Læknablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 27
FRÆÐIGREINAR / SYKURSÝKI TEGUND 2
þátttöku í annarri rannsókn sem fól í sér íhlut-
un. Ekki var jafn fjöldi sjúklinga öll árin vegna
þess að sumir greindust á tímabilinu og sumir
fluttu burt eða voru skráðir annars staðar (sjá
töflu I). Meirihluti úrtaksins var karlkyns (59%).
Aldursdreifing úrtaks var frá 43 til 91 árs en með-
alaldur 69 ±11,5 ár, þar af voru 65% eldri en 65 ára.
Greiningarár var skráð hjá 31 og var meðaltími frá
greiningu 3,4 ár en hinir 28 voru greindir fyrir
upphaf rannsóknartímabilsins. Meirihluti úrtaks
var vigtaður á tímabilinu (76%) og 68% var með
skráðan þyngdarstuðul. Meðalþyngd mældra var
96 ± 21 kg og breyttist ekki marktækt á tímabilinu.
Að meðaltali komu fjórar aðrar greiningar lang-
vinnra sjúkdóma fram í sjúkraskrám úrtakshóps
og meðal annars voru 19 skráðir með offitu sem
sjúkdómsgreiningu.
Niðurstöður
Meðferðarmarkmiðum (4) fyrir meðaltal allra
mælinga á HbAlc, blóðþrýsting og heildarkólest-
eról var náð árið 2003. Lækkun meðaltalsgilda var
marktæk fyrir flestar breytur (sjá töflu I). Engar
marktækar breytingar voru á tíðni athugana nema
á HDL og þríglýseríðmælingum sem fækkaði mark-
tækt á tímabilinu vegna sparnaðarráðstafana.
Engar marktækar breytingar áttu sér stað í tíðni
hjartalínurita, tauga- og æðaskoðana eða þyngd-
armælinga á tímabilinu (sjá mynd 1).
Meðaltal allra HbAlc mælinga lækkaði mark-
tækt á tímabilinu og náði undir 7%, sem er mark-
mið klínískra leiðbeininga, árið 2003 (sjá mynd
2) . Hlutfallslegur fjöldi mældra sjúklinga sem
náði þessu markmiði í einhverri mælingu á árinu
fjölgaði og á sama hátt fækkaði þeim sem voru
í einhverri mælingu yfir þessu marki (sjá mynd
3) . Sykursýkismeðferðin fólst í a) eingöngu mat-
arræðisbreytingum hjá 24% (n=14), b) lyfjum í
töfluformi hjá 64% (n=38) og c) samsettri meðferð
taflna og insúlíns hjá 12% (n=7).
Meðaltal skráðs blóðþrýstings lækkaði mark-
tækt á tímabilinu (sjá mynd 4) og árið 2002 var
markmiðum í efri mörkum blóðþrýstings (systólu)
náð. Við síðustu komu til læknis var einn ein-
staklingur með sjúkdómsgreininguna háþrýsting
en var samt ekki á lyfjameðferð. Allir aðrir sem
höfðu verið greindir með háþrýsting voru á blóð-
þrýstingslækkandi lyfjum. Við síðustu komu til
læknis voru 58% prósent (n=34) á lyfjum sem
minnka hættu á segamyndun, og þá aðallega á
magnýli en einnig á öðrum segavarnalyfjum á
öðrum ábendingum.
Meðaltal allra skráðra mælinga á heildarkól-
esteróli hjá úrtakshópi lækkaði marktækt á tíma-
bilinu og náði settum markmiðum (<5 mmól/l)
Læknablaðið 2006/92 455
Percent of sample above 7%HbA1C
| 50
£ 40
■ Percent of sample below 7 % HbAIC
MCj
árið 2003 (sjá mynd 5). í lok tímabilsins voru 39%
(23 af 59) ekki á blóðfitulækkandi lyfjum og af
þeim voru fjórir greindir með blóðfituröskun.
Meðaltöl HDL, þríglýseríða og LDL breyttist ekki
marktækt á tímabilinu (sjá töflu I).
Ákveðinn hluti sjúklinga eða 32% (19 af 59)
náði settum markmiðum í öllum erftirtöldum þátt-
um HbAlc, blóðþrýstingi og heildarkólesteróli við
síðustu mælingu árið 2003.
Figure 3: Percent of
sample above 7% in
HbAlc or below 7% in
any HbA IC measurement
each year. Signiftcant
changes wliere observeci in
both variables.
Umræða
Rannsóknin varpar ljósi á þær breytingar sem hafa
átt sér stað undanfarin ár í meðferð sykursýki 2
við Heilbrigðisstofnunina á Selfossi. Þær sýna
að rúmlega 30% einstaklinganna (19/59) hafa
náð settum markmiðum í öllum þremur megin
þáttum í sykursýkismeðferðar, það er blóðsykri,
blóðþrýstingi og heildarkólesteróli. Þessum sömu
markmiðum klínískra leiðbeininga var einnig náð
fyrir meðaltal allra mælinga árið 2003.
180
160
140
120
100
80
60
40
20
Mean average of all recorded diastolic measurements
+/- 1 SD
I I { { I
1999 2000 2001 2002 2003
Year
Figure 4: Mean average
of all recorded systolic
blood pressure meas-
urements eaclt year. The
recommended goal (<140
mntHg) was reached in tlte
year 2002.