflokkur: Heimasíðan
Davlð Bjöm
Pórlsson
29.3.2003
kl. 17:37
Guðmundur Karl
Snaebjömsson
224.2003
kl. 23:49
Efst | Neðst
Ágeetu notendur, vinsamlegast setjið hér athugasemdir eða ébendingar um heimaslðu LÍ.
Efst | Neðst
Virð»st vera mjög éneegjuleg breybng é heimasiðu U með þessari nýju útgéfu, mj6g
herfdsUeð og vel gerð Beta-útgéfe' (ekki offioal ennþé7) Gratulera Davíð. Vonandi að stjóm
U og félagsmonnum heppnist að gaeða hana W og umraeðu, gagnstaett hinni fym, en þé
hlýtur markmtðmu að vera néð.
Texti
1 1 I L
Framtíð vefsins
Það er skoðun undirritaðs að nýr vefur LÍ hafi alla
burði til að gjörbylta möguleikum félagsins á að
koma á framfæri upplýsingum hvort sem er til félags-
manna sinna eða út á við til almennings. Við sem að
vefnum stöndum vonumst til að félagsmenn taki í
framtíðinni virkan þátt í uppbyggingu hans. Allar
ábendingar um vefinn eru vel þegnar og hefur undir-
ritaður opnað til þess nýjan umræðuþráð Heimasíð-
an opnuð á spjallþráðunum. Sjáumst þar!
Spjallrás um heimasíðu Ll.
Auðvelt er að slá inn at-
hugasemd eða hugleiðingu
og senda inn á síðuna.
Höfundur er læknanemi á
sjötta ári og vefstjóri www.lis.is
Læknablaðið 2003/89 451