Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 42
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Sigríður Ólína Haraldsdóttir sigrohar@landspitali. is Höfundur er lyf- og lungna- læknir og meðstjórnandi í stjórn LÍ. í pistlunum Af sjónurhóli stjórnar birta stjórnarmenn LI sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Fagna ber því að Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra lagði fram stjórnarfrumvarp fyrir jól um breytingu á lögum um tóbaksvarnir. Það felur í sér kröfu um reykleysi á veitinga- og skemmtistöðum. Frumvarpið á eftir að fara hina hefðbundnu leið umræðna í þinginu, en þetta er fyrsta skrefið og það er mikilvægt. Islendingar vilja varla vera eftir- bátar þeirra þjóða sem þegar hafa tekið upp algert reykleysi á þessum stöðum, og hinna þar sem slíkt hið sama er fyrirhugað. Heyrst hafa raddir, meira að segja þingmanna í heilsuátaki, sem gagnrýna þá „forræðishyggju“ sem endurspeglist í slíkum breytingum. Við þessar raddir segi ég: Það er miklu meiri forræðishyggja að þeir sem ekki reykja skulu vera nauðbeygðir til þess að anda að sér eitri á opinberum stöðum. Fyrir skömmu sá ég á netútgáfu Morgunblaðsins frétt um skoðun Svía á reykingabanninu á veitinga- stöðum og níu af hverjum tíu voru ánægðir með bannið, sem gekk í gildi fyrsta júní 2005. Nú hafa þau tíðindi gerst að Landspítali verður yfirlýstur reyklaus vinnustaður með öllu áramótin 2006/2007 og verður þá væntanlega reykherbergjum loksins lokað á spítalanum. Þá að öðru sem mér er líka afar hugleikið. Helga Hansdóttir, yfirlæknir í öldrunarlækning- um við Landspítala Landakoti, skrifaði mjög góða grein sem birtist í Morgunblaðinu 2. janúar síðastliðinn. Þar er rætt um þjónustu heilbrigðis- kerfisins við aldraða. Síðan hefur verið fjallað um aðbúnað skjólstæðinga á öldrunardeild spítalans á Landakoti í sama blaði. Þar er lýst svokallaðri minnisstofu þar sem útbúin hefur verið setustofa með munum frá þeim tíma sem vistmenn muna best. Með aðferðum hjúkrunarfólks og iðjuþjálfa er unnið markvisst að því að skapa umhverfi sem vistmenn þekkja og er það talið auka öryggi og ánægju þeirra. Ég er sérfræðingur á einni af lyflæknisdeildum Landspítala sem oft eru kallaðar bráðadeildir. Inn á deildina leggjast að stærstum hluta einstaklingar með lungnasjúkdóma sem þurfa greiningar og meðferðar við, það er þurfa þjónustu sérfræðinga í lungnalækningum, bæði lækna og hjúkrunarfólks. Þessir einstaklingar hafa langflestir komið fyrst á bráðamóttöku þar sem frumgreining og ákvörðun um innlögn fer fram. Raunveruleikinn er líka sá að á bráðamóttöku koma aldraðir einstaklingar sem af einhverjum ástæðum geta ekki verið heima leng- ur, en ekki er um bráða sjúkdóma að ræða. Þessir einstaklingar þurfa aðkomu starfsfólks af öllum stéttum sem sérhæft er í greiningu vandamála sem fylgja ellinni. Ef innlögn á spítalann er óhjákvæmi- leg er óskadeildin fyrir þessa einstaklinga alltaf öldrunarlækningadeild. En eins og Helga bendir á í grein sinni er sú óskastaða ekki fyrir hendi. Þar er yfirfullt og allflestir þar í bið eftir varanlegri vistun á hjúkrunar- eða dvalarheimilum. Þessir einstaklingar eru því lagðir inn á bráðadeildir. Þar bíða þeir oft mánuðum saman eftir varanlegri vistun. Ég hef oft hugsað um þetta þegar ég geng stofugang til þessa fólks og hef óskað þess að við gætum boðið upp á eitthvað meira við þeirra hæfi. A bráðadeildinni minni er engin setustofa, enginn matsalur og eina dægradvölin er sjónvarp og út- varp. Heimsóknargestir standa upp við vegg þar sem aðeins einn stóll fylgir hverju rúmstæði. Tíð skipti eru á herbergisfélögum. Þeir eru oftast mjög veikir og þeim fylgir oft ónæði af margvíslegum toga. Starfsfólkið er meðvitað um þessa annmarka bráðadeilda við að annast þennan hóp fólks en reynir að gera sitt besta til að létta þeim lund og líf. Það er samt oft á tíðum sorglegt að horfa upp á þetta. Það verður að efla heimaþjónustu aldraðra og sjúkra, opna fleiri bráðaöldrunardeildir og fleiri dvalarheimili fyrir aldraða sem ekki geta lengur verið heima. Það er hins vegar ekki nóg að byggja hús, ef starfsfólkið vantar gagnast byggingar ekki. Við höfum oftar en einu sinni vitað af lausum plássum á vistheimilum fyrir aldraða og hjá okkur voru einstaklingar sem hefðu þurft að komast þangað. Hins vegar hefur ekki verið unnt að taka á móti þessu fólki á vistheimilinu vegna þess að starfsfólk vantar. Þessu þarf að breyta. Ævikvöld allra ætti að vera á þann hátt að einstaklingnum sé sómi sýndur. 126 Læknablaðið 2006/92 J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.