Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2003, Blaðsíða 71

Læknablaðið - 15.06.2003, Blaðsíða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 29 Faraldsfræði í dag Réttmæti aðferða í sÍðustu pistlum hefur verið rætt um réttmæti að- ferða í tölfræði og faraldsfræði. Meðal annars hefur verið tæpt á réttmæti mælitækja, svo sem spurninga- lista, og nú er komið að því að ljúka þessari umræðu, að minnsta kosti í bili, með því að fjalla svolítið um réttmæti úrvinnsluaðferða og tökum reiknilíkön sem dæmi. Notkun reiknilíkana við vinnslu og túlkun niður- staðna hefur aukist mjög undanfarin ár, ekki síst með tilkomu stórra gagnagrunna sem innihalda mjög fjöl- breytilegar upplýsingar um stóra hópa einstaklinga. Með reiknilíkönum á ég hér við framsetningu og úr- vinnslu gagna með fjölþáttagreiningu (multivariate analyses) sem getur verið á ýmsu formi, svo sem línu- leg aðhvarfsgreining (linear regression), tvíundar- greining (logistic regression), þáttagreining (factor analysis) og svo framvegis. Markmiðið með notkun reiknilíkana við úrvinnslu gagna er þá að öðlast yfir- lit yfir heildaráhrif margra þátta á tilteknar útkomur, þar sem tekið er tillit til þeirra raskandi (confoun- ding) og milliverkandi (interactive) áhrifa sem þætt- irnir geta haft hver á annan og þar með á lokaútkom- una. Stundum eru heildaráhrif allra þáttanna sam- þætt með ýmsum aðferðum í eina vísitölu (index) til einföldunar. Þannig notuðu Charlson og félagar reiknilíkan til að lýsa áhrifum samverkandi sjúk- dóma (comorbidities) á dánarlíkur sjúklinga á sjúkrahúsum og drógu síðan upplýsingarnar saman í eina vísitölu (1). Mat á réttmæti slíkra aðferða er tvíþætt eins og mat á réttmæti annarra aðferða og niðurstaðna. Þannig þarf að taka afstöðu til hvort líkanið er rétt- mætt í því þýði sem lagt var til grundvallar við gerð þess og, ef svo reynist vera, að kanna réttmæti þess í öðrum þýðum. Réttmæti líkana tekur til hæfni þeirra til að lýsa sambandi forspárþáttanna við útkomuna, svo sem tengslum aldurs við sjúkrahúskostnað eða tengslum mataræðis við hjartasjúkdóma. Réttmæti líkans segir ekki til um hvort raunveruleg orsaka- tengsl séu milli forspárþátta og útkomu, heldur end- urspeglar aðeins hve vel likanið lýsir tölfræðilegum tengslum þessara þátta. Réttmæti slíkra líkana er mælt á ýmsa vegu, eftir því hvaða aðferð fjölþátta- greiningar var beitt við gerð þeirra. Helstu ógnir við innra réttmæti líkana eru fjórar. I fyrsta lagi getur skort mikilvæga forspárþætti, svo sem ef ekki er tekið tillit til aldurs þegar spáð er fyrir um legulengd á sjúkrahúsum. í öðru lagi getur verið misbrestur á mælingu eða skilgreiningu forspárþátta þannig að áhrifum þeirra eru ekki gerð nægilega skýr skil í Iíkaninu. Til dæmis er hætt við að sjúkdóms- greiningar á ICD formi séu ekki næg lýsing á sjúk- dómsbyrði þegar spá á fyrir um dánarlíkur. í þriðja Iagi þarf að tryggja að líkanið sem valið er hæfi raun- gögnunum, til dæmis að ekki sé valið línulegt líkan til að lýsa ólínulegu sambandi. I fjórða og síðasta lagi getur réttmæti líkana stafað ógn af raskandi þáttum sem ekki hefur verið tekið nægilegt tillit til og eimir því enn eftir af áhrifum þeirra. Þetta kallast röskun- arleif (residual confounding). Ef líkani er ætlað að leiðrétta fyrir raskandi áhrif þjóðfélagsstöðu á heilsu- farsútkomur með því að taka tillit til menntunar er hætta á að röskunarleif verði eftir ef ekki er jafnframt litið til tekna, starfs og svo framvegis. Eins og áður hefur verið rætt er innra réttmæti forsenda, en ekki trygging, ytra réttmætis. Ef líkanið lýsir ekki sambandi forspárþátta og útkomu í heima- þýði sínu er vonlítið að það geri það undir öðrum kringumstæðum. Segja má að ytra réttmæti líkana sé fyrst og fremst ógnað af þremur atriðum. Hið fyrsta er ef líkanið skortir algerlega forspárþætti sem eru mjög mikilvægir í ytra þýðinu (external population). Líkanið getur þá lýst mjög vel sambandi áhættuþátta og útkomu í heimaþýðinu en tekur alls ekki tillit til þátta er lita sambandið í ytra þýðinu. Annað atriði, sem í raun er náskylt hinu fyrsta, er ef samband for- spárþátta og útkomu í ytra þýðinu er ólíkt því sem var í heimaþýðinu. Þá geta áhrif raskandi þátta sem leiðrétt var fyrir í upphaflega líkaninu komið fram á ný því áhrifin eru hér önnur. Þriðja atriðið er svo ef útkoman og/eða forspárþættirnir eru mældir eða skil- greindir á annan hátt í ytra þýðinu en í heimaþýðinu en slíkt misræmi getur haft mjög veruleg áhrif á gildi líkansins utan sinnar heimasveitar. Ytra réttmæti er kannað annars vegar með því að bera saman eiginleika heimaþýðisins og hins ytra og reyna að átta sig á sambærileika þessara, en hins vegar með tölfræðilegu mati á frammistöðu líkansins í nýja þýðinu. Þetta má gera með því að endurskapa líkanið algerlega í nýja þýðinu og sjá hve sambærilegt það er við hið upprunalega eða með því að beita lík- aninu á gögn um ytra þýðið og meta hve vel líkanið lýsir eða spáir fyrir um útkomur í því. Heimild 1. Charlson ME, Pompei P, Ales KL, MacKenzie CR. A new method of classifying prognostic comorbidity in longitudinal studies: Development and validation. J Chron Dis 1987; 40: 373-83. María Heimisdóttir mariahei@landspitali. is Læknablaðið 2003/89 543
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.