Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2007, Síða 7

Læknablaðið - 15.10.2007, Síða 7
RITSTJÓRNARGREIN íslenskur forseti WMA, Alþjóðafélags lækna Jón Snædal, læknir og fyrrum varaformaður Læknafélags Islands, tekur við embætti forseta Alþjóðafélags lækna, World Medical Association (WMA), á næstu dögum í Kaupmannahöfn. Það er sannarlega mikill persónulegur heiður fyrir Jón og viðurkenning fyrir það starf, sem hann hefur unnið fyrir WMA og ytra tákn þeirrar virð- ingar, sem hann nýtur á þeim vettvangi. Einnig er þetta viðurkenning til annarra íslenskra lækna og Læknafélags Islands og þeirrar stefnu, sem það hefur staðið fyrir í Alþjóðafélagi lækna. Arum saman stóð LI fyrir utan starfið í WMA þrátt fyrir skilvísi við greiðslu árgjalda til þess. Það má segja að afskiptaleysið hafi tekið kúvendingu á einni nóttu með umræðunni um hinn miðlæga gagnagrunn á heilbrigðissviði 1998. Fljótlega varð ljóst, að það var margvíslegum vanda undirorpið að fá málstaðinn í hendur öðrum læknafélög- um, þegar litið var til WMA um hin siðferðilegu úrlausnarefni. Vorið 1999 var tekin sú ákvörðun að senda Tómas Zoéga, lækni, á fund stjórnar WMA í Santiago í Chile til þess að útskýra sjónarmið Læknafélags íslands við setningu laga um hinn miðlæga gagnagrunn og hófst þar með virk þátt- taka LI við stefnumótun WMA í hvers konar sið- ferðilegum álitaefnum, sem læknum veraldarinnar mæta á vettvangi hversdagsins. Þá sögu þekkja margir og ekki tóm til að rekja hana nánar hér. Jón Snædal gegndi formennsku í siðamáladeild stjórn- ar WMA um fjögurra ára skeið. WMA var stofnað eins og allir vita af læknum, sem upplifað höfðu hörmungar heimsstyrjald- arinnar síðari. Fyrst og fremst var þeim ofarlega í huga ábyrgð lækna á siðlausum tilraunum á mönn- um, pyntingum og öðrum mannréttindabrotum. Læknar voru sammála um að bindast samtökum, sem næðu yfir landamæri og gætu komið í veg fyrir að slíkir atburðir endurtækju sig. Læknar meðal þeirra þjóða, sem stríðið hafði komið einna harðast niður á og voru mitt í hringiðu átakanna, voru einna áhugasamastir um félagsstofnunina. Á heimasíðu WMA segir um félagið: The org- anization was created to ensure the independence of physicians, and to work for the highest possible standards ofethical behaviour and care by physici- ans, at all times. This was particularly important to physicians after the Second World War, and there- fore the WMA has always been an independent confederation of free professional associations. Funding has been by the annual contributions ofits members, which has now grown to approximately 80 National Medical Associations. Þessi markmið félagsins eru vel þekkt um allan heim. Þau eru virt. Þau enduróma í samþykktum eins og Genfaryfirlýsingunni og Helsinkiyfirlýsing- unni og mörgum öðrum samþykktum WMA. Þetta eru samþykktir sjálfstæðra lækna og læknafélaga, sem láta sér annt um siðamál og mannréttindi. Þetta er alkunna og því eru atriði úr þessum yfir- lýsingum nú að finna í löggjöf margra þjóða, sem fjallar um réttindi sjúklinga og tilraunir á mönnum og önnur atriði, sem varða grundvallarmannrétt- indi. Slíkt hefði aldrei orðið, ef WMA væri ekki þekkt um víða veröld.fyrir að vera óháð og sjálf- stætt félag lækna. Stoðir WMA standa í þjóðlegum aðildarfélögum þess. Þar er uppspretta hugmynda- fræðinnar. WMA verður aldrei sterkara en keðjan sem þessi félög mynda. Hlutverk WMA er að fjalla um siðamál og mannréttindi. í því felst styrkur þess. Læknar hafa mörg félög önnur til að fjalla um hagsmuni og pólitík og jafnvel fagleg málefni, sem tengjast sérstökum sviðum læknisfræðinnar. Læknar hafa jafnframt þrýstihópa. WMA er ekki þrýstihópur. Ekki nema vegna siðamála og mann- réttinda. WMA á að viðhalda þessari stöðu sinni. Það verður ekki gert með fjárhag óháðum aðild- arfélögum þess. Það er styrkur WMA að byggja tilveru sína á ákvörðunum og fjárframlögum að- ildarfélaganna. Það er verkefni WMA að vinna að siðamálum lækna og mannréttindum, að pússa og fægja viðfangsefni sín og samþykktir og færa þau til nútímans hverju sinni. Fjárhagsleg átónómía eða tilvera byggð á fjárframlögum utanaðkom- andi stórfyrirtækja færir hina hugmyndafræðilegu umræðu og ábyrgð á samþykktum WMA frá að- ildarfélögunum til þeirra sem fjármagninu veita. Það yrði óumflýjanlegt. Þar með hættir WMA að vera rödd lækna veraldarinnar, sem hlustað er á og er virt. Við eigum að sætta okkur við það að starfsemi WMA endurspeglar fjárhag aðildarfélaga þess og að hún tekur mið af því fé, sem þau eru tilbúin að leggja því til. Starfsemi WMA á að endurspegla vilja aðildarfélaganna og þann metnað, sem þau hafa fyrir hönd WMA. Jóni Snædal eru færðar árnaðaróskir þegar hann tekur forsæti í þessu virðulega félagi. Sigurbjörn Sveinsson Höfundur er heimilislæknir og fráfarandi formaður LI. Læknablaðið 2007/93 667

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.