Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2006, Side 46

Læknablaðið - 15.02.2006, Side 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FÍKNIEFNI OG OFBELDI með þann vanda. „Hins vegar hefur orðið veruleg aukning á neyslu ópíumlyfja á borð við kódínlyf og conlalgin sem koma úr apótekum landsins og eru því heimatilbúinn vandi. Það koma um 100 einstaklingar á ári sem hafa sprautað sig í æð með contalgini, þar af um helmingur ný tilvik. Þetta er lítill hópur miðað við neytendur hinna efnanna en hann fer stækkandi og þetta fólk er mjög lasið. Við höfum alls fengið 1400 sprautufíkla inn á Vog, þeir eru um 100 nýir á ári og aldur þeirra fer lækkandi,“ segir hún. Ofbeldið hefur aukist Kristín og margir kollegar hennar á slysadeildinni finna fyrir þessari breytingu í aukinni notkun fíknifefna á íslandi og ofbeldi samhliða því. „Á hverjum einasta degi eru hér fíklar með einhverjar afleiðingar af neyslu, til dæmis sýkingar, krampa eða í annarlegu ástandi, með áverka hvort sem er eftir slys, sjálfskaða eða ofbeldi, félagslegan vanda og áfram mætti telja,“ segir Kristín. „Mörgum okkar sem störfum á bráðamóttök- unni finnst ofbeldið hafa aukist og breyst. Það virðist meira um tilefnislaust ofbeldi og að haldið sé áfram að misþyrma fólki eftir að það er fallið. Menn hafa alltaf slegist en hér áður fyrr var hætt þegar annar var fallinn. Nú virðist allt í lagi að halda áfram og sparka og kýla varnarlaust fólk. Það mætti jafnvel halda að það væri frítt spil að sparka í fólk sem hefur fallið í áfengisdá. Þetta finnst okkur oft tengjast fíkniefnunum því þegar fólk er undir áhrifum þeirra er það æst og erfiðara að tjónka við það. Starfsfólk hefur orðið fyrir hótunum og jafnvel árásum. Ég varð undr- andi þegar fyrrverandi starfsmaður á deildinni sagði mér frá því hvers vegna hann flutti sig á aðra deild, honum leið illa hér, var beinlínis hræddur við að starfa við þessar aðstæður. Ég sem hélt að hann vildi bara breyta til. Við höfum gripið til þess ráðs að hafa lögreglumenn hér allar nætur og um helgar sem endurspeglar vaxandi áhyggjur starfsfólksins af ofbeldinu. Lögreglan er líka fljót að liðsinna okkur þegar við leitum til hennar,“ segir Kristín. Valgerður tekur fram að það sé aðeins lítill hluti fíkla og alkóhólista sem beiti ofbeldi. „En það hefur eflaust aukist í kjölfar meiri neyslu örv- andi efna. Oft er um að ræða beinar afleiðingar af áhrifum efnanna, í þeim skilningi að menn ætla sér ekki að valda skaða en efnin svipta þá hömlum og sjálfsstjórn svo niðurstaðan verður gróft ofbeldi," segir hún. Er ofbeldið að færast til? í umræðum sent orðið hafa í kjölfar ráðstefnunn- ar hefur komið fram nokkuð misjafn skilningur á ofbeldinu í Reykjavík. Að sögn Karls Steinars Valssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns hefur dregið verulega úr skráðu ofbeldi í miðborginni eftir að opnunartíma veitingahúsa var breytt árið 1999. Skráð ofbeldið í borginni í heild hefur einnig minnkað en ekki eins mikið. Þetta stangast á við reynslu starfsfólks á bráðamóttökunni. „Því miður getum við ekki tekið undir þessi orð,“ segir Kristín. „Vissulega hefur lengdur opn- unartími gert það auðveldara fyrir lögregluna að sinna löggæsluhlutverki sínu, meðal annars fylgjast með í öryggismyndavélunum, þar sem fólk kemur ekki allt út af skemmtistöðunum á sama tíma. Það hefði hins vegar verið hægt að leysa það með því að loka stöðunum á mismunandi tímum, í stað þess að lengja opnunartímann. Borgin er í raun að senda út þau skilaboð að það sé allt í lagi að drekka lengur og meira. En varðandi ofbeldið í heild þá eigum við erfitt með að vísa í tölur vegna þess að skráningarkerf- inu var breytt hjá okkur árið 1999 (og lögreglunni líka um svipað leyti) svo við höfum ekki raunhæf- an samanburð við árin áður en opnunartímanum var breytt. Við fáum fjögur greind ofbeldisbrot inn til okkar á dag að meðaltali." Kristín bætir því við að sá vandi fylgi tölum slysadeildar að þær byggjast á ástæðu sem gefin er upp við komu. „Stundum kemur ekki í ljós fyrr en inni á deild að áverkinn stafar af ofbeldi en það ratar ekkert endilega inn í skráninguna og þar með tölfræðina," segir hún. Sá vandi fylgir að vísu allri tölfræði um ofbeldi og er síður en svo sér íslenskur. „Ég var á þingi í Skotlandi ekki alls fyrir löngu,“ segir Kristín. „Þar var kynnt rannsókn sem benti til að einungis 12% þolenda ofbeldisbrota tilkynntu þau til lögreglu og 11% greindu frá þeim á bráða- deild. Það athyglisverðasta við þessa rannsókn var þó að á þessum tilkynningum var ekki nema 1-3% skörun. Það vekur upp þá spurningu hvort réttara væri að leggja tölur okkar og lögreglunnar saman! Það er ennþá of mikið ofbeldi í gangi í þjóðfé- laginu okkar hvort sem er í miðbænum eða annars staðar. Vandinn er að það kemst ekki endilega inn í skráninguna. Við fáum fólk hingað sem ekki hefur talað við lögregluna, það segir hana hvergi hafi verið nærri eða að það hafi ekkert upp á sig eða hreinlega vill ekki blanda henni í málið. Enskur sjónvarpsfréttamaður sem kom hingað fékk að fylgjast með miðbænum í eina nótt og störfum lög- reglu í nokkrar klukkustundir. Hann hafði verið fylgjandi lengdum opnunartíma veitingahúsa en snerist hugur eftir þessa nótt. Hann upplifði það tvívegis að þeir komu að þar sem fólk var að slást og einhverjir lágu alblóðugir í götunni, en þeir 130 Læknablaðið 2006/92 j

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.