Læknablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 65
LAUSAR STÖÐUR
XX Deildarlæknir í starfsnámi
V/ og/eða endurmenntunarstaða
LANDSPÍTALI
HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
Staða deildarlæknis í starfsnámi við öldrunarþjónustu er laus til umsóknar frá og með 1. september 2006 eða eftir
samkomulagi. Um er að ræða fjölbreytt starf á hinum ýmsu þjónustuþáttum öldrunarlækna. Staðan er námsstaða
og ef um ráðningu í eitt ár er að ræða verður hún skipulögð þannig að hún gefi heildstæða reynslu á öllum sviðum
öldrunarlækninga, s.s. við greiningu, meðferð og endurhæfingu, á heilabilunar- og bráðaöldrunarlækningadeildum,
við ráðgjöf, á dagspítala, göngudeild og hjúkrunarheimilum. Starfsvettvangur er á Landakoti og í Fossvogi. Vaktir eru
á Landakoti. Staðan er kjörin til sérnáms í öldrunarlækningum, heimilislækningum, lyflækningum og fleiri greinum.
Einnig er þetta kjörin endurmenntunarstaða fyrir lækna í öðrum greinum, svo sem heimilislækningum. Möguleiki er á
skemmri ráðningu.
Umsóknargögn er lýsa menntun og fyrri störfum berist í tvíriti fyrir 26. júní 2006 til Pálma V. Jónssonar, sviðsstjóra
lækninga, Landakoti og veitir hann upplýsingar í síma 543 9891, netfang palmivj@landspitali.is
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim.
Laun eru skv. kjarasamningi sjúkrahúslækna og er starfið bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. yfirlýsingu LSH vegna kjarasamnings við
sjúkrahúslækna dags. 2. maí 2002. Hægt er að nálgast umsókn um lækningaleyfi eða læknisstöðu á heimasíðu LSH. Tekið er mið af
jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali er reyklaus vinnustaður.
SHm
S(úK/ahú&ið og H<llsug«katð«n 4 Ak/wxsi
Afleysingastaða sérfræðings
í kvensjúkdómum
Vegna veikindaforfalla er laus til umsóknar afleysingastaða sérfræðings á sviði kvensjúkdóma og fæðingahjálpar
á kvennadeild Sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi.
Staðan er laus nú þegar eða skv. nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórir Bergmundsson, lækningaforstjóri SHA, netfang thorir.bergmundsson@
sha.is og Guðjón S. Brjánsson, framkvæmdastjóri, netfang sími 430 6000.
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA) skiptist í sjúkrasvið og heilsugæslusvið. Á sjúkrasviði er starfrækt
fjölgreinasjúkrahús með örugga vaktþjónustu allan sólarhringinn árið um kring. Sjúkrahúsið veitir almenna og á vissum sviðum
sérhæfða sjúkrahúsþjónustu á lyflækningadeild, handlækningadeild, kvennadeild, hjúkrunar- og endurhæfingadeild og á vel búnum
stoðdeildum þar sem höfuð áhersla er lögð á þjónustu við íbúa Vestur- og Suðvesturlands. Jafnframt er vaxandi árhersla lögð á
þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á heilsugæslusviði er veitt almenn heilsugæsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi
Akraness með forystuhlutverk varðandi almenna heilsuvernd og forvarnarstarf.
SHA tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla íslands og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn stofnunarinnar eru
um 240 talsins.
Sjá nánar heimasíðu www.sha.is
Læknablaðið 2006/92 493