Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2004, Síða 33

Læknablaðið - 15.03.2004, Síða 33
FRÆÐIGREINAR / KRANSÆÐAVÍKKANIR einu staðalfráviki. Fjölþáttagreining (Stepwise back- wards logistic regression analysis) var gerð með SPSS tölfræðiforriti (12). Marktækur munur var skilgreind- ur sem tvíhliða p-gildi minna en 0,05. Niðurstöður Samanburður á klínískum þáttum (tafla I): A rann- sóknartímabilinu hefur orðið marktæk hlutfallsleg aukning á sjúklingum með sykursýki sem koma í kransæðavíkkun (mynd 1). í hópi sykursjúkra voru hlutfallslega fleiri konur en karlar og einstaklingar eldri en 65 ára en meðal þeirra sem ekki voru með sykursýki. Meðalaldur sjúklinga með sykursýki var einnig hærri en hjá þeim er voru án sykursýki (64 ± 10 á móti 62 ± 10 ár; p=0,002). Áhættuþættir fyrir æða- sjúkdómum voru algengari hjá sjúklingunum með sykursýki: fleiri þeirra reyktu, voru með háþrýsting og hækkað kólesteról. Einnig var fyrri saga urn hjarta- drep, opna hjáveituaðgerð og kransæðavíkkun al- gengari hjá hinum sykursjúku. Hlutfallslega fleiri þeirra voru líka greindir með hvikula hjartaöng og þriggja-æðasjúkdóm á kransæðamynd en sjúklingar án sykursýki. Tœknilegir þœttir við kransœðavíkkun (tafla II): Hlutfallslega fleiri sjúklingar með sykursýki fóru í hálfbráða víkkun eða áhlaupsvíkkun beint í kjölfar kransæðamyndatöku en sjúklingar án sykursýki. Bráð kransæðavíkkun hjá sjúklingum með ST-hækk- unar kransæðastíflu var jafn algeng hjá hópunum. Víkkun á bláæðagræðlingum var algengari hjá sykur- sjúkum en öðrum sjúklingum, en víkkun á innan- brjóstveggs slagæðagræðlingi eða aðalstofni vinstri kransæðar var jafn algeng hjá þessum sjúklingahóp- um. Nokkru algengar var að þrengsli í tveimur æðum væru víkkuð hjá sjúklingum með sykursýki, en eng- inn þeirra fór í víkkun á þremur æðum. Notkun stoð- neta var sambærileg hjá sjúklingum með og án sykur- sýki, en gjöf glýkóprótein Ilb/Illa blóðflöguhamla var nokkru tíðari hjá hinum sykursjúku (p=0,08). Frumárangur og fylgikvillar við kransœðavíkkun (tafla III): Frumárangur við kransæðavíkkun var jafn góður hjá sjúklingum með sykursýki og öðrum. Tíðni bráðra hjáveituaðgerða vegna fylgikvilla við víkkun var sambærileg hjá sjúklingum með og án sykursýki. Hjartadrep í tengslum við víkkunaraðgerð, greint sem marktæk hækkun á kreatínkínasa (CK og CK- MB), var fátíðari hjá hinum sykursjúku. Af 18 sjúk- lingum sem létust í sjúkrahúslegu eftir víkkun (0,4%), fóru fjórir í bráða kransæðavíkkun eftir hjartastopp og tveir að auki voru í lostástandi. Dánartíðni í sjúkrahúslegu eftir kransæðavíkkun reyndist hlut- fallslega hærri hjá sjúklingum með sykursýki borið saman við aðra sjúklinga. I fjölþáttagreiningu voru marktækir spáþættir fyrir dauða í sjúkrahúslegu: Bráð Table II. Procedural chamcteristics of patients undergoing PCI. Diabetics n (%) Non-diabetics n(%) Total n(%) Number of patients 377 (8.5) 4058 (91.5) 4435 (100) Elective PCI 182 (48) 2150 (53) 2332 (53) Subacute PCI 177 (47)* 1660 (41) 1837 (41) Acute PCI 12 (3.2) 181 (4.5) 193 (4.4) Serial PCI 4 (1.1) 45 (1.1) 49 (1.1) Ad hoc PCI 153 (41)* 1390 (34) 1543 (35) Primary PCI in acute Ml 10 (2.7) 134 (3.3) 144 (3.2) Salvage PCI 2 (0.5) 15 (0.4) 17 (0.4) PCI on restenosis 50 (13.3) 440 (10.8) 490 (11.0) PCI on veingrafts 20 (5.3)** 105 (2.6) 125 (2.8) PCI on LIMA 1 (0.03) 15 (0.4) 16 (0.4) PCI on main stem 6 (1.6) 43 (1.1) 49 (1.1) Rotablation 8 (0.2) 34 (0.2) 42 (0.9) Cutting balloon Number of vessels treated: 10 (2.7) 67 (1.7) 77 (1.7) One vessel 317 (84) 3497 (86) 3814 (86) Two vessels 60 (16) 533 (13) 593 (13) Three vessels 0 (0) 28 (1) 28 (1) Stents 202 (54) 2073 (51) 2275 (51) GP llb/llla drugs 44 (11.7) 364 (9.0) 408 (9.2) Glycoprotein = GP, left internal mammary artery = LIMA, myocardial infarction = Ml, percutaneous coronary intervention = PCI. * = p <0.05, ** = p <0.01, *** = p <0.001. All other statistical comparisons are not significant. Table III. Success and complications after PCI. Diabetics n (%) Non-diabetics n (%) Total n (%) Number of patients 377 (8.5) 4058 (91.5) 4435 (100) Total success 349 (93) 3742 (92) 4091 (92) Partial success 14 (3.7) 119 (2.9) 133 (3.0) Incompleate/failed PCI 14 (3.7) 197 (4.9) 211 (4.8) Acute CABG post PCI 2 (0.5) 30 (0.7) 32 (0.7) Acute infarct post PCI 3 (0.8) 59 (1.5) 62 (1.4) Haemopericardium post PCI 0 (0.0) 6 (0.15) 6 (0.14) CK increase over 3 fold 4 (1.1)* 113 (2.8) 117 (2.6) CK-mb increase over 3 fold 7 (1.9)* 164 (4.0) 171 (3.9) Pseudoaneurysm at groin entry site 2 (0.5) 37 (0.9) 39 (0.9) Pseudoaneurysm needing operation 0 (0) 17 (0.4) 17 (0.4) Mortality post PCI or in hospital 4 (1.1)* 14 (0.3) 18 (0.4) Coronary artery bypass grafting = CABG, creatinine kinase = CK, myocardial infarction = Ml, percutaneous coronary intervention = PCI. * = p <0.05, ** = p <0.01, *** = p <0.001. All other statistical comparisons are not significant. kransæðavíkkun vegna ST-hækkunar hjartadreps, fjöldi þrengdra kransæða, sykursýki og aldur, en fyrri saga um hjartadrep hafði minna vægi. Greind blóð- fituhækkun virtist hafa verndandi áhrif (tafla IV). Umræða Rannsókn þessi staðfestir að hér á landi er frumár- angur kransæðavíkkana jafn góður hjá sykursjúkum sem öðrum sjúklingum og helstu fylgikvillar eftir víkkun voru ekki algengari hjá hinum sykursjúku. Hins vegar reyndist sykursýki sjálfstæður áhættuþátt- ur fyrir dauða í sjúkrahúslegu eftir víkkunaraðgerð. Æðakölkun og áhœttuþœttir hjá sykursjúkum: Hlut- fallslega fleiri af sjúklingunum með sykursýki í nú- Læknablaðið 2004/90 229
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.