Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2006, Síða 24

Læknablaðið - 15.06.2006, Síða 24
Full stiórn • • • - dregur úrþvaglátaeinkennum vegna góðkynja stækkunar blöðruhálskirtils Tamsulogen Hvert hylki inniheldur Tamsulosin hýdróklóríð 0,4 mg Virk innihaldsefni og styrkleikar: Hvert hylki með breyttan losunarhraða inniheldur0,4 mg tamsulosin hýdróklóríð. Ábendingar: Einkenni frá neðri þvagfærum vegna góðkynja stækkunar á blöðruhálskirtli. Skammtar og lyfjagjöf: Eitt hylki á dag, tekið eftir morgunmat eða eftir fyrstu máltíð dagsins. Hylkin á að gleypa heil með glasi af vatni og skal sjúklingurinn standa eða sitja á meðan (ekki vera útafliggjandi). Hylkin má hvorki mylja né opna þar sem það getur haft áhrif á losun langverkandi virks efnis. Frábendingar: Ofnæmi fyrir tamsulosini eða einhverju af öðrum innihaldsefnum lyfsins, þ.m.t. lyfjaháðurofsabjúgur. Saga um stöðubundinn lágþrýsting. Alvarlega skert lifrarstarfsemi. Varnaðarorð og varúðarreglur: Notkun á tamsulosini getur orsakað lágan blóðþrýsting, sem í einstaka tilvikum getur leitt til yfirliðs. Við fyrstu einkenni um stöðubundinn lágþrýsting (svimi, máttleysi) á sjúklingurinn að sitja eða liggja þar til einkennin hverfa. Áöur en meðferð með tamsulosini er hafin á aö skoða sjúklinginn til aö útiloka að fyrir hendi sé annar sjúkdómur sem getur valdið sömu einkennum og góðkynja stækkun blöðruhálskirtils. Sjúklingur skal skoðaður með endaþarmsþreifingu áður en meðferð hefst og mæla skal sértækan mótefnavaka blöðruhálskirtils (prostate specific antigen) ef þurfa þykir. Þetta skal síðan endurtekið reglulega. Gæta skal varúðar við meðferð hjá sjúklingum meðalvarlega skerta nýrnastarfsemi (kreatínín úthreinsun <10ml/mín.), þar sem engar rannsóknir hafa verið gerðar á þeim sjúklingahópi. í einstaka tilfellum hefur verið tilkynnt um ofsabjúg eftir töku tamsulosins. (þeim tilfellum skal hætta meðferð strax, fylgjast með sjúklingnum þar til bjúgurinn hverfur og ekki skal gefa tamsulosin aftur. Milliverkanir: Engar milliverkanir hafa komið fram við notkun tamsulosins samtímis atenólóli, enalapríli, nifedipíni eða teófyllíni. Við notkun cimetidíns samtímis tamsulosini hækkar plasmaþéttni tamsulosins og plasmaþéttni lækkar ef fúrósemíö er notað samtímis en ef þéttni tamsulosins er innan eðlilegra marka er ekki nauðsynlegt að breyta skömmtum. í In vitro rannsóknum með lifrarmíkrósómalhlutum (dæmigert fyrir umbrot lyQa vegna áhrifa cýtókrom P450-ensímkerfisins) komu engar milliverkanir við amitriptylín, salbútamól, glibenclamíð eða finasteríð fram. Diclofenac og warfarin geta aukið brotthvarfshraða tamsulosins. Samtímis notkun annarra alfa, -adrenvirkra viðtakablokka getur lækkaö blóðþrýsting. Meðganga og brjóstagjöf:Tamsulogen er eingöngu ætlað karlmönnum. Akstur og notkun véla: Engar rannsóknir hafa verið gerðar á því hvort tamsulosin skerði hæfni manna til aksturs eða notkunar véla. Sjúklingar eiga þó að hafa í huga að lyfiö getur valdið svima. Aukaverkanir: Algengar (> 1/100, <1/10): Svimi. Sjaldgæfar (>1/1.000, <1/100): Höfuðverkur, hraðsláttur, stöðubundinn lágþrýstingur, nefslímubólga, hægðatregða, niðurgangur, ógleði, uppköst, útbrot, kláði, ofsakláði, óeðlileg sáðlát, þróttleysi. Mjög sjaldgæfar (> 1/10.000, < 1/1.000): Yfirlið, ofsabjúgur. örsjaldan koma fyrir (< 1/10.000): Standpína. Ofskömmtun: Engin þekkt tilvik eru um bráða ofskömmtun. Fræðilega séð, gæti samt sem áöur orðið vart við skyndilega blóðþrýstingslækkun í kjölfar ofskömmtunar. (slíkum tilfellum er meðhöndlun einkennabundin. Blóðþrýstingurog hjartsláttartíðni geta lagast við það að leggja sjúklinginn niður. Hjálpi það ekki þarf að grípa til rúmmálsaukandi lyfja og ef nauðsyn krefur æðaþrengjandi lyfja- Fylgjast þarf með nýrnastarfsemi og veita almenna stuðnings- meðferð ef þarf. Að öllum líkindum hjálpar skilun ekki þar sem tamsulosin er mikið bundið plasmapróteinum. Ef um er að ræða mikið magn af lyfinu má framkvæma magaskolun og gefa virk lyfjakol eða hægðalosandi lyf, s.s. natríum súlfat. Pakkningar og hámarksverð í smásölu 1. maí 2006: Hylki með breyttan losunarhraða 0,4 mg, 90 stk. 7472 kr. Afgreiðslutilhögun: R. Greiðsluþátttaka: E. Markaðsleyfishafi: Generics UK Ltd., 12 Station Close Potters Bar, Herts EN6 1TL, Bretlandi. Umboösaðili á (slandi: NM Pharma, Reykjavíkurvegi 76-78,220 Hafnarfirði, sími 550 3310. Mars 2006. NM Pharma

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.