Læknablaðið - 15.06.2003, Blaðsíða 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ALÞJÓÐAFÉLAG LÆKNA
Vorfundur Alþjóðafélags lækna
Jón Snædal körinn formaður siðanefndar
Jón Snœdal varaformaður
LÍ og formaður siðanefnd-
ar Alþjóðafétags lœkna.
haldnir eru að vori og hausti. Síðan þarf að gera
skýrslu um starfið og leggja hana fyrir stjórnina.
Formaðurinn er einnig í forsvari fyrir WMA um
þau mál sem undir nefndina heyra og tekur við
fyrirspurnum sem samtökunum berast, einkum í
gegnum blaðafulltrúa WMA í Lundúnum. Loks
þarf formaður nefndarinnar að mæta á fundi og
ráðstefnur fyrir hönd WMA þegar svo ber undir.
„Svo gæti farið að ég þyrfti að koma oftar fram
fyrir hönd WMA en forverar mínir. Það stafar af
því að samtökin kusu sér formann frá ísrael,
Yoram Blachar, en margir höfðu efasemdir um að
það væri heppilegt eins og málum er komið í ver-
öldinni. Þessi niðurstaða gæti orðið til þess að fleiri
málum verði vísað til nefndanna og annir okkar
nefndaformannanna þar með aukist," sagði Jón.
Þröstur
Haraldsson
Á vorfundi stjórnar Alþjóðafélags lækna (WMA)
sem haldinn var í Divonne-les-Bains í Frakklandi
dagana 15.-18. maí gerðust þau tíðindi að fulltrúi
Læknafélag íslands sigraði í kosningum um for-
mennsku í einni af þremur fastanefndum samtak-
anna. Næstu tvö árin verður Jón Snædal því for-
maður í siðanefnd WMA sem er mikilvægasta
nefnd samtakanna.
Skipulag WMA er með þeim hætti að stjórnar-
menn skiptast í þrjár fastanefndir sem halda fundi
tvisvar á ári. í þessum nefndum eru öll mál sam-
takanna til umfjöllunar og þar fer mestöll vinna
við þau fram. Mál eru síðan afgreidd á haustfund-
um sem eru aðalfundir WMA en þar er þó yfirleitt
um einfalda handauppréttingu að ræða nema upp
komi ágreiningur sem ekki tekst að leiða til lykta í
nefndunum.
Jón Snædal hefur setið í stjórn WMA undan-
farin tvö ár sem annar tveggja fulltrúa norrænu
læknasamtakanna. Þegar kom að kjöri formanns
siðanefndar bárust tvö framboð og í fyrstu umferð
voru Jón og læknir frá Suður-Afríku með jafnmörg
atkvæði. Því varð að kjósa aftur og þá hafði Jón
betur.
Jón segir að þetta sé tvímælalaust heiður fyrir
LÍ og íslenska lækna. „Við höfum verið virkir í
samtökunum undanfarin ár eða frá því gagna-
grunnsmálið var til umræðu. Við höfum svo fylgt
því máli eftir og verið sýnilegir í starfi samtak-
anna.“
Verkefni formanns siðanefndar eru þau að
undirbúa og stjórna tveimur fundum hennar sem
Taívan haldið utan WHO
Starfsemi fundarins í Divonne var með hefð-
bundnum hætti en þó bar þar á góma málefni Taí-
vans svo bergmálaði í fjölmiðlum. Þannig er að
stjórnvöld á Taívan hafa lagt á það mikla áherslu á
undanförnum árum að fá áheyrnarfulltrúa í stjórn
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Þær
tilraunir hafa ekki borið árangur og er þar um að
kenna andstöðu Kínverja sem viðurkenna ekki
sjálfstæði Taívans heldur líta á landið sem hluta
Kínaveldis. Hefur meirihluti aðildarþjóða WHO
og þar með taldir Islendingar stutt þessa afstöðu
Kínverja og ávallt hafnað umsókn Taívans.
Alþjóðafélag lækna áréttaði á fundinum í
Divonne þá stefnu samtakanna að Taívan beri að
fá stöðu áheyrnarfulltrúa hjá WHO. Human Del-
on framkvæmdastjóri WMA sagði eftir fundinn að
útbreiðsla HABL sýndi glöggt nauðsyn þess að
Taívanar geti sótt stuðning og sérfræðiaðstoð til
WHO. „HABL breiðist út á Taívan og við höfum
áhyggjur af því að læknastétt landsins skuli vera
útilokuð frá samstarfi við heilbrigðisstéttir heims-
ins ... Við ættum að forðast að leggja stein í götu
samskipta vísindamanna WHO við lækna á Taí-
van,“ sagði Delon.
Á allsherjarþingi WHO sem haldið var í Genf í
vikunni á eftir fundi WMA var umsókn Taívans
ekki á dagskrá en afstaða íslands er óbreytt hvað
hana varðar. Við styðjum ekki aðild Taívans að
Sameinuðu þjóðunum né neinum undirstofnunum
þeirra.
518 Læknablaðið 2003/89