Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 61

Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / GUDMANNS MINDE Gudmanns Minde Árið 2006 verða liðin 150 ár frá því fyrsta skurð- aðgerðin í svæfingu var gerð á íslandi. Sá merki atburður átti sér stað á Akureyri, nánar tiltekið í Aðalstræti 14 eða Gudmanns Minde. Þetta var að- eins 10 árum eftir að fyrsta svæfingin í heiminum var framkvæmd á Massachusets General sjúkra- húsinu í Boston í Bandaríkjunum. Eins og þar var þetta stórt framfaraskref. Nú var hægt að fara í skurðaðgerð án þessa að upplifa sársauka! Skurðlæknirinn sem framkvæmdi aðgerðina hét Jón Finsen. Sjúklingurinn var 15 ára stúlka með sull á baki. Jón notaði klóróform til að svæfa hana og aðgerðin gekk vel. Því miður hefur nafn stúlkunnar ekki fundist þrátt fyrir ítarlega leit. Aðgerðarlýsing er heldur ekki til. Mjög líklegt er að Jón hafi framkvæmt þessa aðgerð á heimili sínu að Aðalstræti 14 á Akureyri. Aðalstræti 14, eða Gudmanns Minde eins og það er kallað, á sér merka sögu. Það er byggt árið 1835 og er eitt af elstu tvílyftu íbúðarhúsum á landinu. Baldvin Hinriksson Skagfjörð fékk úthlutað lóð fyrir húsið 1827. Hann var fyrstur manna til að fá útmælda lóð í fjörunni á Akureyri. Herbergjaskipan var nýstárleg og gluggaskipan önnur en inenn áttu að venjast á þeim tíma. Þar eru upprunaleg hlaðin eldstæði á báðum hæðum en það var einsdæmi á þeim tíma. Eggerl Johnsen fjórðungslæknir í Norðlendingafjórðungi keypti húsið en ekkja hans seldi það Jóni Finsen sem bjó í því til 1872. Friðrik C.M. Gudmann keypti svo Aðalstræti 14 og gerði það upp fyrir eigið fé. Hann byggði þar einnig fjós og hlöðu. Þetta kostaði hann 10.000 dali. Hann sá að mikil þörf var á þjónustu við sjúklinga á Akureyri og færði Akureyrarbæ húsið að gjöf 5. nóvember 1873. Það var látið heita Gudmanns Minde til heiðurs gefandanum og var rekið sem spítali frá 1873. Varðveislugildi hússins Gudmanns Minde er óumdeilanlegt. Þetta er minnisvarði um kannski merkasta atburðinn í sögu skurð- og svæfingalækn- inga á íslandi. Á undanförnum árum hefur farið fram mikil vinna til viðgerðar og varðveislu á þessu merka húsi. Það hefur verið friðað og margir lagt til fjármagn og vinnu við endurbætur þess, meðal annars Læknafélag íslands. Enn er þó nokkuð langt í land að það verði tilbúið til notkunar og sýningar. Með samstilltu átaki vonumst við til að ljúka megi verkinu á næstu tveimur árum. Hér að ofan er Friðrik C.M. Gudmann en til hœgri er Jón Finsen sem gerðifyrstu skttrðaðgerð með svœfingtt á íslandi fyrir réttum 150 árttm. Gudmanns Minde er Itvíta húsið með bláa þakinu á myndinni hér að neðan. Höfundur er forstöðulæknir svæfinga- og gjörgæsludeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Læknablaðið 2006/92 145
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.