Læknablaðið - 15.06.2004, Blaðsíða 35
FRÆÐIGREINAR / AUGNLÆKNINGAR
Þegar basi mætir auga . . .
Gunnar Már
Zoéga'
LÆKNIR
Jóhannes Kári
Kristinsson2
SÉRFRÆÐINGUR í
AUGNLÆKNINGUM
'Princess Alexandra Eye
Pavilion, 2Augndeild
Landspítala.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Gunnar Már Zoéga
Princess Alexandra Eye
Pavilion, Chalmers Street,
Edinburgh, EH4 3BY,
Skotlandi.
gmzoega@btinternet. com
Lykilorð: auga, basabruni,
meðferð.
Ágrip
Basabrunar á auga sem og áverkar af völdum sýru og
annarra ætandi efna eru meðal alvarlegustu áverka
sem auga verður fyrir. Ungir karlmenn við vinnu
verða oftast fyrir þessum skaða. Fumlaus fyrstu við-
brögð geta skilið á milli blindu og sjónar.
Tærleiki hornhimnu og æðateikning slímhúðar
gefa góðar upplýsingar um umfang skaðans. Ógegnsæ
hornhimna og hvít bjúgkennd slímhúð benda til
alvarlegs skaða. A sama hátt eru tær hornhimna án
skaða á yfirborðsþekju og erl slímhúð með kröftugri
æðateikningu jákvæð teikn eftir basaskaða.
Fyrstu viðbrögð við alla efnaskaða í augum eru
ávallt skolun með vatni. Skolun skal byrja strax eftir
slysið og halda áfram þar til sýrustig táravökvans er
orðið hlutlaust. Aðskotahluti verður að hreinsa vand-
lega í burtu. Að lokinni skolun eru sýklalyfjasmyrsli,
gervitár og „cyklóplegísk“ lyf (sjáaldursútvíkkandi
lyf) (svo sem Cyclogyl®) grunnmeðferð.
Umræða
Basísk efni valda niðurbroti vefja með því að leysa þá
upp (liquefactive necrosis) og smjúga dýpra inn í þá
en súr efni. Eiturverkun basans heldur áfram þar til
hann hefur verið fjarlægður. Augnskaðar vegna basa
eru meðal alvarlegustu áverka sem augu verða fyrir
og þurfa því skjóta meðhöndlun. Flestir sem verða
fyrir alvarlegum efnabruna í auga eru ungir karlmenn
og verða slysin oftast á vinnustöðum (1). Flér á eftir
verður fjallað um basabruna og fyrstu viðbrögð við
þeim. Önnur efni, svo sem sýrur og leysiefni, geta að
sjálfsögðu einnig valdið mjög alvarlegum augnáverk-
um og sjónskerðingu. Fyrstu viðbrögð við þeim eru
þau sömu og við basabruna.
Basísk efni finnast víða, í þvottaefnum, stfflu-
leysum, iðnaðarsápum, áburði, steypu og flugeldum
svo fáein dæmi séu tekin. Algengust eru ammoníak
(NH3, algengt í þvottaefnum), vítissódi (NaOH,
algengt í stffluleysum), kalíum hydroxíð (KOH),
magnesíum hydroxíð (Mg(OH)2, til dæmis í flugeld-
um) og kalk (Ca(OH)2). Nauðsynlegt er að fá upp-
lýsingar um heiti og efnainnhald þess sem fór í augað.
Liggi þessar upplýsingar ekki fyrir gagnast netið
vel til þess að finna nákvæmar efnalýsingar. Einnig
skiptir máli hvort efnablandan var þynnt eða óþynnt.
Þó almennt sé talið að basar með pH minna en 12 og
sýrur með pH meira en 2 valdi ekki alvarlegum skaða
skipta þynning og snertitími miklu máli. NH3 í sterkri
lausn kemst til dæmis gegnum hornhimnu og inn í for-
hólf augans á innan við einni mínútu (1,2).
ENGLISH SUMMARY
Zoéga GM, Kristinsson JK
Chemical injuries of the eye - management of
alkali burns
Læknablaöið 2004; 90: 491-3
Chemical injuries are among the most severe injuries to
the eye. Young men are most often affected. Work related
injuries are more common than other types of injuries.
Immediate treatment is paramount in preventing blindness.
In the case of an alkali injury, an opaque cornea and a
white edematous conjunctiva indicate a serious injury. In
contrast, a clear cornea and a mildly to moderately irritated
conjunctiva indicate a better prognosis.
Copious irrigation is always the first treatment for all
chemical injuries to the eye. Irrigation should be initiated as
soon as possible and is to be continued until the tearfluid
has regained a normal pH. Antibiotic ointment, lubrication
and cycloplegic drops (e.g. Cyclogyl®) form the basis of
treatment.
Key words: eye, chemical injury, treatment.
Correspondence: Gunnar Már Zoéga
gmzoega@btinternet. com
Basi getur eyðilagt auga á skömmum tíma og eru
áhrif hans fjölbreytileg, allt frá vægum skaða á þekju
hornhimnu annars augans til algjörrar eyðileggingar
yfirborðs og innri hluta beggja augna (2). Alvarleika
skaðans er hægt sjá að nokkru leyti með berum
augum. Annars vegar með því að skoða tærleika
hornhimnunnar og lita hana síðan með fluoroscein
litarefni og skoða í bláu ljósi. Grámi í homhimnu er
slæmur fyrirboði og minnkar möguleika á góðri sjón
verulega. Hins vegar með því að athuga hvort æða-
teikning slímhúðar og hvítu sjáist, það er hversu rautt
er augað? Þegar lútur hefur komist í auga er nefnilega
betra að það sé rautt og þrútið en alhvítt vegna þess
að það síðarnefnda merkir að lúturinn hefur brennt
fyrir og stíflað æðar (mynd 1).
Augnskolun er ávallt fyrsta meðferð þegar basi
kemst í auga og geta mínútur þá skilið á milli blindu
og sjónar (2). Best er að skola augað með vatni en sé
það ekki tiltækt er hægt að skola með nánast hvaða
öðrum hlutlausum vökva sem er. Mikilvægt er að
halda auganu vel opnu þegar það er skolað. Stöðugt
rennsli er heppilegast en annars getur verið gott að
hella úr glasi í augað. Ekki er mögulegt að skola of
mikið og helst á að nota ríkulegt magn en þó forðast
að nota of kraftmikla bunu. Það skal skýrt tekið fram
Læknablaðið 2004/90 491