Læknablaðið - 15.02.2006, Síða 76
LAUSAR STÖÐUR / ÞING
LANDSPÍTALI
hAskólasjúkrahús
Deildarlæknar í starfsnámi
Deild: Lyflækningadeildir
Svið: Lyflækningasvið I og II
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2006
Deildarlæknar í starfsnámi óskast við lyflækningadeildir frá 1. júní/júlí 2006. Deildarlæknar hljóta víðtæka þjálfun í
almennum lyflækningum í tengslum við störf á öllum sérdeildum lyflækningasviða I og II ásamt bráðamóttöku og
göngudeildum spítalans. Ráðning til allt að þremur árum er í boði sem hluti af sérnámi í almennum lyflækningum
sem Landspítali stendur fyrir og hentar þeim sem hyggja á frekara sérfræðinám í lyflækningum eða skyldum greinum.
Fjölbreytt tækifæri gefast til þátttöku í rannsóknarverkefnum í samvinnu við sérfræðilækna á lyflækningasviðum.
Umsóknum, sem skila ber á þar til gerðum eyðublöðum, skulu fylgja náms- og starfsferilsskrá (curriculum vitae),
ásamt tveimur meðmælabréfum.
Umsóknir berist fyrir 15. febrúar nk. til Steins Jónssonar, framhaldsmenntunarstjóra lyflækningasviða, E-7 Fossvogi,
steinnj@landspitali.is og veitir hann upplýsingar ásamt umsjónardeildarlæknunum Teiti Guðmundssyni, teiturg@land-
spitali.is og Signýju Völu Sveinsdóttur, signysv@landspitali.is, sími 543 1000.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim.
Laun eru skv. kjarasamningi sjúkrahúslækna og er starfið bundið við sjúkrahúsið eingöngu, sbr. yfirlýsingu Landspítala vegna
kjarasamnings við sjúkrahúslækna dags. 2. maí 2002. Flægt er að nálgast umsókn um lækningaleyfi eða læknisstöðu á
heimasíðu Landspitala - www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSFI við ráðningar í störf á Landspítala.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali er reyklaus vinnustaður.
Heilbrigðisstofnun
Suðausturlands, Hornafirði
Yfirlæknir
Laus er til umsóknar staða yfirlæknis við Heilbrigðis-
stofnun Suðausturlands Hornafirði, um er að ræða
100% stöðu.
Æskilegt er að umsækjandi hafi viðurkenningu sem
sérfræðingur í heimilislækningum. Laun eru samkvæmt
úrskurði kjaranefndar við heilsugæslulækna og kjara-
samningi sjúkrahúslækna.
Starfssvæði Heilbrigðisstofnunarinnar er A-Skaftafells-
sýsla og eru íbúar um 2400.
Umsóknum skal skila á viðeigandi eyðublöðum sem fást
á skrifstofu landlæknis til Guðrúnar Júlíu Jónsdóttur,
framkvæmdastjóra, Heilbrigðisstofnun Suðausturlands,
Víkurbraut 31, 780 Hornafirði, sími 478-1400, gjj@hssa.
is sem gefur jafnframt nánari upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2006.
Fræðsludagur
heimilislækna
4. mars 2006
Hinn árlegi fræðslu- og fagnaðardagur heimilislækna
verður haldinn á Nordica Hótel fyrsta laugardag í mars.
Öldrunarlæknar eru sem fyrr hjartanlega velkomnir.
Fræðsludagurinn er sem áður skipulagður af FÍH og
styrktur af AstraZeneca.
Dagskráin hefst kl. 9:00.
Nánari dagskrá verður send læknum sérstaklega.
Fræðslunefnd FÍH
AstraZeneca
160 Læknablaðið 2006/92