Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 60

Læknablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 60
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FUNDAHÖLD Fundur norrænu læknablaðanna Hávar Sigurjónsson Ritstjórnir norrænu læknablaðanna hittust á sameiginlegum fundi dagana 17.-19. maí. Fundurinn fór fram í þægilegu umhverfi á Högberga Gárd sem er ráðstefnuhótel á eyjunni Lidingö rétt utan við Stokkhólm. Ritstjórar blaðanna fimm höfðu gert grein fyrir því helsta sem einkennt hafði starfsemi hvers blaðs frá síðasta fundi fyrir tveimur árum og var fljótt ljóst að áherslur eru ólíkar eftir löndum og aðstæð- um. Stjórn norska læknablaðsins tók þá ákvörðun fyrir hálfu öðru ári að fella niður alla umfjöllun og viðtöl og birta eingöngu vísinda- og fræðigreinar. Sænska og danska læknablaðið hafa hinsvegar farið allt aðra leið og ritstjórar þeirra beggja koma úr stétt blaðamanna og þar er lögð mikil áhersla á umfjöllun, viðtöl og blaðamannagreinar auk hins fræðilega hluta sem skipar enn stóran sess. Danska og sænska blaðið koma út vikulega en hið norska hálfsmánaðarlega. Segja má að finnska blaðið fari bil beggja og svipi í þeim efnum helst til okkar íslenska læknablaðs sem þó skipar sérstöðu sem mánaðarblað og getur því ekki keppt við aðra fjölmiðla á sviði frétta. Þar leggja Danirnir og Svíarnir mikla áherslu og horfa stíft til helsta sam- keppnisaðilans sem er vikublaðið Dagens medicin sem gefið er út í öllum fjórum löndunum. Breski ritstjórinn og læknirinn Kumran Abbasi hélt fróðlegan fyrirlestur undir yfirskriftinni Opinn aðgangur á netinu og hvatti eindregið til þess að allar vísindagreinar sem birtar væru í læknablöð- unum væru samstundis aðgengilegar á netinu án nokkurra takmarkana fyrir notendur. íslenska rit- stjórnin gat tekið heilshugar undir þetta enda allt efni Læknablaðsins sett á heimasíðuna jafnskjótt og blaðið er komið út. I hinum stóra enskumæl- andi heimi er þessu á annan veg farið og mikil átök um hvort þetta skuli gera eður ei. Abbasi á að baki glæsilegan feril sem einn af rit- stjórum BMJ og er núverandi ritstjóri The Journal of the Royal Society of Medicin http://www.jrsm. org/ og hefur þegar vakið mikla athygli fyrir skörp og hressileg efnistök þrátt fyrir stuttan tíma í rit- stjórastólnum. Hann hamraði á mikilvægi þess að skiptast á upplýsingum og vitnaði í breska leikskáldið Georg Bernard Shaw. „Ef ég á eitt epli og þú átt eitt epli og við skiptumst á eplum þá eigum við eftir sem áður eitt epli hvor. En ef ég á eina hugmynd og þú átt eina hugmynd og við skiptumst á hugmyndum þá eigum við tvær hugmyndir hvor.“ Hann lauk máli sínu með því að segja að þau læknablöð sem tækju ekki tillit til breytinga sem væru í farvatninu í heimi fjölmiðlunar myndu deyja drottni sínum fyrr en seinna. 488 Læknablaðið 2006/92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.