Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2003, Qupperneq 46

Læknablaðið - 15.06.2003, Qupperneq 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ALÞJÓÐAFÉLAG LÆKNA Vorfundur Alþjóðafélags lækna Jón Snædal körinn formaður siðanefndar Jón Snœdal varaformaður LÍ og formaður siðanefnd- ar Alþjóðafétags lœkna. haldnir eru að vori og hausti. Síðan þarf að gera skýrslu um starfið og leggja hana fyrir stjórnina. Formaðurinn er einnig í forsvari fyrir WMA um þau mál sem undir nefndina heyra og tekur við fyrirspurnum sem samtökunum berast, einkum í gegnum blaðafulltrúa WMA í Lundúnum. Loks þarf formaður nefndarinnar að mæta á fundi og ráðstefnur fyrir hönd WMA þegar svo ber undir. „Svo gæti farið að ég þyrfti að koma oftar fram fyrir hönd WMA en forverar mínir. Það stafar af því að samtökin kusu sér formann frá ísrael, Yoram Blachar, en margir höfðu efasemdir um að það væri heppilegt eins og málum er komið í ver- öldinni. Þessi niðurstaða gæti orðið til þess að fleiri málum verði vísað til nefndanna og annir okkar nefndaformannanna þar með aukist," sagði Jón. Þröstur Haraldsson Á vorfundi stjórnar Alþjóðafélags lækna (WMA) sem haldinn var í Divonne-les-Bains í Frakklandi dagana 15.-18. maí gerðust þau tíðindi að fulltrúi Læknafélag íslands sigraði í kosningum um for- mennsku í einni af þremur fastanefndum samtak- anna. Næstu tvö árin verður Jón Snædal því for- maður í siðanefnd WMA sem er mikilvægasta nefnd samtakanna. Skipulag WMA er með þeim hætti að stjórnar- menn skiptast í þrjár fastanefndir sem halda fundi tvisvar á ári. í þessum nefndum eru öll mál sam- takanna til umfjöllunar og þar fer mestöll vinna við þau fram. Mál eru síðan afgreidd á haustfund- um sem eru aðalfundir WMA en þar er þó yfirleitt um einfalda handauppréttingu að ræða nema upp komi ágreiningur sem ekki tekst að leiða til lykta í nefndunum. Jón Snædal hefur setið í stjórn WMA undan- farin tvö ár sem annar tveggja fulltrúa norrænu læknasamtakanna. Þegar kom að kjöri formanns siðanefndar bárust tvö framboð og í fyrstu umferð voru Jón og læknir frá Suður-Afríku með jafnmörg atkvæði. Því varð að kjósa aftur og þá hafði Jón betur. Jón segir að þetta sé tvímælalaust heiður fyrir LÍ og íslenska lækna. „Við höfum verið virkir í samtökunum undanfarin ár eða frá því gagna- grunnsmálið var til umræðu. Við höfum svo fylgt því máli eftir og verið sýnilegir í starfi samtak- anna.“ Verkefni formanns siðanefndar eru þau að undirbúa og stjórna tveimur fundum hennar sem Taívan haldið utan WHO Starfsemi fundarins í Divonne var með hefð- bundnum hætti en þó bar þar á góma málefni Taí- vans svo bergmálaði í fjölmiðlum. Þannig er að stjórnvöld á Taívan hafa lagt á það mikla áherslu á undanförnum árum að fá áheyrnarfulltrúa í stjórn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Þær tilraunir hafa ekki borið árangur og er þar um að kenna andstöðu Kínverja sem viðurkenna ekki sjálfstæði Taívans heldur líta á landið sem hluta Kínaveldis. Hefur meirihluti aðildarþjóða WHO og þar með taldir Islendingar stutt þessa afstöðu Kínverja og ávallt hafnað umsókn Taívans. Alþjóðafélag lækna áréttaði á fundinum í Divonne þá stefnu samtakanna að Taívan beri að fá stöðu áheyrnarfulltrúa hjá WHO. Human Del- on framkvæmdastjóri WMA sagði eftir fundinn að útbreiðsla HABL sýndi glöggt nauðsyn þess að Taívanar geti sótt stuðning og sérfræðiaðstoð til WHO. „HABL breiðist út á Taívan og við höfum áhyggjur af því að læknastétt landsins skuli vera útilokuð frá samstarfi við heilbrigðisstéttir heims- ins ... Við ættum að forðast að leggja stein í götu samskipta vísindamanna WHO við lækna á Taí- van,“ sagði Delon. Á allsherjarþingi WHO sem haldið var í Genf í vikunni á eftir fundi WMA var umsókn Taívans ekki á dagskrá en afstaða íslands er óbreytt hvað hana varðar. Við styðjum ekki aðild Taívans að Sameinuðu þjóðunum né neinum undirstofnunum þeirra. 518 Læknablaðið 2003/89
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.