Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2006, Qupperneq 60

Læknablaðið - 15.02.2006, Qupperneq 60
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LYFJAFRÆÐI / BRÉF TIL BLAÐSINS haldið niðri af kostnaðarástæðum og niðurstaðan er sú að hér er engin apótekslyfjafræði eða lyfja- stoð í þróun. Kennsla er hafin á þessu sviði í sam- rærni við það sent er að gerast erlendis en mögu- leiki til verklegrar þjálfunar á vettvangi er nánast enginn. Það er sem sagt ekki markvisst notuð sérþekking lyfjafræðinga í apótekum og þeir eru hvergi starfandi annars staðar í heilsugæslu eða við langtímameðferð: á heilsustofnunum, heilsugæslu- stöðvum eða göngudeildum Landspítala. Eitt sem þessi þróun og viðhorf til lyfjafræðinga hefur haft í för nteð sér er að þeir hafa sótt sér viðbótarmennt- un í stjórnun og rekstri sem vonandi leiðir til þess að þeir komist að til þess að koma faglegum sjón- armiðum á framfæri. Lyfjafræðingafélag Islands fylgist grannt nteð þeirri þróun sem hefur átt sér stað erlendis á svið- um lyfjastoðar og apótekslyfjafræði. Fulltrúar frá félaginu sækja reglulega fundi og ráðstefnur hjá þeim alþjóðlegu og fjölþjóðlegu samtökum sem félagið er aðili að. Það hlýtur því að vera eðlilegt að leitað sé til lyfjafræðinga þegar endurskipu- lagning heilbrigðikerfisins stendur yfir. Það hlýtur að vera skylda heilbrigðisyfirvalda við stefnumót- un í heilbrigðisþjónustu að nýta sem best þá þekk- ingu sem fólgin er hjá sérfræðingum hvers fagsviðs á heilbrigðissviði. Heimildir Alþjóöa heilbrigðismálastofnunin, heimasíða, www.who.int Félag bandarískra lyfjafræðinga hjá heilbrigðisstofnunum, www.ashp.org Cippolle RJ, Strand, LM, Morley PC, Pharmaceutical Care Prac- tice: The Clinician s Guide, Second Edition, Mc Graw-Hill companies, Inc., 2004 The Pharmaceutical Journal, www.pjonline.com Alþjóða samtök lyfjafræðinga, heimasíða, www.fip.org Samtök lyfjafræðifélaga Evrópuríkja og Alþjóða heilbrigðismála- stofnunarinnar, www.eiiro.who.int/europharm Tengslanet lyfjafræðifélaga í Evrópu um lyfjastoð, www.pcne.org Kaiser Permanente, www.kaiserpermanente.org Geðlyfjafræðihópur Bretlandseyja, www.ukppg.org.uk Diana Jones, Clinical Pharmacists working with Mental Health Teams, A patient orientated model for health care profes- sionals, APS Publishing, 2004, www.apspublishing.co.uk Alþjóðlegt, amerískt félag ráðgjafarlyfjafræðinga, www.ascp.com VAPAHCS, spítalar, göngudeildir og hjúkrunarstofnanir, www. palo-alto.med. va.gov Af klæðaburði - framhald af bls. 141 Þegar hér var komið sögu fjölluðu stjórnir LR og LI sameiginlega um málið. Sú umfjöllun var op- inská og skoðanir skiptar. A engu stigi þeirrar um- ræðu tel ég að afstaða stjórnarmanna hafi mótast af þeim kærumálum og bréfaskriftum lögmanna sem í gangi voru. Stjórnarmönnum var hins vegar ávallt kunnugt unt meint hagsmunatengsl málsaðila. Mér vitanlega hafði enginn stjórnarmanna nein óeðli- leg hagsmunatengsl við Kára Stefánsson ellegar íslenska erfðagreiningu. Sumir stjórnarmenn töldu að stöðu sinnar vegna flokkaðist Kári Stefánsson sem opinber persóna í íslensku þjóðlífi og ætti þar af leiðandi að þola meira og verra umtal en aðrir. Það var hins vegar álit meirihluta stjórnarmanna að Kári ætti njóta þess réttar sem siðareglur okkar mælast fyrir um til jafns við aðra lækna. Jafnframt var haft í huga eftirfarandi hluti sáttmála læknis- fræðitímarita: „In all instances, editors must make an effort to screen out discourteous, inaccurate, or libelous statements, and should not allow ad ho- ntinem arguments intended to discredit opinions or findings." Stjórnir félaganna komu sér saman um að mikilvægast væri að útgáfa Læknablaðsins héldi áfram án truflana, en umræðan hafði þegar markað starfsemina. Því hófst leit stjórna LR og LI að hæfurn læknum til þess taka sæti þeirra rit- stjóra sem höfðu sagt af sér. Þegar eftirgrennslan leiddi í Ijós að ekki fengist starfhæf ritstjórn með óbreyttum ábyrgðarmanni var ákveðið að leita til Jóhannesar Björnssonar prófessors um að leiða nýja ritstjórn og jafnframt marka ritstjórnarstefnu fyrir Læknablaðið í samræmi við alþjóðlegar leið- beiningar lækna- og lífvísindatímarita. Eg tel að enginn stjórnarmanna LR eða LÍ hafi með þessu sýnt Kára Stefánssyni undanlátssemi. Þess í stað var haft að leiðarljósi að hann nyti sömu réttinda og aðrir læknar í samræmi við siðareglur okkar. Skammaryrði útilegumanna eru mælt af heilum hug en án þess að þeir hafi leitað til byggða í fréttaleit. Líklega er því um að kenna að stjórnir læknafélaganna hafa ekki dregið fram öll atriði málsins til kynningar meðal félagsmanna, hvað þá til utangarðsmanna, því oft má satt kyrrt liggja. Stjórn Læknafélags Reykjavíkur lítur svo á að af- skiptum sínum af ritstjórn Læknablaðsins sé lokið að sinni. Stjórn LR ber fullt traust til þeirra sem þar sitja og hefur falið þeim að ntarka ritstjórnar- stefnu í samræmi við siðareglur lækna- og vísinda- samfélaganna. Við hörmum að starfslok Vilhjálms Rafnssonar við Læknablaðið hafi borið að með þeim hætti sem raun varð en þökkum honum fram- lag hans til blaðsins í gegnum árin. Heimildir www.icmje.org www.wame.org 144 Læknablaðið 2006/92
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.