Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNADAGAR En áður en að því kom ræddi norski læknirinn Olav Aasland um þær breytingar sem orðið hafa á störfum og starfsumhverfi lækna frá því í upp- hafi síðustu aldar. Hann getur talað af reynslu því bæði faðir hans og afi voru læknar svo samanlögð reynsla þeirra feðga nær aftur til ársins 1907 þegar afinn útskrifaðist. Þá voru menn að uppgötva röntgentæknina og hlustunarpípan að verða tákn stéttarinnar og lykill að þeim launhelgum sem læknum einum voru kunnar. Aasland sagði að eftirstríðsárin hefðu verið gullöld lækna en þá var þeim lyft á stall sem 68- kynslóðin fór svo að stugga við um 1970. Þá var farið að gagnrýna lækna og þeir lögðust í vörn út á við. Inni á spítölunum var einnig vegið að þeim, ekki síst í krafti þess að öðrum heilbrigðisstéttum fjölgaði og óx ásmegin. Á undanförnum árum hefur staða lækna breyst umtalsvert. Kröfurnar til þeirra hafa breyst, áður var hlutverk þeirra ein- göngu að lækna sjúka en nú er þess einnig krafist að þeir auki vellíðan sem flestra. Áður var starf- semin miðuð við lækna sem þýddi að hjúkrunar- fræðingar gerðu það sem læknar höfðu ekki áhuga á að sinna. Nú byggist verkaskiptingin á hæfni þar sem læknar leiðbeina og gera það sem aðrir geta ekki gert. Heilbrigðiskerfið hafi hins vegar ekki fylgst nógu vel með þróuninni því það byggist á því að grípa inn í afmörkuð bráðatilfelli en flestir sjúk- dómar sem það fæst við séu orðnir krónískir. Allnokkrar umræður urðu að loknu erindi Olav Aasland, ekki síst eftir að hann sló því fram að ef til vill myndi fjölgun kvenna í stéttinni bjarga málunum því þær hefðu meiri áhuga á umönnun en hátækni. Að sjálfsögðu vildu ekki allar konur skrifa undir þennan skilning á hlutunum og spunn- ust af þessu nokkrar umræður. Rannsókn hennar náði þó eingöngu til þess hluta sem snýr að líðan og heilsu íslenskra lækna en ekki hefur enn verið hægt að vinna úr fjölþjóðlega hlutanum, bæði vegna þess að ítalirnir eru enn ekki búnir að leggja spurningarnar fyrir sitt fólk og vegna þess að ekki hefur tekist að afla fjár til að ljúka hinum íslenska hluta rannsóknarinnar. Árdís sagði að alþjóðlegar rannsóknir sýndu lægri dánartíðni í læknastétt og einnig að nýgengi krabbameina væri fátíðara í þeirra röðum. Hins vegar væri sjálfsmorðstíðni lækna yfir meðallagi í samfélaginu en það benti til þess að andlegt álag væri meira og að þeir þjáist af vinnutengdri streitu, kvíða og þunglyndi. HOUPE-rannsóknin beindist að því að leiða í ljós heilsutengda hegðun lækna, auk þess sem þeir voru beðnir að leggja mat á eigin heilsu og lýsa hvernig þeir hegða sér þegar þeir veikjast sjálfir. Það veikir niðurstöðurnar nokkuð að innan við helmingur íslenskra lækna, 47,4%, svöruðu. Á hinn bóginn var úrtakið mjög stórt, allir læknar með lækningaleyfi, 1189 talsins. Einnig kom í ljós að samsetning hópsins sem svaraði, 563 lækna, var með mjög svipaður og heildarinnar hvað varðar kynjaskiptingingu og aldursdreifingu. Svarendur ættu því að endurspegla allan lækna- hópinn ágætlega. Þegar læknar voru beðnir að greina frá eigin heilsufari kom í Ijós að 35% lækna undir sjötugu sögðust vera með langvarandi heilsufarsvanda en aðeins 3% kváðu vandann hamla þeim í vinnu. Algengustu sjúkdómarnir voru ofnæmi (28%), háþrýstingur (rúm 20%) og þunglyndi (rúm 15%). Einnig kom fram að á bilinu 35-40% eiga erfitt með svefn eða eru með verki, einkum í baki. Þessi tíðni er töluvert hærri en hjá öðrum stéttum. Þegar lagt var fyrir lækna svonefnt GHQ-próf sem mælir geð- raskanir kom í ljós að ungir læknar sýndu mun meiri geðraskanir og meiri en algengt er í samfélaginu. Þungiyndir með bakverk Eftir kaffi steig í pontu Árdís Björk Ármannsdóttir læknanemi sem tók að sér að vinna úr þeim upp- lýsingum sem fram komu í HOUPE-rannsókninni. Áfengisneysla yfir meðailagi Þegar litið var á reykingar lækna kom í ljós að þeir Olav Aasland lœknir frá Noregi rœddi um stöðu lœknisins í heila öld. Á stœrri myndinni situr liann ípallborði ásamt Sigurði Guðmundssyni landlœkni, Kristni Tómassyni, Ólöftt Sigurðardóttur, Árdísi Björk Ármannsdóttur, Ófeigi Porgeirssyni og Lilju Sigrúnu Jónsdóttur sem stjórnaði umrœðum. Læknablaðið 2006/92 137
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.