Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2007, Síða 16

Læknablaðið - 15.10.2007, Síða 16
FRÆÐIGREINAR / NÝBURAR (10). Hins vegar eru börnin í sumum tilvikum enn með vanþroskuð lungu og fá þá glærhimnu- sjúkdóm (hyaline membrane disease) sem yfirleitt veldur alvarlegri öndunarörðugleikum en vot lungu (5, 6, 11, 12). Einnig eru börn sem fæð- ast með valkeisaraskurði í aukinni hættu á að fá lungnaháþrýsting (13,14). Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna tíðni öndunarörðugleika hjá börnum sem fæddust með valkeisaraskurði á kvennadeild Landspítala á tímabilinu 1996-2005. Metin var hlutfallsleg hætta á öndunarerfiðleikum með tilliti til meðgöngu- lengdar þegar valkeisaraskurðir voru gerðir í þeim tilgangi að varpa ljósi á við hvaða meðgöngulengd sé minnst hætta á öndunarörðugleikum hjá nýbur- anum. Jafnframt voru könnuð áhrif verklagsreglna sem settar voru á kvennadeild Landspítala árið 2001 þar sem lögð var áhersla á að gera ekki val- keisaraskurði fyrir 39 vikna meðgöngu nema brýn ástæða væri til. Tilfelli og aðferðir Rannsóknin var afturskyggn og náði til fullburða nýbura (meðgöngulengd >37+0 vikur, 259 dagar, samkvæmt ómskoðun fyrir 20 vikna meðgöngu) sem fæddust með valkeisaraskurði á kvennadeild Landspítala frá 1. janúar 1996 til og með 31. desember 2005 og leggja þurfti inn á vökudeild Barnaspítala Hringsins vegna öndunarörðugleika. Valkeisaraskurður var skilgreindur sem keisara- skurður sem ekki er bráður, það er gerður áður en hin verðandi móðir fer í fæðingu og ákveðinn að minnsta kosti átta klukkustundum áður en hann ergerður (15). Upplýsinga um börnin og mæður þeirra var aflað úr mæðraskrám og sjúkraskrám barnanna. Heildartíðni valkeisaraskurða á kvennadeild Landspítala á rannsóknartímabilinu var fengin úr Landsskráningu fæðinga. Börn sem ekki fæddust á kvennadeild Landspítala og þau börn sem fæddust fyrir 37 vikna meðgöngu voru útilokuð frá rannsókninni. Annað sem útilokaði börnin frá þátttöku í rannsókninni voru aðrir sjálfstæðir áhættuþættir fyrir öndunar- örðugleikum hjá nýburum, svo sem staðfest sýk- ing, ef legavatn var litað barnabiki (meconium) og ef barnið var með meiriháttar fæðingargalla. Einnig voru börn með litningagalla útilokuð frá rannsókninni. Viðmið sem notuð voru við greiningu á votum lungum voru: a) hröð öndun, inndrættir og nasa- vængjablakt, b) einkennandi breytingar á röntg- enmynd af lungum: striklaga þéttingar út frá mið- mæti, vökvi í skorum milli lunga (interlobar fiss- ures) og vægt yfirþan á lungum og c) súrefnisþörf minni en 30% við eins sólarhrings aldur (16). Viðmið sem notuð voru við greiningu á glær- himnusjúkdómi voru: a) hröð öndun eða stunur, inndrættir og nasavængjablakt, b) einkennandi breytingar á röntgenmynd af lungum: fínkornóttar þéttingar, loftberkjuteikn (loftbronchogram) og undirþan á lungum og c) þörf fyrir meira en 30% súrefni í að minnsta kosti sólarhring eða meðferð með öndunarvél (16). Við greiningu á lungnaháþrýstingi (persistent pulmonary hypertension of the newborn) var notuð hjartaómskoðun. Öll börnin sem greind voru með lungnaháþrýsting voru með leka á þríblöðkuloku (valva tricuspitalis) og var þrýsting- urinn í lungnaslagæðum áætlaður með því að mæla flæðishraða blóðs í gegnum lokuna frá hægri slegli aftur í hægri gátt. Urn mitt ár 2001 voru gerðar verklagsreglur á kvennadeild Landspítala þar sem lögð var áhersla á að valkeisaraskurðir væru ekki gerðir áður en 39 vikna meðgöngu væri náð, nema nauðsyn bæri til. Könnuð var tíðni ótímabærra keisaraskurða fyrir 39 vikna meðgöngu áður en og eftir að þær voru settar. Tölfræðiútreikningar voru gerðir með forritinu JMP (JMP 6.0.0 (Academic), SAS Institute Inc. Cary, NC). Tíðni öndunarörðugleika var reiknuð út sem hlutfall af heildarfjölda valkeisaraskurða sem gerðir voru á Kvennadeild Landspítala á sama tímabili. Kí-kvaðrat próf var notað við töl- fræðiútreikninga. Niðurstöður eru gefnar upp sem meðaltal + meðalfrávik, miðgildi (dreifing) eða Tafla Hlutfallsleg áhætta að fá öndunarörðugleika hjá nýburum sem fæðast með valkeisaraskurði eftir meðgönguiengd. Meðgöngulengd (vikur) Fjöldi barna með öndunaröröugleika / fjöldi barna fædd með valkeisaraskurði Hundraðshluti barna með öndunarörðugleika Áhættuhlutfall (risk ratio) 95% vikmörk 37 °-6 sbv. 38 06 12 / 87 sbv. 22 / 331 13,8 % sbv. 6,6 % 2,07 1,07-4,03 38 °-6 sbv. 39 M 22 / 331 sbv. 20 / 871 6,6 % sbv. 2,3 % 2,89 1,40-5,23 39 °-6 sbv. 40 °-6 20 / 871 sbv. 3 / 121 2,3 % sbv. 2,5 % 0,93 0,28-3,07 37 0 - 38 6 sbv. 39 0 - 40 6 34 / 418 sbv. 23 / 992 8,1 % sbv. 2,3 % 3,51 2,01-5,88 Sbv.: samanborió viö 676 Læknablaðið 2007/93 j

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.