Læknablaðið - 15.10.2007, Page 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÍKNAREINING
Málverkið Staður 2000
eftir Erlu Pórarinsdóttur
(f. 1955) er gjöftil líkn-
ardeildar Landspítala
til minningar um hjónin
Jóhönnu Björnsdóttur
og Ásbjörn Sigfússon frá
árgangi 1979 og öðrum
vinum úr lœknadeild og
var afhent líknardeildinni
7. september 2007. Jóhanna
lést 30. desember 2006 og
Ásbjörn 8. september 2001.
Á myndinni eru Ásta og
Hulda Ásbjörnsdœtur,
dætur þeirra hjóna. Hulda
útskrifaðist í vor úr lœkna-
deild HÍ en Ásta er ífram-
haldsnámi í mannfrœði í
Edinborg.
Málverkið verður I setu-
stofu hinnar nýju dagdeild-
ar við líknareininguna í
Kópavogi.
þjálfun eftir hádegið en þetta á allt eftir að slípast
og ræðst talsvert af því hvernig sjúklingahópurinn
er samsettur á hverjum tíma. Fólkið borðar hér
hádegismat og þegar fimmdaga deildin verður
komin í gagnið þar sem sjúklingar geta lagst inn
frá mánudegi til föstudags þá verða þessar deildir
reknar saman að nokkru leyti, hvað varðar iðju-
og sjúkraþjálfunina og aðra meðferð sem boðið
er uppá.”
Valgerður lýsir markmiðum dagdeildarinnar
með þeim orðum að henni sé ætlað að bæta lífs-
gæði einstaklinga sem þiggja líknandi meðferð
og dvelja heima. „Við erum í nánu samstarfi við
sjúklinginn og þá aðila sem sinna honum og fjöl-
skyldu hans. Dagdeildin á að viðhalda sem mestu
sjálfstæði einstaklingsins með endurhæfingu og
hæfingu, ásamt markvissri meðferð einkenna og
eftirliti. Tilgangurinn er einnig að minnka félags-
lega einangrun og veita andlegan stuðning til að
einstaklingurinn ráði betur við streitu, kvíða og
þunglyndi, efla sjálfsmat og sjálfsöryggi og við-
halda von og tilgangi. Það er einnig mikilvægt að
veita ráðgjöf og stuðning til aðstandenda.”
Líknardeildin er að sögn Valgerðar að lang-
mestu leyti nýtt af krabbameinssjúklingum. „Það
er algengur misskilningur að hér dvelji eingöngu
einstaklingar sem komnir eru í sína síðustu legu.
Sannleikurinn er sá að um 30-50% sjúklinganna
útskrifast aftur heim til sín en árlegur fjöldi inn-
lagna á líknardeildina er um 110. Með fjölbreytt-
ari þjónustuleiðum er von okkar að fjölga megi
innlögnum enda oft langur biðlisti. Meðalinnlögn í
dag er um 22 dagar en helst vildum við ná því niður
í 14 daga eins og algengt er víðast hvar erlendis í
sambærilegri þjónustu
Meginmarkmið með starfsemi líknareining-
arinnar segir Valgerður vera þau að bæta lífsgæði
einstaklinga með lífshættulega sjúkdóma með því
að beita markvissri meðferð við erfiðum einkenn-
um sjúkdómsins, draga úr og fyrirbyggja þjáningu.
„Okkar hlutverk er einnig að þjálfa heilbrigð-
isstarfsfólk í líknandi meðferð og sinna kennslu
fyrir allar starfstéttir innan heilbrigðiskerfisins.
Hér er einnig unnið að rannsóknum og þróun-
arverkefnum á sviði líknandi meðferðar í tengslum
við bæði innlenda og erlenda aðila.”
Setustofa hinnar nýju dagdeildar líknareiningarinnar.
Læknablaðið 2007/93 701