Læknablaðið - 15.03.2004, Qupperneq 17
FRÆÐIGREINAR / BRISKIRTILSBÓLGA
Table I. Age and sex distribution of the 50 patients
diagnosed with acute pancreatitis.
Age groups (years) No Sex M : F*
< 20 2 2 : 0
20-29 1 0 : 1
30-39 2 1:1
40-49 11 8 : 3
50-59 7 4 : 3
60-69 6 1 : 5
70-79 15 9 : 6
80-89 6 2 : 4
* Male : Female.
sjúklinganna (karlar 17 og konur 14) voru að leggjast
inn með sína fyrstu bráðu briskirtilsbólgu.
A Landspítala Fossvogi greindust 34 sjúklingar
(14 karlar og 20 konur) með bráða briskirtilsbólgu á
rannsóknartímabilinu sem höfðu búsetu á Suðvestur-
landi. Tuttugu og níu sjúklingar (karlar 10 og konur
19) fengu í fyrsta sinn bráða briskirtilsbólgu. Einn
sjúklingur lagðist inn á bæði sjúkrahúsin á tímabilinu.
Nýgengi
Heildarfjöldi sjúklinga með greininguna bráð bris-
kirtilsbólga á Suðvesturlandi á rannsóknartímabilinu
var 75 (karlar 37 og konur 38) og fjöldi sjúklinga með
fyrsta kast bráðrar briskirtilsbólgu var 60 (karlar 27
og konur 33). Meðaltal íbúafjölda á rannsóknartíma-
bilinu var 185.683 (karlar 91.808 og konur 93.875).
Áætlað nýgengi fyrir fyrsta kast bráðrar briskirt-
ilsbólgu á Suðvesturlandi var 32,3/100.000 íbúa/ár
(95% öryggismörk: 24,1 til 40,3); fyrir karla 29,4 og
konur 35,2.
Áætlað nýgengi fyrir bráða briskirtilsbólgu, þar
með talið fyrir þá sem áður höfðu fengið bráða bris-
kirtilsbólgu var 40,4/100.000 íbúa/ár (95% öryggis-
mörk: 31,3 til 49,5); fyrir karla 40,3 og konur 40,5.
Orsakir
Orsakir reyndust vera gallsteinar hjá 21 sjúklingi
(42%), áfengi hjá 16 sjúklingum (32%), aðrar mögu-
legar orsakir 12 (24%) og hjá einum sjúklingi (2%)
var orsökin óþekkt. Af þeim 12 sem höfðu áður feng-
ið briskirtilsbólgu höfðu 9 briskirtilsbólgu af völdum
áfengis (tafla II).
I töflu III sjást hverjar aðrar mögulegar orsakir
voru. Pau lyf sem um var að ræða voru morfínlík
sambönd í þremur tilvika, irinotecan og súlfa í sitt
hvoru tilviki. Aðgerðaorsakirnar voru kransæðahjá-
veituaðgerð og ristilbrottnám. Alvarleg sýking af
völdum Campylobacter jejuni var talin vera orsökin
hjá einum sjúklingi.
Þegar litið er á aldursdreifingu hópsins sést að hún
er tvítoppa (tafla I), fyrri toppurinn eru aðallega ung-
ir karlmenn þar sem orsökin var áfengi en sá seinni
aðallega konur með briskirtilsbólgu af völdum gall-
steina.
Table II. Aetiology ofacute pancreatitis: age ofpatients, sex and mortality. Data are no (%) ofpatients except where otherwise stated.
Causes Total Previous pancreatitis Admitted more than once Age (years)' M: P' Mortality
Gallstones 21 (42) i 2 71 (26-85) 9:12 i
Alcohol 16 (32) 9 3 51 (19-80) 12:4 i
Miscellaneous 13 (26) 2 1 53 (19-80) 6:7 0
and idiopathic
Total 50 (100) 12 6 60 (19-85) 27:23 2(4)
' = Median (range). * = Male : Female.
Table III. The 12 miscellaneous causes of acute pan- creatitis other than gallstones and alcohol.
Causes No. Sex*
Pharmacological agents 5 2 : 3
Operations 2 0 : 2
ERCP 1 1: 0
Pancreas divisum 1 1: 0
Infection 1 0 : 1
Hypercalcaemia 1 1 : 0
Lymphoma of the pancreatic head 1 1 : 0
* = Male : Female
Table IV. Number of patients with acute pancreatitis who had APACHE II scores >9,
Imrie scores >3, Ranson scores >3 and CRP concentrations >210 mg/L
during the first 4 days or CRP >120 mg/L during the first week.
APACHE II score £9 Ranson score £3 Imrie score £3 CRP >210 or >120 mg/L
Causes (No) 46' 45’ 46' 47-
Gallstones (21) 8 8 13 8
Alcohol (16) 4 5 5 5
Miscellenous and idiopathic (13) 3 4 5 3
Total (50) 15 17 23 16
‘ No. of patients with available data.
Miðgildi legutíma var 8 dagar (bil: 1-125). Legu-
tími var lengstur fyrir sjúklinga með briskirtilsbólgu
af öðrum orsökum en áfengi og gallsteinum eða 15
dagar (bil: 4-59). Fyrir sjúklinga þar sem gallsteinar
voru orsök var legutíminn 9 dagar (bil: 2-125) en 6
dagar (bil: 1-41) fyrir sjúklinga þar sem áfengi var or-
sök.
Alvarleikastigun
Hjá þeim 47 sjúklingum þar sem CRP var mælt höfðu
16 sjúklinganna (34%) CRP >210 mg/L á fyrstu fjór-
um dögunum eða >120mg/L á fyrstu viku veikind-
anna.
Meðalgildi stigunar var samkvæmt APACHE-II
7,7 (bil: 0-25), Imrie 2,5 (bil: 0-6), Ranson 2 (bil: 0-6)
og meðalgildi stigunar samkvæmt Balthazar-Ranson
var 1,8 (bil: 0-8). Þeir sem höfðu briskirtilsbólgu af
völdum gallsteina höfðu hæsta stig samkvæmt
APACHE II.
I töflu IV kemur fram hlutfall þeirra sjúklinga sem
höfðu APACHE-II >9, Imrie >3, Ranson >3 og
CRP>210 eða >120mg/L eftir því hver orsök briskirt-
ilsbólgunnar var.
Læknablaðið 2004/90 213