Læknablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 24
Full stiórn
• • •
- dregur úrþvaglátaeinkennum vegna
góðkynja stækkunar blöðruhálskirtils
Tamsulogen
Hvert hylki inniheldur Tamsulosin hýdróklóríð 0,4 mg
Virk innihaldsefni og styrkleikar: Hvert hylki með breyttan
losunarhraða inniheldur0,4 mg tamsulosin hýdróklóríð.
Ábendingar: Einkenni frá neðri þvagfærum vegna góðkynja
stækkunar á blöðruhálskirtli. Skammtar og lyfjagjöf: Eitt hylki á
dag, tekið eftir morgunmat eða eftir fyrstu máltíð dagsins. Hylkin á
að gleypa heil með glasi af vatni og skal sjúklingurinn standa eða
sitja á meðan (ekki vera útafliggjandi). Hylkin má hvorki mylja né
opna þar sem það getur haft áhrif á losun langverkandi virks efnis.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir tamsulosini eða einhverju af öðrum
innihaldsefnum lyfsins, þ.m.t. lyfjaháðurofsabjúgur. Saga um
stöðubundinn lágþrýsting. Alvarlega skert lifrarstarfsemi.
Varnaðarorð og varúðarreglur: Notkun á tamsulosini getur
orsakað lágan blóðþrýsting, sem í einstaka tilvikum getur leitt til
yfirliðs. Við fyrstu einkenni um stöðubundinn lágþrýsting (svimi,
máttleysi) á sjúklingurinn að sitja eða liggja þar til einkennin
hverfa. Áöur en meðferð með tamsulosini er hafin á aö skoða
sjúklinginn til aö útiloka að fyrir hendi sé annar sjúkdómur sem
getur valdið sömu einkennum og góðkynja stækkun blöðruhálskirtils.
Sjúklingur skal skoðaður með endaþarmsþreifingu áður en
meðferð hefst og mæla skal sértækan mótefnavaka blöðruhálskirtils
(prostate specific antigen) ef þurfa þykir. Þetta skal síðan
endurtekið reglulega. Gæta skal varúðar við meðferð hjá sjúklingum
meðalvarlega skerta nýrnastarfsemi (kreatínín úthreinsun <10ml/mín.),
þar sem engar rannsóknir hafa verið gerðar á þeim sjúklingahópi. í
einstaka tilfellum hefur verið tilkynnt um ofsabjúg eftir töku
tamsulosins. (þeim tilfellum skal hætta meðferð strax, fylgjast með
sjúklingnum þar til bjúgurinn hverfur og ekki skal gefa tamsulosin
aftur. Milliverkanir: Engar milliverkanir hafa komið fram við notkun
tamsulosins samtímis atenólóli, enalapríli, nifedipíni eða teófyllíni.
Við notkun cimetidíns samtímis tamsulosini hækkar plasmaþéttni
tamsulosins og plasmaþéttni lækkar ef fúrósemíö er notað samtímis
en ef þéttni tamsulosins er innan eðlilegra marka er ekki
nauðsynlegt að breyta skömmtum. í In vitro rannsóknum með
lifrarmíkrósómalhlutum (dæmigert fyrir umbrot lyQa vegna áhrifa
cýtókrom P450-ensímkerfisins) komu engar milliverkanir við
amitriptylín, salbútamól, glibenclamíð eða finasteríð fram.
Diclofenac og warfarin geta aukið brotthvarfshraða tamsulosins.
Samtímis notkun annarra alfa, -adrenvirkra viðtakablokka getur
lækkaö blóðþrýsting. Meðganga og brjóstagjöf:Tamsulogen er
eingöngu ætlað karlmönnum. Akstur og notkun véla: Engar
rannsóknir hafa verið gerðar á því hvort tamsulosin skerði hæfni
manna til aksturs eða notkunar véla. Sjúklingar eiga þó að hafa í
huga að lyfiö getur valdið svima. Aukaverkanir: Algengar (> 1/100,
<1/10): Svimi. Sjaldgæfar (>1/1.000, <1/100): Höfuðverkur,
hraðsláttur, stöðubundinn lágþrýstingur, nefslímubólga,
hægðatregða, niðurgangur, ógleði, uppköst, útbrot, kláði, ofsakláði,
óeðlileg sáðlát, þróttleysi. Mjög sjaldgæfar (> 1/10.000, < 1/1.000):
Yfirlið, ofsabjúgur. örsjaldan koma fyrir (< 1/10.000): Standpína.
Ofskömmtun: Engin þekkt tilvik eru um bráða ofskömmtun.
Fræðilega séð, gæti samt sem áöur orðið vart við skyndilega
blóðþrýstingslækkun í kjölfar ofskömmtunar. (slíkum tilfellum er
meðhöndlun einkennabundin. Blóðþrýstingurog hjartsláttartíðni
geta lagast við það að leggja sjúklinginn niður. Hjálpi það ekki þarf
að grípa til rúmmálsaukandi lyfja og ef nauðsyn krefur æðaþrengjandi
lyfja- Fylgjast þarf með nýrnastarfsemi og veita almenna stuðnings-
meðferð ef þarf. Að öllum líkindum hjálpar skilun ekki þar sem
tamsulosin er mikið bundið plasmapróteinum. Ef um er að ræða
mikið magn af lyfinu má framkvæma magaskolun og gefa virk
lyfjakol eða hægðalosandi lyf, s.s. natríum súlfat. Pakkningar og
hámarksverð í smásölu 1. maí 2006: Hylki með breyttan losunarhraða
0,4 mg, 90 stk. 7472 kr. Afgreiðslutilhögun: R. Greiðsluþátttaka: E.
Markaðsleyfishafi: Generics UK Ltd., 12 Station Close Potters Bar,
Herts EN6 1TL, Bretlandi. Umboösaðili á (slandi: NM Pharma,
Reykjavíkurvegi 76-78,220 Hafnarfirði, sími 550 3310. Mars 2006.
NM Pharma