Læknablaðið - 15.02.2006, Síða 90
SÉRLYFJATEXTAR
AstraZeneca^
Hver tafla inniheldur: Quetiapinum INN fúmarat, samsvarandi Quetiapinum INN 25 mg, 100 mg, 200 mg og 300 mg. Ábendingar: Geðklofi. Meðalalvarlegar til alvarlegar geðhæðarlotur. Ekki hefur verið sýnt fram á að Seroquel komi f veg fyrir
endurteknar geðhæðar- eða þunglyndislotur (sjá kafla 5.1 (f Sérlyfjaskrá)). Skammtar og lyfjagjöf: Seroquel á að gefa tvisvar á dag, með eða án matar. Fullorðnlr: Við meðferð á geðklofa er heildardagsskammtur fyrstu fjóra daga meðferðarinnar
50 mg (dagur 1), 100 mg (dagur 2), 200 mg (dagur 3) og 300 mg (dagur 4). Frá fjórða degi á að breyta skammti smám saman í venjulegan virkan skammt sem er á bilinu 300-450 mg á dag. Ef þörf krefur má breyta skammtinum frekar, háð
klínfskri svörun og þoli viðkomandi sjúklings, innan skammtabilsins 150-750 mg/dag. Við meðferð á geðhæðarlotum í tengslum við tvíhverfa geðröskun (bipolar disorder) er heildarskammtur fyrstu fjóra daga meðferðarinnar 100 mg (dagur 1),
200 mg (dagur 2), 300 mg (dagur 3) og 400 mg (dagur 4). Frekari skammtabreytingar f allt að 800 mg/dag á degi 6 ætti að gera með því að auka skammt í mesta lagi um 200 mg/dag. Skömmtum má breyta, háð klínfskri svörun og þoli viðkomandi
sjúklings, innan skammtabilsins 200-800 mg/dag. Árangursrík verkun fæst venjulega á skammtabilinu 400-800 mg/dag. Aldraðlr: Eins og við á um önnur geðrofslyf, á að nota Seroquel með varúð hjá öldruðum, sórstaklega í upphafi meðferðar.
Verið getur að breyta þurfi skömmtum hægar og lækningalegur dagsskammtur getur verið lægri en hjá yngri sjúklingum en það er háð klínískri svörun og þoli viðkomandi sjúklings. Úthreinsun quetíapíns úr plasma var að meðaltali um 30-50%
hægari hjá öldruðum en hjá yngri sjúklingum.Börn og ungllngar: Mat á öryggi og verkun lyfsins hjá börnum og unglingum er ekki fyrirliggjandi. Sjúklingar með nýrnabllun: Ekki er nauðsynlegt að breyta skömmtum. Sjúklingar með lifrarbllun:
Quetfapín umbrotnar að miklu leyti f lifur. Því skal nota Seroquel með varúð hjá sjúklingum með þekkta lifrarbilun, sérstaklega í upphafi meðferðar. Upphafsskammtur Seroquel ætti að vera 25 mg/dag hjá sjúklingum með þekkta lifrarbilun. Skammtinn
skal auka daglega um 25-50 mg þar til viðunandi skammti er náð, sem er háður klfnfskri svörun og þoli viðkomandi sjúklings. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins.Samtfmis notkun á cýtókróm P450 3A4 ensímhemlum, eins og
HlV-próteasa hemlum, azól sveppalyfjum, erýtrómýcfni, klaritrómýcíni og nefazódóni er frábending. (Sjá einnig kafla 4.5 í Sérlyfjaskrá: Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir). Sérstök varnaöarorð og varúöarreglur við notkun: Hjarta
og æöakerfi: Seroquel á að nota með varúð hjá sjúklingum með þekktan hjarta- og æðasjúkdóm, sjúkdóm í heilaæðum og sjúklingum sem hættir til að fá of lágan blóðþrýsting. Quetiapine getur orsakað réttstöðuþrýstingsfall, sérstaklega í upphafi
þegar verið er að auka skammta smám saman, því skal fhuga að minnka skammta eða auka skammta hægar ef þetta gerist. Krampar: í klínískum samanburðarrannsóknum var enginn munur á tfðni krampa (seizure) hjá sjúklingum sem fengu
Seroquel eða lyfleysu. Eins og á við um önnur geðrofslyf, skal gæta varúðar við meðhöndlun sjúklinga sem hafa fengið krampa. Utanstrýtueinkenni: í klfnfskum samanburðarrannsóknum var enginn munur f tfðni utanstrýtueinkenna hjá sjúklingum
sem fengu ráðlagða skammta eða lyfleysu. Síðkomln hreyfitruflun (tardlve dysklnesla): Ef vart verður merkja eða einkenna um síðkomna hreyfitruflun ætti að fhuga að hætta notkun Seroquel eða minnka skammta. Illkynja sefunarheilkenni
(Neuroleptlc Malignant Syndrome): lllkynja sefunarheilkenni hefur verið tengt við meðferð með geðrofslyfjum, þ.m.t. Seroquel (sjá Aukaverkanir). Klínísk einkenni eru t.d. ofurhiti, breytt andlegt ástand, vöðvastffni, óstöðugleiki í ósjálfráða
taugakerfinu og hækkun á kreatín fosfókínasa. í slíkum tilvikum skal hætta gjöf Seroquel og veita viðeigandi lyfjameðferð. Milliverkanlr: Sjá einnig kaflann um Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir. Þegar Seroquel er notað samtímis
öflugum lifrarensímahvötum s.s. karbamazepíni eða fenýtóíni lækkar plasmaþéttni quetíaplns verulega og getur það haft áhrif á Seroquel meðferðina. Sjúklingum sem nota lifrarensímhvata skal eingöngu gefa Seroquel ef læknir metur kosti Seroquel
meðferðar mikilvægari áhættunni af því að hætta töku lifarensímhvatans. Það er mikilvægt að allar breytingar á notkun ensímhvatans gerist hægt og ef nauðsyn krefur nota annað lyf sem ekki hvetur lifrarensím (t.d. natrlumvalpróat). Blóðsykurshækkun:
Blóðsykurshækkun eða versnun á sykursýki hefur komið fram í einstaka tilvikum meðan á meðferð með quetíapíni stendur. Mælt er með viðeigandi klínísku eftirliti hjá sykursjúkum og hjá sjúklingum sem eru í hættu á að fá sykursýki (sjá einnig
kaflann um Aukaverkanir). Frekari upplýsingar: Upplýsingar um Seroquel gefið ásamt dívalproexi eða litíum í meðalalvarlegum til alvarlegum geðhæðarlotum eru takmarkaðar; engu að slður þoldist samsett meðferð vel (sjá kafla 4.8 og 5.1 I
Sórlyfjaskrá). Niðurstöðurnar sýndu samverkun I viku 3. Önnur rannsókn sýndi ekki samverkun I viku 6. Engar upplýsingar eru fyrirliggjandi um samsetta meðferð eftir viku 6. Milliverkanir viö önnur lyf og aörar milliverkanlr: Þar sem áhrif
quetíaplns beinast að mestu að miðtaugakerfinu ber að gæta varúðar við samtfmis notkun Seroquel og annarra lyfja sem verka á miðtaugakerfið sem og alkóhóls. Cýtókróm P450 (CYP) 3A4 er það ensím sem hefur mest áhrif á cýtókróm P450
miðlað umbrot quetíapíns. [ rannsókn á milliverkunum sem gerð var á heilbrigðum sjálfboðaliðum og gefið var saman quetíapín (25 mg) og ketókónazól, CYP3A4 hemill, jókst flatarmál undir blóðþóttniferli (AUC) quetíapíns 5 til 8 falt. Með þetta
til hliðsjónar þá er samtímis notkun quetíapíns og CYP3A4 hemla frábending. Einnig er ekki mælt með að drekka greipaldinsafa með töku quetíapíns. I fjölskammta rannsókn sem gerð var til að meta lyfjahvörf quetíapíns þegar það var gefið
fyrir og samtímis meðferð með karbamazepíni (þekktum lifrarensímhvata) kom fram að karbamazepín eykur úthreinsun quetíapíns marktækt. Þessi aukning á úthreinsun minnkaði almenna útsetningu fyrir quetíapíni (mælt sem AUC) að meðaltali
niður I um 13% af því sem var þegar quetíapín er notað eitt sér; þó að meiri áhrif hafi komið fram hjá sumum sjúklingum. Afleiðing þessarar milliverkunar getur verið minni plasmaþóttni sem getur haft áhrif á Seroquel meðferðina.
Samtímis notkun Seroquel og fenýtóíns (annar míkrósómal ensímhvati) jók úthreinsun quetíapíns um það bil 450%. Hjá sjúklingum sem nota lifrarensímhvata ætti eingöngu að hefja meðferð með Seroquel ef læknir metur það svo að kostir Seroquel
meðferðarinnar séu meiri en áhættan af að hætta notkun lifrarensímhvatans. Það er mikilvægt að allar breytingar á notkun lifrarensímhvatans gerist hægt og ef nauðsyn krefur nota annað lyf sem ekki hvetur lifrarensím (t.d. natríumvalpróat) (sjá
einnig kafla 4.4 Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun).Lyfjahvörf quetiapíns breyttust ekki marktækt við samtímis notkun þunglyndislyfjanna imípramíns (þekktur CYP 2D6 hemill) eða flúoxetíns (þekktur CYP 3A4 og CYP 2D6 hemill).
Geðrofslyfin risperídón og halóperidól höfðu ekki marktæk áhrif á lyfjahvörf quetíapíns þegar þau voru notuð samtímis. Úthreinsun quetíapíns jókst um það bil 70% þegar tiorídazín er gefið samtímis. Lyfjahvörf quetíapíns breytast ekki ef það er
notað samtímis cimetidíni. Lyfjahvörf litíums breytast ekki ef það er notað samtimis Seroquel. Þegar natríumvalpróat og Seroquel voru gefin samtímis breyttust lyfjahvörf þeirra ekki að því marki að það hefði klíníska þýðingu. Ekki hafa verið
gerðar formlegar rannsóknir á milliverkunum við algeng lyf gegn hjarta- og æðasjúkdómum. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanirnar sem greint hefur verið frá við meðferð með Seroquel eru svefnhöfgi, sundl, munnþurrkur, vægt þróttleysi,
hægðatregða, hraður hjartsláttur, réttstöðuþrýstingsfall og meltingartruflanir. Eins og á við um önnur geðrofslyf hefur þyngdaraukning, yfirlið, illkynja sefunarheilkenni, hvítfrumnafæð, hlutleysiskyrningafæð og útlægur bjúgur tengst notkun Seroquel.
Tíðni aukaverkana í tengslum við meðferð með Seroquel, er talin upp hér að neðan í samræmi við þá uppsetningu sem Council for International Organizations of Medical Sciences (CIOMS III Working Group; 1995) mælir með. Tíðni aukaverkana
er flokkuð f samræmi við eftirfarandi: Mjög algengar (>1/10), algengar (>1/100, <1/10), sjaldgæfar (>1/1000, <1/100), mjög sjaldgæfar (>1/10.000, <1/1000) og einstðk tilvik (<1/10.000). Blóð og eltlar: Algengar: Hvftfrumnafæð. Sjaldgæfar:
Fjölgun eósínfíkla. Einstök tilvik: Daufkyrningafæð. Ónæmiskerfl: Sjaldgæfar: Ofnæmi. Efnasklpti og næring: Einstök tilvik: Blóðsykurshækkun, sykursýki. Taugakerfi: Mjög algengar: Sundl, svefnhöfgi, höfuðverkur. Algengar: Yfirlið. Sjaldgæfar:
Krampar. Einstök tilvik: Síðkomin hreyfitruflun (tardive dyskinesia) Hjarta: Algengar: Hraðtaktur. Æðar: Algengar: Réttstöðuþrýstingsfall. Öndunarfæri, brjósthol og miðmæti: Algengar: Nefslímubólga. Meltingarfæri: Algengar: Munnþurrkur,
hægðatregða, meltingartruflanir. Lifur og gall: Mjög sjaldgæfar: Gula. Einstök tilvik: Lifrarbólga. Húð og undirhúð: Einstðk tilvik: Ofsabjúgur, Stevens-Johnson heilkenni. Æxlunarfærl og brjóst: Mjög sjaldgæfar: Standpína. Almennar aukaverkanir
og ástand tengt ikomuleið: Algengar: Vægt þróttleysi, útlægur bjúgur. Mjög sjaldgæfar: lllkynja sefunarheilkenni.
Pakkningar og verð: Töflur 25 mg: 100 stk (þynnupakkað); 9.181 kr., Töflur 100 mg: 30 stk (þynnupakkað); 7.811 kr., 100 stk (þynnupakkað); 17.040 kr., Töflur 200 mg: 30 stk (þynnupakkað);
11.255 kr., 100 stk (þynnupakkað); 28.042 kr., Töflur 300 mg: 100 stk (þynnupakkað); 42.567 kr., Töflur, samsett pakkning: 10 stk (þynnupakkað; 6 x 25 mg, 3 x 100 mg, 1 x 200 mg); 2.310 kr.
Afgreiöslutilhögun: R. Greiðsluþátttaka: 100 (Tryggingastofnun greiðir lyfið að fullu.). Ágúst 2005.
Markaösleyfishafi: AstraZeneca UK Ltd., Macclesfield, Cheshire. Umboð á íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. Nánari upplýsingar er að finna í Sérlyfjaskrá.
Seroquel
quetiapine
SEROQUEL
AstraZeneca: SAMANTEKT A EIGINLEIKUM LYFS Seroquel töflur N 05 A H 04
Zeldox
Pfizer ApS
Stungulyfsstofn og leysir: Hvert hettuglas inniheldur 20 mg ziprasídon (sem mesýlat). Eftir blöndun inniheldur hver 1 ml af stungulyfinu 20 mg
zíprasídon (sem mesýlat). Ábendingar: Zeldox stungulyfsstofn og leysir, lausn er ætlað til meðferðar á bráðum æsingi geðklofasjúklinga, í mesta lagi
í 3 daga í röð þegar meðferð til inntöku hentar ekki. Hætta skal meðferð með Zeldox stunguiyfsstofni og leysi, lausn og breyta yfir í gjöf til inntöku
um leið og klínískt ástand leyfir. Sjá milliverkanir og sérstaka varúð varðandi mögulega lengingu á QT-bili. Skömmtun: Zeldox i.m.: Til notkunar í
vöðva þegar meðferð til inntöku er ekki talin henta. Fullorðnir: Ráðlagður skammtur er 10 mg gefið eftir þörfum að hámarksskammti sem er 40 mg
á dag. 10 mg skammta má gefa á 2 klukkustunda fresti. Sumir sjúklingar gætu þurft 20 mg upphafsskammt sem má fylgja eftir með 10 mg til viðbótar
eftir4 klukkustundir. Eftir það má gefa 10 mg skammta á tveggja klukkustunda fresti að hámarks dagskammti sem er40 mg. Gjöf zíprasídons í vöðva
lengur en 3 daga í röð hefur ekki verið rannsökuð. Ef þörf er á langtíma meðferð ætti að skipta yfir á zíprasídon hýdróklórið hylki til inntöku, allt að
80 mg tvisvar sinnum á sólarhring, eins fljótt og mögulegt er. Aldraðir: Klínísk reynsla af i.m. meðferð hjá öldruðum (> 65 ára) er takmörkuð. Ekki
er mælt með meðferð með stungulyfinu hjá þessum sjúklingahópi. Börn: Lyfið er ekki ætlað börnum. Skert lifrarstarfsemi: Hugleiða þarf minni
skammta. Skert nýrnastarfsemi: Stungulyf til notkunar í vöðva á að nota með varúð. Frábendingar: Þekkt ofnæmi fyrir zíprasídoni eða einhverju
hjálparefnanna. Þekkt lenging á QT-bili. Meðfætt langt QT heilkenni. Nýafstaðin bráð kransæðastífla. Ómeðhöndluð hjartabilun. Hjartsláttartruflanir
sem eru meðhöndlaðar með lyfjum úr flokki IA og III við hjartsláttartruflunum. Samtímis meðferð með lyfjum sem lengja QT-bil svo sem lyf við
hjartsláttartruflunum úr flokki IA og III, arsenictríoxíð, halófantrín, levómetadýl acetat, mesórídasín, tíróídasín, pímósíð, sparfloxacín, gatifloxacín,
moxifloxasín, dólasetrón mesýlat, meflókín, sertindól eða cisapríð. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur: Zíprasidon veldur litilli eða í meðallagi
mikilli skammtaháðri lengingu á QT-bili (sjá frábendingar og milliverkanir). Zíprasídon á því ekki að gefa samtímis öðrum lyfjum sem vitað er að lengja
QT-bil. Gæta þarf varúðar hjá sjúklingum með verulega hægan hjartslátt. Truflun á saltajafnvægi t.d. blóðkalíumlækkun og blóðmagnesíumlækkun
eykur líkurnar á hættulegum hjartsláttartruflunum og þarf því að leiðrétta áður en meðferð með zíprasídoni hefst. Áður en meðferð sjúklinga með
hjartasjúkdóma sem hafa náð jafnvægi hefst þarf að meta þörf fyrir hjartalínurit. Ef QTc-bil er >500 msek. er mælt með að hætta meðferð. Öryggi og
verkun zíprasídons hjá börnum og unglingum hefur ekki verið staðfest. Fullnægjandi fjöldi aldraðra hefur ekki teklð þátt í klínískum rannsóknum. Þar
af leiðandi er ekki hægt að gefa ráðleggingar varðandi skömmtun og notkun stungulyfsins hjá þessum sjúklingahópi ekki ráðlögð. Ekki hefur verið greint
frá illkynja sefunarheilkenni (NMS) hjá sjúklingum sem fengu zíprasídon í klínískum rannsóknum. Við NMS ætti að hætta töku lyfsins. Mælt er með
því að gæta varúðar þegar sjúklingar með sögu um krampa eru meðhöndlaðir. Nægjanlegur fjöldi sjúklinga með hjarta- og æðasjúkdóma hefur ekki
tekið þátt í klínískum rannsóknum. Þar af leiðandi hefur öryggi við notkun stungulyfsins í vöðva ekki verið staðfest. Gæta skal varúðar hjá sjúklingum
með alvarlega skerta lifrarstarfsemi. Nánar varðandi Zeldox i.m.: Sundl, hraðtaktur og réttstöðuþrýstingsfall er ekki óalgengt hjá sjúklingum eftir gjöf
zíprasídons í vöðva. Greint hefur verið frá einstaka tilviki um háþrýsting. Gæta skal varúðar, sérstaklega hjá göngudeildarsjúklingum. Milliverkanir:
Það á ekki að gefa zípraxídon saman með lyfjum sem lengja QT-bil. í öllum rannsóknum á milliverkunum hefurverið notað zíprasídon til inntöku. Meðferð
með karbamasepíni, 200 mg tvisvar á sólarhring í 21 dag, leiddi til um það bil 35% minnkunar á magni zíprasídons í líkamanum. Meðganga og
brjóstagjöf: Lyfið er ekki ætlað þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Aukaverkanir: Zeldox til notkunar í vöðva hefur verið gefið meira
en 1.000 einstaklingum í klínískum rannsóknum. Algengustu aukaverkanir sem komu fram voru verkur á stungustað, ógleði, slen og sundl. Aukaverkanir
(>1%): þróttleysi, höfuðverkur, háþrýstingur, réttstöðuþrýstingsfall, niðurgangur, óeirð. Ofskömmtun: Ekkert sértækt mótefni er til fyrir zíprasídóni.
Pakkningar og verð 1. janúar 2006; sts. 20 mg/hgl, 1 hgl.: 2.135 kr. Lyfið er lyfseðilsskylt. Stungulyf er S merkt. Greiðslufyrirkomulag: *. Nánari
upplýsingar er að finna í Sérlyfjaskrá. Umboðs-og dreifingaraðili: Vistor hf.
Pfizer/Vistor hf. • Hörgatúni 2
212 Garðabæ • Sími 535 7000
www.pfizer.is
Heimild: David G. et al. "Intramuscular (IM) ziprasidone
20 mg is effective in reducing acute agitation associated
with psychosis: a double-blind, randomized trial."
Psychopharmacology (2001) 155: 128-134.
174 Læknablaðið 2006/92