Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 26
FRÆÐIGREINAR / NÆRINGARFRÆÐI
Tafla llb. Ukamsmál, grunnorkuþörfog orkuskeröing meöal kvenna í rann- sókninni (n=71).
Lægsta gildi Hæsta gildi Meöaltal SD
Þyngd, kg 71,4 109,6 84,3 6,5
Hæð, m 1,58 1,85 1,68 0,06
LÞS, kg/m2 27,7 32,7 30,0 1,4
Grunnefnaskipti, kcal/dag 1364 1966 1485 79
Heildarorkuþörf, kcal/dag* 1773 2556 1931 102
Ráölögð orkuinntaka miðað við 30% skeröingu, kcal/dag 1241 1789 1352 71
Heildarorkuskerðing, kcal/dag 532 767 579 31
* Miðað við PAL (Physical activity level) 1,3.
Tafla lla. Líkamsmál, grunnorkuþörf og orkuskerðing meðal karia í rann- sókninni (n=43).
Lægsta gildi Hæsta gildi Meöaltal SD
Þyngd, kg 83,8 122,3 98,2 9,0
Hæð, m 1,69 1,95 1,81 0,06
LÞS, kg/m2 27,5 32,5 30,0 1,4
Grunnefnaskipti, kcal/dag 1633 2178 1856 118
Heildarorkuþörf, kcal/dag* 2123 2831 2412 153
Ráðlögð orkuinntaka miðað við 30% skerðingu, kcal/dag 1486 1982 1689 107
Heildarorkuskerðing, kcal/dag 637 849 724 46
* Miöaö við PAL (Physical activity level) 1,3.
Tafla III. Þyngdarbreytingar og breytingar á útreiknuöum líkamsþyngdarstuðli á 8 vikna rannsóknartímabilinu.
Þyngd(kg) Fyrir íhlutun Að íhlutun lokinni Breyting
Meðaltal SD Meðaltal SD Meðaltal SD
Allir (n=114) 89,6 10,1 84,7 9,5 4,9 3,1
Karlar (n=43) 98,2 9,0 92,2 8,1 5,9 3,5
Konur (n=71) 84,3 6,5 80,1 7,1 4,2 2,6
LÞS (kg/m2)
Allir (n=114) 30,0 1,4 28,4 1,5 1,6 1,0
Karlar (n=43) 30,0 1,4 28,2 1,6 1,8 1,0
Konur (n=71) 30,0 1,4 28,5 1,5 1,5 0,9
(11.0) var notað við gagnavinnslu og lýsandi töl-
fræði. Munur á þyngdartapi kvenna og karla var
metið með t-prófi (independent sample t-test).
Niðurstöður
Alls luku 114 einstaklingar (81%) átta vikna íhlut-
un. Meðalaldur var 29,8 ± 5,2 ár. Reiknuð grunn-
efnaskipti (hitaeiningar/dag) þátttakenda voru á
bilinu 1364 hitaeiningar/dag til 2178 kcal/dag og
heildarorkuþörf dagsins var metin sem 2113 hitaein-
ingar/dag að meðaltali eða um 1930 hitaeiningar/
dag meðal kvenna og rúmar 2400 hitaeiningar/dag
meðal karla. í töflu Ila og Ilb sést heildarorkuþörf
dagsins fyrir orkuskerðingu, ráðlögð orkuinntaka
eftir 30% skerðingu auk þess hve mörgum hita-
einingum 30% orkuskerðing samsvaraði hjá þátt-
takendunum í rannsókninni. Matseðlarnir hlupu á
100 hitaeiningum þannig að sá einstaklingur sem
minnst þurfti fékk matseðil sem gaf 1200 hitaein-
ingar á dag. Sá sem þurfti mest fékk matseðil sem
gaf 2000 hitaeiningar á dag. Líkamsþyngdarstuðull
í upphafi íhlutunar (þegar orkuþörfin var reiknuð)
var um 30 kg/m2, bæði meðal karla og kvenna eins
og sjá má í töflu lla og Ilb.
Heildarþyngdartap allra þátttakendanna var
tæp fimm kg á átta vikum, eða að meðaltali 625 gr
á viku (tafla III). Þyngdartap karla í rannsókninni
var marktækt meira en meðal kvenna (um 740 gr
á viku á móti 525 gr á viku, p=0,003). Ef þyngdar-
tap er metið sem hlutfall af upprunalegri þyngd
þá léttust karlmenn að meðaltali um 6% af upp-
runalegri þyngd, en konur um 5%. Sá munur á
milli kynjanna var ekki tölfræðilega marktækur.
Einstaklingar í rannsókninni töpuðu frá 3% upp í
15% af upprunalegu þyngd á því átta vikna tímabili
sem rannsóknin náði yfir. Líkamsþyngdarstuðull
lækkaði að meðaltali um 1,6 ± 1,0 kg/m2. í upp-
hafi íhlutunar töldust 47% (n=54) í offitu (LÞS 30
kg/m2). Þeim hafði fækkað niður í 15% (n=17) í lok
íhlutunar. Fimm einstaklingar þyngdust um 0,1 til
2,2 kg meðan á íhlutun stóð.
Mittis- og mjaðmamál þátttakenda minnkaði
einnig marktækt á þeim átta vikum sem íhlutunin
stóð. Mittismál minnkaði á tímabilinu að meðaltali
um 4,5 (±2,9) cm sem samsvarar 5% lækkun frá
mittismáli í upphafi íhlutunar. Mjaðmamál minnk-
aði að jafnaði um 3,4 (±2,3) cm á tímabilinu og
samsvarar það um það bil 3% minnkun ef miðað
er við mjaðmamál fyrir fhlutun.
Umræða
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að næringar-
útreiknaðir matseðlar, þar sem orkuskerðing var
30% miðað við áætlaða orkuþörf einstaklingsins,
ásamt viðtali og ráðgjöf næringarfræðings, reyn-
ast vel við að ná fram þyngdartapi meðal ungra
íslendinga með líkamþyngdarstuðul á bilinu 28-
32 kg/m2. Skipting orkuefnanna í matseðlunum
var í samræmi við opinberar ráðleggingar (10).
Hópurinn sem um ræðir er mjög mikilvægur mark-
hópur, þar um er að ræða ungt fólk á aldrinum
20-40 ára. Sérfræðingar hafa undanfarin ár velt
því fyrir sér hvaða aðferð henti best til þyngdar-
taps. Til að tapa þyngd þarf orkuneysla að vera
minni en orkuþörf og í rannsókninni sem lýst er í
110 Læknablaðið 2006/92