Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2007, Page 49

Læknablaðið - 15.10.2007, Page 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / GRÆNLAND til að fá læknisþjónustu. Við förum ekki í vitjanir út í bæ. I rauninni er maður að fást við það sama og heima í Danmörku og fólk leitar jafnmikið til læknis hér. Eg hafði ímyndað mér að fólk leitaði jafnvel ekki læknis fyrr en það væri við dauðans dyr en það er alls ekki þannig. Fólk kemur með börnin ef þau eru lasin og starf læknisins hér er í rauninni alls ekki svo frábrugðið því sem ég átti að venjast í Danmörku. Meginmunurinn er að í Danmörku vísar maður sjúklingum til sjúkrahúss eða sérfræðinga en hér fylgir maður sjúklingi eftir, tekur á móti honum og greinir hann, og gerir síðan jafnvel aðgerð á honum ef manni finnst maður vera fær um það. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt því með þessu fæ ég tækifæri til að gera algengar aðgerðir og uppskurði á sjúkrahúsinu, en allt sem er verulega flókið læt ég sérfræðingunum eftir. Við fáum hingað reglulega sérfræðinga frá Nuuk eða frá Danmörku sem gera aðgerðir og það má segja að á hverjum tíma sé gestkomandi sérfræð- ingur hér á sjúkrahúsinu um lengri eða skemmri tíma. Við höfum 32 legurúm á sjúkrahúsinu og yfirleitt eru 8-10 upptekin af okkar sjúklingum og hin eru notuð til innlagna vegna sérfræðiaðgerða. Þetta gengur mjög vel og nægir okkur ágætlega. Við sendum einnig sjúklinga til sjúkrahússins í Nuuk þar sem eru starfandi sérfræðingar og skurð- stofuaðstaða er betri.” Við sjúkrahúsið eru starfandi 5 læknar og segir Eskild það vera mjög ásættanlegt hlutfall miðað við íbúafjöldann. „Heimiilslæknar í Danmörku hafa kannski heldur fleiri á sínum lista en það er ekki alveg sambærilegt þar sem þeir starfa utan sjúkrahúsanna.” Hinar dreifðu byggðir með ströndinni sem til- heyra héraðinu fá reglulega læknisheimsóknir. „Við reynum að vitja hverrar byggðar annan hvern mánuð og þetta gerum við árið um kring. A sumrin er siglt og á veturna flogið í þyrlu. í langflestum byggðunum er heilsugæslustarfsmaður sem reynd- ar er yfirleitt ólærður en hefur komið hingað á sjúkrahúsið á námskeið. Námskeiðið er fólgið í grundvallaratriðum eins og fyrstu hjálp, gefa lyf og að geta gert að sárum og stöðvað blæðingar þar til við getum náð í sjúklinginn ef þess gerist þörf. Annars að sinna tilfallandi veikindum með lyfja- gjöf og þá með ráðgjöf frá okkur í gegnum síma.” Það kemur fram í samtali okkar síðar að Iang- flestir þessarra starfmanna sjúkrahússins í hinum dreifðu byggðum eru konur. Kemur líklega fáum á óvart. Vantar alltaf lækna Ekki fer hjá því að áfengisvandann í grænlensku samfélagi beri á góma þegar rætt er um heil- brigðismál þar í landi. Eskild segir að vissulega sé Sleðahundarnir eru engin áfengisvandinn mikill og áberandi og hann birtist gœludýr. Pessi hefur tapað í ýmsum myndum. „Börnin verða oft illa úti þegar öðru auganu. foreldrarnir drekka mikið og það eru of mörg börn á Grænlandi sem njóta ekki þess öryggis sem þau ættu að gera. Á hinn bóginn eru grænlenskir foreldrar afskaplega góðir við börnin sín og áfeng- isvandinn er böl sem margir glíma við og Iíða fyrir. Drykkjuvenjur hér eru talsvert frábrugðnar því sem maður á að venjast í Danmörku og víðast hvar í Evrópu. Hér drekkur fólkið þegar það eign- ast peninga og heldur áfram þar til peningarnir eru búnir og þá er ekki drukkið aftur fyrr en eftir talsverðan tíma. En meðan á drykkjunni stendur verða slys, olbeldisglæpir eru framdir og börnin eru vanrækt, allt hlutir sem við heilbrigðisstarfs- fólkið þurfum að fást við.” Kannski hljómar þetta ekki mjög framandi fyrir íslenskan lesanda sem þekkir eflaust einkenni túradrykkjunnar á þessari lýsingu þó líklega hafi það breyst með auknu framboði áfengis og rýmri opnunartíma veitingastaða á Islandi seinni árin. Drykkjumynstur íslendinga hefur færst í hinn samevrópska farveg þar sem ofurölvun er minna áberandi en um leið hefur heildarmagn á hvern íbúa aukist verulega. „Við meðhöndlum ekki áfengissjúklinga hér á sjúkrahúsinu að öðru leyti en því að við tökum við Læknablaðið 2007/93 709

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.