Læknablaðið - 15.02.2006, Side 66
UMRÆÐA & FRÉTTIR / DREIFIBRÉF LANDLÆKNIS
Dreifíbréf Landlæknisembættisins nr. 3/2005
Andlát sem læknar þurfa að tilkynna til lögreglu
í júní síðastliðnum var sent út til heilbrigðisstofnana dreifibréf
landlæknisembættisins með fyrirmælum um hvaða andlát þarf
að tilkynna til lögreglu, samkvæmt lögum um dánarvottorð,
krufningar og fleira, nr. 61/1998 og reglugerð nr. 248/2001.
Ætlast var til að forsvarsmenn stofnananna kynntu efni þess
fyrir læknum sínum. Einhver misbrestur hefur sums staðar
orðið á því að svo hafi verið gert. Því hefur embættið farið þess
á leit að bréfið verði birt í Læknablaðinu, en bréfið má auk
þess finna á heimasíðu embættisins www.Iandlaeknir.is
Sérstök athygli er vakin á því að ákvörðun um réttarkrufn-
ingu er í höndum lögreglu en ekki læknis. Ætla má að lögregla
taki þá ákvörðun að jafnaði í samráði við lækni. Komi sú
Fyrirmæli landlæknis um hvaða andlát þarf að tilkynna til
lögreglu skv. lögum um dánarvottorð, krufningar o.fl. nr.
61/1998 og reglugerð nr. 248/2001
1. Dauðsfall þar sem grunur er um refsivert athæfi, óháð
tímalengd frá því að verknaður var framinn þar til við-
komandi lést og óháð því hvorl áverki/áverkar eru bein
dánarorsök eða samverkandi þáttur í dauða.
2. Dauðsfall þar sem grunur er um slys eða óviljaverk, hvort
heldur dauðsfallið tengist áfengis- eða vímuefnanotkun
eða ekki, óháð tímalengd frá því atviki þar til viðkom-
andi lést og óháð því hvort áverki telst bein dánarorsök
eða samverkandi þáttur dauða.
3. Dauðsfall þar sem grunur er um sjálfsvíg, óháð tímalengd
frá því að atburðurinn gerðist og þar til viðkomandi lést.
4. Dauðsfall án sjúkdómsaðdraganda, sem skýrir andlátið.
5. Dauðsfall á vinnustað.
6. Dauðsfall í fangelsi.
7. Dauðsfall sem tengist læknisaðgerð eða lyfjagjöf óháð
tímalengd frá því atviki.
staða upp að læknir telji sig ekki vita dánarorsök, en lögregla
telji ekki ástæðu til réttarkrufningar ber lækni eftir sem áður að
rita dánarvottorð og þá að dánarorsök sé ókunn.
Hafa skal í huga að rétt er að tilkynna um óvænt dauðsfall
ef læknir er í vafa. Stundum eru læknar óvissir um hvernig þeir
eiga að bera sig að við að tilkynna lögreglu um óvænt dauðsfall.
í mörgum tilvikum nægir væntanlega eitt símtal, einkum ef um
er að ræða dauðsfall á sjúkrahúsi eða hjúkrunarheimili. Þegar
óvænt dauðsfall er tilkynnt lögreglu hringir læknir í síma 112 og
biður um fjarskiptamiðstöð lögreglu sem lætur málið í hendur
lögreglumanns með reynslu á þessu sviði.
Matthías Halldórsson, aöstoðarlandlæknir
8. Dauðsfall sem verður innan við 24 klst. frá innlögn á
bráðamóttöku, hafi ekki á þeim tíma fengist fullnægjandi
skýring á andlátinu, enda þótt ekkert ákvæði ofangreind-
ra liða 1-7 eigi við.
9. Fæðing andvana barns (fullar 22 vikur og vegur 500 g
eða meira) þar sem saga er um áfengismisnotkun og eða
eiturlyfjaneyslu móður.
10. Fundið lík.
Dauðsföll sem falla undir lið 1-10 að ofan skulu tilkynnt
viðeigandi lögregluembætti í síma 112 og biðja um fjarskipta-
miðstöð lögreglu. Skv. lögum skal læknir sem annaðist sjúk-
linginn eða læknirinn sem kom að andlátinu tilkynna það til
lögreglu. Skv. lögum tekur lögreglan ákvörðun um nauðsyn
réttarkrufningar en ekki læknar. Þó svo atvikið sé tilkynninga-
skylt til lögreglu leiðir það ekki alltaf til réttarkrufningar.
Landlæknir
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 1/2006
Bólusetning gegn hettusótt
Að gefnu tilefni vill sóttvarnalæknir koma því
á framfæri að einstaklingar sem fæddir eru eftir
1985 en hafa ekki verið bólusettir með MMR
bóluefninu eiga rétt á bólusetningu þeim að
kostnaðarlausu. Þessir einstaklingar áttu rétt á
MMR bólusetningu við 18 mánaða aldur (hófst
1989) og síðar við 9 ára aldur (hófst 1994) og því
ber að líta svo á að ofangreindir einstaklingar
falli undir fyrirkomulag almennra ungbarnabólu-
setninga á Islandi.
Sóttvarnulæknir
150 Læknablaðid 2006/92