Læknablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VÍSINDARANNSÓKN
Linn Getz
trúnaðarlœknir
Landspítala.
Nær allir fullorðnir Norðmenn í áhættuflokki
Linn segir að það hafi komið henni og samstarfs-
mönnum hennar verulega á óvart að höfundar
evrópsku leiðbeininganna hafi séð fyrir sér að
þær ættu aðeins við lítinn hluta heildarinnar.
„Niðurstöður okkar sýndu allt annað. Við settum
okkur það markmið með rannsókninni að áætla
stærð þess hóps sem væri í hættu vegna hjarta-
sjúkdóma miðað við skýrt skilgreindan hluta
norsku þjóðarinnar ef farið væri eftir evrópsku
leiðbeiningunum. Þá kom í ljós að við 40 ára
aldur væru 22,5 % allra kvenna og 85,9% allra
karla í efsta áhættuflokki (high risk) við að fá lífs-
hættulegan hjartasjúkdóm. Við 50 ára aldur væri
hlutfallið meðal kvenna orðið 39,5% og meðal
karlanna 88,7% og við 65 ára aldur hlutfallið orðið
84% og 91%. Við 40 ára aldur væri ein kona af
hverjum 10 og enginn karl flokkaður í lítilli hættu
við að fá hjartasjúkdóma. Niðurstaða rannsókn-
arinnar sýndi því óumdeilanlega að ef farið væri
eftir hinum klínísku leiðbeiningum um forvarnir
gegn hjarta- og æðasjúkdómum myndu nær allir
fullorðnir Norðmenn falla í flokk þeirra sem væru
í mikilli hættu á að fá banvænan hjartasjúkdóm
innan 10 ára.“
Linn segir afleiðingarnar af þessum niðurstöð-
um meðal annars vera þær að Alþjóðasamtök
heimilislækna hafi dregið til baka stuðning sinn
við þessar leiðbeiningar. „Við leggjum ennfremur
til að við gerð klínískra leiðbeininga af þessu tagi
sé að jafnaði stuðst við reiknilíkön sem sýni afleið-
ingar af notkun þeirra."
Ekki má þó skilja þetta þannig að þeir sem
standa baki gerð þessara leiðbeininga séu ekki
allir af vilja gerðir, en Linn segir að hér sannist
hins vegar sem oft áður að góður tilgangur sé
ekki alltaf nægilegt vegarnesti til að halda af stað í
leiðangur. „Það hefur nefnilega sýnt sig að ef starf-
andi heimilislæknar ættu að fara nákvæmlega eftir
öllum þeim klínísku leiðbeiningum sem gefnar
hafa verið út í góðri trú á ágæti þeirra myndu þeir
í raun aldrei komast yfir neitt annað, allur tími
þeirra færi í að fylgja hinum ýmsu leiðbeiningum
eftir.“
Þess verður einnig að geta að greinin sem hér
um ræðir er ein af fimm greinum sem mynda
kjarna doktorsritgerðar Linn Getz sem hún mun
verja í Noregi nú í júní. Doktorsverkefnið nefnist
Sustainable and responsible preventive medicine.
Conceptualising ethical dilemmas arising from
clinical implementation of advancing medical
technology.
Læknabladið 2006/92