Læknablaðið - 15.10.2007, Page 31
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐTAL VIÐ FORMANN LÍ
öðrum. Alls staðar þar sem tekist er á um fé til
rekstrar verða menn miskunnarlausir. Hins vegar
ef starfsumhverfi og starfsöryggi þeirra er ógnað
standa læknar saman. Ég er þess fullviss að ef
sjálfstætt starfandi sérfræðingar hefðu viðurkennt
í tilvísanadeilunni að þeir teldu afkomu sinni fyrst
og fremst ógnað þá hefðu heimilislæknar haldið
að sér höndum og virt þá baráttu sem sérfræð-
ingarnir stóðu í gagnvart ríkisvaldinu. Það voru
taktísk mistök að láta sem þarna væri fyrst og
fremst tekist á um pólitíska og hugmyndafræðilega
meginreglu. Það hefur svo komið á daginn að sem
betur fer nær mikilvægi lækna út yfir kerfi og til-
vísanir einsog raunin er núna með hjartalækna og
aðra, þannig að stundum gera læknar minna úr sér
en efni standa til.”
Gagnagrunnsmálið skók Læknasamfélagið
Formannstími þinn hefur í rauninni einkennst af
nokkrum stórum málum. Sum þeirra hafa skekið
allt þjóðfélagið en önnur hafa fremur verið inn-
anfélagsmál. Hvar viltu byrja?
„Formannstíð mín hófst á því að vinna félagið
útúr gagnagrunnsmálinu. Að sumu leyti er for-
mennska mín ávöxtur þess máls án þess að ég vilji
fara nánar út í það. Þegar ég tók við haustið 1999
voru mjög hatrömm átök um þessa viðskipta-
hugmynd Kára Stefánssonar sem þá var orðin að
lögum og átökin náðu langt inn í raðir lækna. Ég
var í þeim hópi sem gagnrýndi þessa hugmynd og
hafði skrifað blaðagreinar, tekið þátt í umræðum
og átt þátt í að móta afstöðu stjórnar LI til málsins.
Menn vissu því mætavel hvaða rödd þeir voru að
kjósa með ntig sem formann nýrrar stjórnar félags-
ins. Samt sem áður lá ekki fyrir að hafa einhvern
undir í þessu máli heldur var læknum mikilvægast
að friður kæmist á. Að mínu mati var þetta mál
alveg að fara nteð læknastéttina og menn bárust í
sannleika sagt á banaspjótum.”
Hvernig meturðu þessi átök núna? Voru þau
siðferðilegs eðlis eða var tekist á um fjárhagslega
hagsmuni?
„Átökin voru tvímælalausl siðferðileg en
það má hins vegar vel vera að skoðanir hafi
mótast af fjárhagslegum hagsmunum. Slíkt á sér
alltaf stað enda slær hjartað þar sem fjársjóð-
urinn er. Menn töldu hins vegar að verið væri að
brjóta meginreglur sem læknar hefðu mótað sér
meðal annars innan alþjóðasamtaka Iækna með
Helsinkiyfirlýsingunni. Átökin stóðu um hvort
hægt væri að túlka hana við þessar nýju aðstæður.
Fljótlega í ársbyrjun 2000 komst á samningur milli
heilbrigðisráðuneytisins og íslenskrar erfðagrein-
ingar og í kjölfarið virtist ÍE tilbúin til að tala við
læknafélagið og við settumst að „samningaborði".
Þetta voru gríðarlega erfiðir fundir vegna þess að
á milli þessara aðila var nær óbrúanleg gjá og í
„Hefekki útskrifað mig
úr Lœknafélagi íslands, ”
segir Sigurbjörn Sveinsson
fráfarandi formaður.
Læknablaðið 2007/93 691