Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2006, Page 16

Læknablaðið - 15.02.2006, Page 16
FRÆÐIGREINAR / ÁTRASKANIR Önnur rannsókn var gerð á nýgengi átraskana hjá innlögðum á geðdeildir landsins (Landspítali, Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, barna- og unglingageðdeild Landspítala og geðdeild A2, Sjúkrahúsi Reykjavíkur) á árunum 1983 til og með 2001 (27). Á öllu tímabilinu greindust 52 konur (51,5% kvennanna) og tveir karlmenn með lyst- arstol og að auki tveir karlmenn með ódæmigert lystarstol. Að jafnaði greindust 2,7 konur á ári með lystarstol (sjá mynd 1). Nýgengi lystarstols fyrir konur á geðdeildum á Islandi 1983-2001 er því 2,1/100.000 (reiknað út frá mannfjöldatölum Hagstofunnar á tímabilinu). Þessar tölur eru svipaðar og lýst er á geðdeildum í Danmörku á árunum 1973-1987, þar sem nýgengi lystarstols hjá konunt var 1,9/100.000 (28). Talsverð aukning varð á lotugræðgigreiningum og á ódæmigerðri átrösk- un eftir árið 1990 og tengist það líklega aukinni meðvitund urn þessa sjúkdóma (27). Lotugræðgi (Bulimia nervosa) Greiningarviðmið og einkenni í töflu II má sjá greiningarviðmið fyrir lotugræðgi Tafla II. Greiningarviðmið fyrir lotugræðgi (4). A. Endurtekin ofátsköst. Ofátskast einkennist af hvoru tveggja: 1. Neyta, innan vissra tímamarka (þ.e. innan tveggja klukkustunda), magns fasöu sem er augljóslega meira en flestir myndu neyta á sama tíma og undir sömu kringumstæöum. 2. Tilfinningu um að hafa ekki stjórn á áti meðan á átkasti stendur (það er tilfinningu um að geta ekki hætt eða stjórnað hvað eða hversu mikið viðkomandi borðar). B. Endurteknar óeðlilegar mótvægisaðgerðir til að koma I veg fyrir þyngdaraukningu, svo sem að framkalla uppköst, misnota hægðalyf eða þvaglosandi lyf, fasta eða stunda óhóflegar líkamsæfingar. C. Bæði átköst og óeðlilegar mótvægisaögerðir eiga sér stað að meðaltali að minnsta kosti tvisvar í viku I þrjá mánuði. D. Sjálfsmynd er óeðlilega háð líkamslögun og þyngd. E. Ofangreind einkenni einskorðast ekki við tímabil lystarstols. DSM-IV tilgreinir tvær megingerðir lotugræðgi: Hreinsandi gerð (Purging type): á tlmabili lotugræðgi stundar viðkomandi reglulega sjálfviljug uppköst eða misnotar hægðalyf, þvaglosandi lyf eða stólpípu. Ekki hreinsandi gerð (Nonpurging type): á tímabili lotugreeðgi stundar viókomandi aðra mótveegishegðun, svo sem föstur eða óhóflegar Itkams- æfingar en hefur ekki stundað reglulega sjálfviljug uppköst eða misnotaö hægðalyf, þvaglosandi lyf eða stólpípu. Mynd 1. Nýgengi átraskana á geðdeildum á íslandi, árin 1983-2001 (27). samkvæmt DSM-IV greiningarkerfinu (4). ICD-10 setur einnig fram greiningarviðmið fyrir lotugræðgi (9) en þau þykja ekki eins ítarleg og DSM-IV greiningarviðmiðin. DSM-IV skil- merkin flokka lotugræðgi í hreinsandi gerð og ekki hreinsandi gerð og í raun er hægt að fá sjúk- dómsgreiningu án þess að framkalla reglubundin uppköst eftir ofát. Slíkt er ekki hægt samkvæmt ICD greiningarkerfinu sem leyfir einnig að sjúk- lingur sé greindur með lotugræðgi jafnvel þótt viðkomandi sé í undirþyngd. Sumir telja lotugræðgi einkennast af uppköst- um en uppköst eru ekki skilyrði fyrir að fá grein- ingu samkvæmt DSM-IV. Þó er talað um að 80 til 90% lotugræðgisjúklinga sem leita sér aðstoðar framkalli uppköst en hinir beiti annars konar hreinsunarhegðun (4). Líkt og í lystarstoli þá eru einstaklingar með lotugræðgi helteknir af því að reyna létta sig og halda í við sig í mat. Ýmsir sálfræðilegir og lík- amlegir þættir hrinda átköstum af stað, til dæmis vanlíðan, depurð, einmanaleiki og hungur sem stundum er líkt við matarfíkn. Einstaklingur borðar stjórnlaust, oft í leyni, óhóflega mikið magn af hitaeiningaríkum mat en ekki er óalgengt að hitaeiningafjöldinn í einu átkasti sé á bilinu 1000 til 2000 hitaeiningar (12). Eftir átkast fyllist viðkomandi vanlíðan, fær samviskubit, hræðist þyngdaraukningu og reynir að losa sig við allar hitaeiningarnar (hreinsunarhegðun). Stundum eru átköstin skipulögð og einstaklingurinn skapar sér aðstæður þar sem hann veit að hann getur stundað hreinsunarhegðun á eftir. Lotugræðgisjúklingar eru yfirleitt í kjörþyngd og eiga því oft auðvelt með að dylja veikindi sín þar sem holdafar þeirra er eðlilegt. Stöðug uppköst og misnotkun á hægða- og vatnslosandi lyfjum leiða hins vegar oft til sjúkdóma í munnholi, tönnum og meltingarfærum. Þessir sjúklingar leita því gjarnan til meltingarlækna og tannlækna. Bjúgur vegna röskunar á vökva- og saltbúskap, húðvandamál og blæðingatruflanir eru einnig algengar kvartanir hjá lotugræðgisjúklingum og leiða oft til rannsókna og meðferða hjá læknum (29). Þróun og framvinda lotugrœðgi Lotugræðgi byrjar yfirleitt á unglingsárum og nær hámarki við 16 til 18 ára aldur (30). Algengt er að unglingar séu uppteknir af holdafari og útliti. Kanadísk rannsókn sýndi að 27% skólastúlkna á aldrinum 12 til 18 ára notuðu óeðlilegar megrun- araðferðir og höfðu afbrigðilegt viðhorf til matar (31). Tvær nýlegar íslenskar rannsóknir sýndu að um helmingur íslenskra stúlkna í 10. bekk grunn- skóla hafði farið í megrun og um 14% drengja (7, 8) en eins og áður er lýst er megrun einn stærsti 100 Læknablaðið 2006/92

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.