Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 9
RITSTJÓRNARGREINAR
Hættan á heimsfaraldri af völdum
inflúensu A og viðbúnaður við honum
Inflúensa A birtist okkur í mörgum myndum. Ár-
lega ganga yfir faraldrar seni eru leifar heimsfar-
aldra inflúensu vegna smávægilegra breytinga á
mótefnavökum inflúensuveirunnar. Gegn þessum
faröldrum eru menn að hluta til varðir vegna
krossónæmis frá eldri sýkingum. Mögulegt er að
verjast með bólusetningu vegna þess að unnt er sjá
fyrir með nokkurri vissu hvaða inflúensustofnar
munu ganga yfir á hverjum vetri. Heimsfaraldrar
af nýjum inflúensustofnum sem menn hafa ekki
ónæmi fyrir ganga yfir tvisvar til þrisvar á öld
hið minnsta. Nú eru liðin tæp 40 ár frá því síðasti
heimsfaraldurinn reið yfir og þess vegna telja flest-
ir að skammt sé í næsta faraldur.
Inflúensuveira A er sameiginlegur sjúkdóms-
valdur manna og dýra en andfuglar eru nátt-
úrulegir hýslar veirunnar og bera hana í görnum.
Heimsfaraldur verður ef í fyrsta lagi nýr stofn af
inflúensu birtist í dýraríkinu, í öðru lagi ef þessi nýi
stofn berst í menn og í þriðja lagi ef hann getur bor-
ist greiðlega milli manna. Fyrstu tvö skilyrðin fyrir
heimsfaraldri inflúensu eru nú þegar fyrir hendi.
Spurningin er hvort þessi nýi stofn af inflúensu A
(H5N1) færist á þriðja stig og fari að berast milli
fólks. Þessu er ómögulegt að svara með vissu.
Ekki hefur tekist að ráða niðurlögum inflúensu-
faraldursins sem gengur um þessar mundir í fugl-
um. Hann hófst í Hong Kong 1997 og hefur síðan
breiðst út um SA-Asíu og þaðan til Síberíu og á
síðasta ári til nokkurra landa í SA-Evrópu. Víst
er að því lengur sem faraldurinn varir í fuglum því
meiri verða líkurnar á því að breytingar verði á
erfðaefni H5N1 veirunnar sem leitt geta til heims-
faraldurs í mönnum.
Er ástæða til að grípa til viðbúnaðaraðgerða
vegna heimsfaraldurs þegar ekki er vitað hvenær
hann ríður yfir? I heimsfaraldri má búast við
meiri útbreiðslu, mun alvarlegri einkennum, hærri
dánartíðni og röskun á allri starfsemi samfélagsins
en gerist í árstíðabundnum inflúensufaröldrum.
Ekki er unnt að fullyrða hversu þungt slíkur far-
aldur muni leggjast á fólk. Á síðustu öld voru
faraldrar misskæðir. Spænska veikin árið 1918
lagði að velli 50-100 milljónir manna í heiminum.
Asíuinflúensan 1957 og Hong Kong inflúensan
1968 voru mun vægari en ollu engu að síður tals-
verðum umframdauðsföllum.
Fyrri heimsfaraldrar inflúensu skullu á fyrirvara-
laust. í fyrsta sinn í sögunni geta menn fylgst með
heimsfaraldri inflúensu A í fæðingu. Með öflugu
alþjóðlegu vöktunar- og greiningarkerfi er vonast
til að unnt verði að stöðva slíkan faraldur í upp-
hafi. Skiptir samstarf við dýralækna miklu máli.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) gegnir
þar lykilhlutverki í samvinnu við Alþjóðadýrasjúk-
dómastofnunina (OIE). Á síðasta ári samþykkti
alþjóðaheilbrigðisþingið reglugerð sem tekur gildi
15. júní 2007 og verður skuldbindandi fyrir þjóðir
heims. Reglugerðin er um vöktun og viðbrögð við
alþjóðlegri útbreiðslu sjúkdóma. Vegna hugsanlegs
heimsfaraldurs ákvað framkvæmdastjórn WHO í
janúar 2006 að hvetja þjóðir heims til að taka strax
í gildi greinar reglugerðarinnar um vöktun og við-
brögð við nýjum stofni af inflúensu A.
Bóluefni gegn nýjum stofni af inflúensu A og in-
flúensulyf eru mikilvæg við að hefta og hægja á út-
breiðslu heimsfaraldurs inflúensu. Bóluefni verður
af skornum skammti í upphafi slíks faraldurs
vegna takmarkaðrar framleiðslugetu lyfjaiðnað-
arins. Island hefur hvatt til þess að Norðurlöndin
reisi verksmiðju til að framleiða inflúensubóluefni.
Niðurstaða hefur ekki fengist en á meðan ákvörð-
unar er beðið verður reynt að kaupa „heimsfarald-
urstryggingu" sem á að setja ísland í forgang þegar
framleiðsla bóluefnis hefst. Veirulyf (neuraminid-
asa hamlar) sem geta stytt sjúkdómstíma og dregið
úr einkennum sjúkdómsins verða mikilvæg ef þau
eru notuð rétt. í árslok 2005 voru til 89.000 með-
ferðarskammtar í landinu sem aðeins er heimilt
að nota í heimsfaraldri. Verið er að kanna kaup á
frekari lyfjabirgðum. Unnið er að því að tryggja
nægar öryggisbirgðir dreypilyfja og önnur nauðsyn-
leg lyf, hlífðarbúnað og veiruheldar grímur fyrir þá
sem stunda inflúensusjúklinga í návígi.
Sóttvarnalæknir og alnrannavarnadeild ríkis-
lögreglustjóra skipuleggur almennar sóttvarnaráð-
stafanir, svo sem einangrun, afkvíun, lokun skóla
og samkomubann (social distancing) og aðgerðir
til að tryggja nauðsynlega starfsemi í landinu.
Mikilvægt verður að vernda spítala svo þeir geti
sinnt veikasta fólkinu. Heilsugæslan í landinu mun
gegna þýðingarmiklu hlutverki við að sinna veiku
fólki í heimahúsum. Æskilegt er að veikt fólk haldi
sig heima og því nauðsynlegt að sjá því fyrir vistum
þar.
Viðbúnaðaráætlun við heimsfaraldri inflúensu
er flókið verk. Á komandi mánuðum og árum verð-
ur unnið að því að þróa áætlunina og kynna hana
fyrir heilbrigðisstarfsmönnum, löggæslu- og hjálp-
arsveitafólki og almenningi.
Haraldur Briem
hbriem@landlaeknir. is
The risk og influcnza
pandeniic and the
prcparcdncss against it
Haraldur is Chief
Epidemiologist of the
Directorate of Health
Höfundur er sóttvarnalæknir.
Læknablaðið 2006/92 93