Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2006, Page 17

Læknablaðið - 15.02.2006, Page 17
FRÆÐIGREINAR / ÁTRASKANIR áhættuþáttur átröskunar. Hjá þeim sem síðar leiðast út í alvarlegri átröskun eða lotugræðgi, líða að meðaltali fimm ár þar til viðkomandi leitar sér aðstoðar (12), en einkenni fara gjarnan leynt og skömm fylgir sjúkdómnum. Framvinda og batahorfur lotugræðgi eru ein- staklingsbundin. Almennt má segja að lotugræðgi hafi tilhneigingu til að vera þrálát og horfur eru slæmar hjá einstaklingum sem ekki fá meðferð. Yfirlitsgrein frá 2003 um batahorfur sjúklinga með lotugræðgi greindi frá því að stór hluti þeirra á við langvinn veikindi að stríða með alvarlegum sálfélagslegum afleiðingum þó dánartíðni sé mun lægri en hjá lystarstolssjúklingum (32). í breskri rannsókn á 16 til 35 ára konum í almennu þýði með lotugræðgi komu í ljós svipaðar niðurstöður og við lystarstol. Við fimm ára eftirfylgni höfðu 49% kvennanna enn einkenni átröskunar, tæplega þriðjungur þeirra uppfyllti öll greiningarskilmerki lotugræðgi og um 20% töldust læknaðar. Um það bil 40% hópsins hafði einhvern tímann leitað að- stoðar vegna átröskunar, fyrir eða á rannsóknar- tímabilinu (33). Rannsókn Keel og Mitchell (34) leiddi í ljós að hlutfall látinna með lotugræðgi var um það bil 0,3 % en líklega er um vanmat að ræða þar sem eftirfylgdartímabilið var frentur stutt. Almennt má telja að lotugræðgi sé vanskráð í dán- armeinaskrám og dánartíðni geti verið hærri eins og hjá lystarstolssjúklingum. Faraldsfrœði lotugrœðgi Tíðnitölur benda til þess að lotugræðgi sé algeng- ari en lystarstol og virðist tíðni lotugræðgi hafa aukist á undanförnum áratugum (35). Lotugræðgi, eins og lystarstol, er mun algengari meðal kvenna en svo virðist sem að minnsta kosti 90% sjúklinga séu konur (36, 37). Faraldsfræðilegar rannsóknir gefa til kynna að nýgengi lotugræðgi sé unt það bil 12 tilfelli á móti 100.000 manns á ári (25). Yfirfært á íslenskar aðstæður má því búast við 36 nýjum tilfellum af lotugræðgi árlega. Að sama skapi er talið að aðeins brot af sjúklingum leiti meðferðar en búast má við að á hverjum tíma séu 1,5% ungra kvenna og 0,1 % ungra karla úti í þjóðfélaginu með lotugræðgi (25, 38). Rannsóknir á algengi lotugræðgi meðal kvenna í háskóla benda til þess að tíðnin sé hærri hjá þess- um hópi en gengur og gerist hjá ungum konum al- mennt (39). í nýlegri íslenskri rannsókn fengu 16% háskólakvenna (meðalaldur um 25 ár) átröskun- argreiningu samkvæmt átröskunarspurningalista og meirihluti þeirra, eða 10%, uppfyllti grein- ingarskilmerki fyrir lotugræðgi eða neðanmarka lotugræðgi (40). Bandarísk rannsókn sem einnig byggði á átröskunarspurningalista leiddi svipað í ljós, það er um 17% kvenstúdenta fékk mögulega átröskunargreiningu samkvæmt listanum (41). Ekki eru til einhlítar skýringar á þessu hærra hlut- falli meðal háskólakvenna. Er hugsanlegt að ungar konur í háskóla upplifi miklar kröfur til sín og samkeppni og það síðan geti ýtt undir kröfur um ákveðið útlit og síðan átröskun. Átröskun ekki nánar skilgreind (EDNOS) Greiningarviðmið, helstu einkenni og algengi Greiningin „átröskun ekki nánar skilgreind“ (EDNOS) er notuð fyrir átraskanir sem tengjast lystarstoli eða lotugræðgi og uppfylla mörg en ekki öll greiningarviðmið þeirra. DSM-IV kerfið styðst við ákveðin greiningarskilmerki (sjá töflu III) en ICD-10 greiningarkerfið notar hugtökin ódæmi- gert lystarstol (atypical anorexia nervosa) og ódæmigerð lotugræðgi (atypical bulima nervosa) án frekari útlistana (9). Tafla III. Greiningarviðmið fyrir átröskun ekki nánar skilgreind (EDNOS) (4). 1. Fyrir stúlkur/konur, viðkomandi uppfyllir öll greiningarviðmið lystarstols en blæðingar eru reglulegar. 2. Viðkomandi uppfyllir öll greiningarviðmið lystarstols en þrátt fyrir þyngdartap er þyngd innan eðlilegra marka. 3. Viðkomandi uppfyllir öll greiningarviðmiö lotugræðgi en átköstin og óviðeigandi mótvægishegðun á sér stað sjaldnar en tvisvar í viku eða hefur varað skemur en í þrjá mánuði. 4. Einstaklingur í eðlilegri þyngd sýnir óviðeigandi mótvægishegðun eftir að hafa neytt lítils magns fæðu (framkallar til dæmis uppköst eftir að hafa borðað tvær smákökur). 5. Mikiö magn af mat er reglulega tuggið og spýtt út en ekki kyngt. 6. Lotuofát (binge eating disorder): endurtekin átkastatímabil án reglulegrar beitingar óviðeigandi mótveegishegðunar sem er einkennandi fyrir lotugrasðgi. Flestir þeirra sem leita sér aðstoðar vegna átraskana fá greiningu EDNOS. í nýútkominni yfirlitsgrein Fairburn og Bohn (42) er bent á að um 60% átröskunarsjúklinga sem er vísað í meðferð fá EDNOS greiningu, 15% greininguna lystarstol og 25% lotugræðgigreiningu. Fjórðungur EDNOS sjúklinganna í samantektinni höfðu sögu um lyst- arstol og 40% um lotugræðgi. Niðurstöður þeirra sýna glöggt takmarkanir núverandi greiningar- kerfis fyrir átraskanir og óstöðugleika greiningar. Fairburn leggur til að allar átraskanir séu sam- einaðar undir einn hatt og bendir á að EDNOS sjúklingar eru oft jafn veikir og lystarstols- og lotugræðgisjúklingar en fá minni athygli, síður meðferð og litlar rannsóknir eru gerðar á þessum hópi (42). Aðrar rannsóknir hafa einnig sýnt þessa háu tíðni á EDNOS og taka undir þau sjónarmið að greiningarkerfið sé úrelt (43, 44). Hætta er á að þessi hópur verði útundan í heilbrigðiskerfinu þar sem einkenni þeirra eru ekki tekin nógu al- varlega. Læknablaðið 2006/92 101 L

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.