Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2006, Qupperneq 69

Læknablaðið - 15.02.2006, Qupperneq 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HUGÐAREFNI En þarf ekki að kunna til verka áður en menn hefja siglingar? „Jú, til þess að geta leigt skútur og siglt einir verða menn að hafa einhverja reynslu og réttindi sem hægt er að afla sér hér heima í Siglingaskólanum. Sjálfur tók ég pungaprófið snemma og aflaði mér meiri réttinda síðar, núna er ég með full réttindi til úthafssiglinga á seglskútu.“ Sjókort og bækur Siglingarnar kveiktu annað áhugamál hjá Haf- steini. „Uppruninn og þátttakan í siglingum leiddi til þess að ég fór að kynna mér siglingar við landið og á N-Atlandshafi fyrr á tímum. Ég kynnti mér fornar hafnir og siglingar á þær og ennfremur staði þar sem útræði hefur verið stundað. Ég hef farið víða um landið í þessum tilgangi og reyni þá alltaf að ræða við heimamenn. Ég hef leitað fanga víðar því ég fór að grúska í gömlum bókum og komst meðal annars í gamlar sjóleiðsögubækur. Petta varð að ástríðu og í dag safna ég slíkum bókum og einnig gömlum sjókortum og stúdera þetta mér til mikillar ánægju. Mér hefur gengið allvel að safna bókunum en síður með kortin en hef þó haft að- gang að góðu kortasafni. Nýlega náði ég í gömul þýsk sjókort af íslandi frá tímabilinu 1906-1937 sem höfðu verið í notkun í byrjun seinna stríðs sem voru sannkallaður happafengur. Ég hef svo reynt að miðla félögum mínum í siglingum af þekkingu minni með því að flytja fyrirlestra í klúbbnum okkar, Brokey - Siglingafélagi Reykjavíkur. Við Niels erum ekki einu læknarnir sem stunda eða hafa stundað siglingar. Guðjón Vilbergsson á skútu og siglir sér til skemmtunar og hefur einnig starfað mikið í félagsmálum siglingamanna. Tómas Jónsson á mjög fallega skútu og siglir og keppir af kappi. Bjarni Hannesson á skútu sem hann siglir á sér til skemmtunar. Reyndar heyrði ég nýlega að hann hefði keppt eitthvað í fyrrasumar á Akureyri Skútan Perla sem Hafsteinn og Þórdís kona hans eiga á Majorku með vinafólki sínu. og kom ekki á óvart því hann var mikill keppnis- maður hér áður fyrr. Magnús K. Pétursson keppti í mörg ár með Bjarna við góðan orðstír. Aðrir sem ég man eftir eru Sigurgeir Kjartansson sem ég held að sé enn að sigla og Birgir Guðjónsson sem var mjög virkur hér fyrr á árum.“ Fjallaferðir og gæsaveiðar Siglingarnar eru ekki eina útivistin sem freistar Hafsteins. „Önnur útivist sem ég stunda eru fjallaferðir, sil- ungs- og skotveiði. Við hjónin ferðumst um landið á okkar fjallabíl sem er amerískur pallbíll með Ögrun (með rauða seglið) á leið inn Skerjafjörð í síðsumarmóti Brokeyjar 2005. Hafsteinn stendur á framdekkinu og stjórnar belgseglinu. Læknablaðið 2006/92 153
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.