Læknablaðið - 15.06.2004, Blaðsíða 60
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRÁ HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGARÁÐUNEYTINU
Lyfjamál 126
Lækkun lyfjakostnaðar á faglegum forsendum
Lyfjakostnaður landsmanna var tæpir 14 milljarðar
kr. á síðasta ári. Hlutur ríkisins í þessari upphæð
var 9,4 milljarðar króna og hefur aukning síðustu
ára verið um það bil 10% milli ára. Að óbreyttu
má því gera ráð fyrir að á yfirstandandi ári verði
lyfjakostnaður ríkisins um 10,3 milljarðar króna.
Þegar þetta er skrifað bendir reyndar allt til þess að
kostnaðaraukningin verði mun meiri þar sem hækk-
un á lyfjaútgjöldum Tryggingastofnunar ríkisins (TR)
var um 18% hærri fyrstu fjóra mánuði ársins en á
sama tíma í fyrra.
Ábyrg lyfjanotkun - lægri sameiginleg útgjöld
Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið hefur á undan-
fömum mánuðum kannað ýmsar leiðir til að sporna
við útgjaldaaukningu vegna lyfjakostnaðar. í byrjun
ársins var til að mynda kynnt sérstakt átak í lyfja-
málum heilbrigðisstofnana sem einkum snýr að
vali lyfja, innkaupum og útboðum. Atakið er liður
í langtímaáætlun ráðuneytisins í lyfjamálum en
á næstu mánuðum og misserum er ætlunin að
endurmeta alla helstu þætti lyíjamála og heildar-
stefnu í málaflokknum. Nú á vormánuðum mun
ráðherra skipa nefnd til að móta stefnu í lyija-
málum og heildarendurskoðun lyfjalaganna en við
þá stefnumörkun mun nýútkomin skýrsla Ríkis-
endurskoðunar væntanlega verða lögð til grundvallar,
en nauðsynlegt er að bregðast við þeirri alvarlegu
niðurstöðu að Islendingar greiði rúmlega fjórum
milljörðum meira en samsvarandi fjöldi Dana eða
Norðmanna myndi greiða fyrir lyf á ári hverju.
Sparnaóur samkvæmt fjárlögum
Breytingin átti að hafa í för með sér að hætt væri
almennri greiðsluþátttöku í coxíb-gigtarlyfjum og
örvandi lyfjum eins og rítalíni og amfetamíni. Eftir
sem áður var gert ráð fyrir að hægt væri að sækja um
greiðsluþátttöku almannatrygginga í þessum tveimur
lyfjaflokkum út á lyfjaskírteini að gefnum ákveðnum
forsendum. Þessi aðgerð átti aðallega að koma bönd-
um á mikla notkun og mjög aukinn kostnað sem orðið
hefur að undanfömu í þessum lyfjaflokkum. í reglu-
gerðinni var einnig gert ráð fyrir að felld yrði niður 30
daga takmörkun á ávísun þunglyndislyfja og lyfja við
sársjúkdómi. Þannig átti að koma til móts við þá sem
nota þessa tvo lyfjaflokka og má segja að þetta hafi
verið verulega ívilnandi aðgerð til mótvægis við upp-
töku viðmiðunarverðs í þessum lyfjaflokkum.
Reglugerð frestað gegn verðlækkun á lyfjum
Sem kunnugt er ákvað ráðherra að fresta gildistöku
þessara aðgerða til 1. ágúst eftir að fyrir lá að Lyfja-
verðsnefnd myndi ná fram verulegri lækkun á
lyfjaverði og einnig til að tóm gæfist til að meta þann
árangur. Aður höfðu farið fram viðræður um þessar
aðgerðir við ýmis hagsmunasamtök. í þeim viðræðum
lýstu fulltrúar Gigtarfélagsins og gigtarlækna yfir
áhyggjum vegna þeirrar ákvörðunar að hætta
almennri greiðsluþátttöku í coxíb-gigtarlyfjum nema
gegn lyfjaskírteini. Að undanförnu hefur ráðuneytið
í samráði við samtök gigtarlækna og landlækni leitað
annarra leiða hvað þessi lyf varðar. Þeirri vinnu er
ekki lokið en gera má ráð fyrir að notast verði við
eftirfarandi vinnureglur við ávísanir auk þess sem
væntanlega verður tekið tillit til varnaðarorða Evr-
ópsku lyfjastofnunarinnar sem von er á innan tíðar.
Grein þessi er tekin saman af
skrifstofu lyfjamála heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins
til upplýsingar fyrir lesendur
Læknablaðsins.
Af gefnu tilefni er grein
þessi ekki skrifuð undir nafni
einstaks embættismanns, því
þær greinar sem birtar hafa
verið á þessum vettvangi
endurspegla ekki endilega
persónuleg sjónarmið
viðkomandi embaattismanns
heldur er um að ræða stefnu
ráðherra og ráðuneytis.
Til að koma til móts við 450 milljóna króna sparnaðar-
kröfu fjárlaga á lyfjaútgjöldum TR ákvað ráðherra
að grípa til margþættra aðgerða sem kynntar voru
á blaðamannafundi í byijun apríl. Veigamest í þeim
aðgerðum var verðlækkun lyfja sem Lyfjaverðsnefnd
vann að. Hins vegar var ekki reiknað með að lyfja-
verðslækkunin skilaði nema hluta þessa sparnaðar.
Ráðherra kynnti því meðal annars að tekið yrði
upp viðmiðunarverð lyfja með sambærileg meðferð-
aráhrif (analog-viðmiðunarverð) frá og með 1. maí
2004 í þremur kostnaðarfrekustu lyfjaflokkunum,
það er lyf við sársjúkdómi, (prótónpumpuhemlar),
lyf sem lækka kólesteról (statín) og geðdeyfðarlyf
(SSRI). Einnig kynnti ráðherra breytingu á reglugerð
um greiðsluþátttöku almannatrygginga í lyfjakostn-
aði með gildistöku 1. maí 2004.
Vinmireglur um ávísanir á cyclo-oxygenasa 2 haml-
andi lyfja - (DRÖG)
1. Eftirfarandi tengist mjög aukinni áhættu á fylg-
ikvillum frá meltingarfærum við meðferð með
bólgueyðandi gigtarlyfjum.
a) Aldur yfir 65 ára.
b) Fyrri saga um maga- eða skeifugarnarsár, blæð-
ingu frá meltingarvegi eða rof á maga eða skeifu-
görn.
c) Notkun lyfja sem auka líkur á fylgivandamál-
um frá efri mellingarvegi, til dæmis sterar eða
blóðþynningarlyf.
d) Aðrir sjúkdómar á alvarlegu stigi, svo sem
hjarta- og æðasjúkdómar, nýrna- eða lifrarsjúk-
dómar, sykursýki og háþrýstingur.
516 Læknablaðið 2004/90